SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Blaðsíða 44
44 13. mars 2011
Belinda Bauer – Darkside
bbbnn
Belinda Bauer vakti talsverða athygli í Bretlandi
fyrir skáldsöguna Blacklands sem segir frá ung-
um dreng er skrifast á við fjöldamorðingja. Í
Darkside er hún á svipuðum slóðum land-
fræðilega og meira að segja bregður fyrir í sög-
unni annarri söguhetju Blacklands. Atburða-
rásin er þó talsvert önnur, nú segir Bauer frá
ungum lögreglumanni sem sinnir fárveikri eig-
inkonu sinni. Þau búa í þorpi þar sem hann er eini lögreglumað-
urinn og þegar farlama kona er myrt verður að kalla til teymi úr
nærliggjandi borg. Fljótlega kemur í ljós að morðinginn hefur fleiri
illvirki í hyggju og líkin hrannast upp. Þokkalega skrifaður
krimmi, en heldur þótti mér loftið fara úr honum í lokin.
Kate Atkinson – Started Early,
Took My Dog bbbbm
Sumar glæpasögur eru svo vel skrifaðar að þær
hætta nánast að vera krimmar og verða bara
fínar bókmenntir. Svo er því til að mynda hátt-
að með bækur Kate Atkinson um lögreglu-
manninn fyrrverandi Jackson Brodie, en Star-
ted Early, Took My Dog er nýjust þeirra. Brodie
er töffari með sál, hörkutól með samvisku sem
tekur hlutunum ekki of alvarlega. Hann er þó
ekki einn á ferð, því stór hluti af bókinni segir frá fyrrverandi
lögreglukonu sem komin er af léttasta skeiði og gerir innkaup sem
snúa lífi hennar á hvolf og eins af leikkonu sem er heldur en ekki
tekin að kalka. Leiðir þeirra liggja saman á ýmsa vegu og flækjan í
bókinni ýmist raknar upp eða flækist enn frekar aftur og aftur.
Brandon Sanderson –
The Way of Kings bbbbn
Það þótti mörgum mikill heiður fyrir Brandon
Sanderson að hann skyldi valinn til að ljúka við
metsölubókaröðina endalausu um Rand al’Thor
og félaga hans (The Wheel of Time). Fram að því
hafði Sanderson sent frá sér prýðilegar vís-
indaskáldsögur og ævintýrabækur og afleitar
unglingasögur, en besta bók hans til þessa er
The Way of Kings sem kom út síðastliðið haust.
Þetta er mikil bók að vöxtum, rúmar 1.000 síður, og segir líka
mikla sögu með átta ólíkum aðalpersónum og óteljandi auka-
persónum. Framan af bókinni er eins og maður sé að lesa nokkrar
mismunandi skáldsögur, sem gerast reyndar allar í sama æv-
intýraheiminum, en síðan renna þær saman í eina volduga sögu
sem er þó aðeins upphaf að sagnabálki sem spanna mun tíu bækur
hið minnsta.
Erlendar bækur
Eymundsson
1. This Body of Death – Eliza-
beth George
2. Private – James Patterson
3. Bad Boy – Peter Robinson
4. Ice Cold – Tess Gerritsen
5. The Whisperers – John Con-
nolly
6. The Man From Beijing –
Henning Mankell
7. Savour the Moment – Nora
Roberts
8. The Library of Gold – Gayle
Lynds
9. Altar of Eden – James Roll-
ins
10. The Burning Wire
New York Times
1. Treachery in Death – J.D.
Robb
2. Pale Demon – Kim Harrison
3. Gideon’s Sword – Douglas
Preston & Lincoln Child
4. A Discovery of Witches –
Deborah Harkness
5. 1Tick Tock – James Patter-
son & Michael Ledwidge
6. The Girl Who Kicked the
Hornet’s Nest – Stieg Lars-
son
7. The Union Quilters – Jenni-
fer Chiaverini
8. The Help – Kathryn Stockett
9. The Paris Wife – Paula
McLain
10. Night Vision – Randy Wayne
White
Waterstone’s
1. The Classic FM Hall of
Fame – Darren Henley,
Sam Jackson, Tim Lihoreau
2. Midnight – L.J. Smith
3. Land of Painted Caves –
Jean M. Auel
4. Started Early, Took My Dog
– Kate Atkinson
5. The Brightest Star in the
Sky – Marian Keyes
6. Never Let Me Go – Kazuo Is-
higuro
7. The Twilight Saga – Steph-
enie Meyer
8. The Wise Man’s Fear – Pat-
rick Rothfuss
9. Room – Emma Donoghue
10. The Botty Rules – Nigel Bot-
terill
Bóksölulisti
Lesbókbækur
Þ
ekktasta bók Isabel Allende, Hús and-
anna, kom út árið 1982, vann til verð-
launa og var þýdd á fjölda tungumála.
Rómuð íslensk þýðing Thors Vil-
hjálmssonar á bókinni kom út árið 1987 en það
sama ár mætti Allende á Bókmenntahátíð í
Reykjavík.
Hús andanna varð vinsæl hér á landi eins og
svo víða annars staðar og nú hefur verkið verið
endurútgefið í kilju í hinum nauðsynlega bóka-
flokki „Erlend klassík“ sem Forlagið gefur út.
Það er vel til fundið að endurútgefa Hús and-
anna því hér er á ferð áhugaverð og heillandi
fjölskyldusaga sem um leið endurspeglar gríð-
arleg þjóðfélagsátök.
Það verður að segjast eins og er að ekki hafa
allar bækur Allende elst jafn vel. Þær eru reynd-
ar yfirleitt fremur læsilegar en á köflum form-
úlukenndar og skortir dýpt. Allende hefur feng-
ið harða gagnrýni, þar á meðal frá landa sínum,
hinum látna rithöfundi Roberto Bolano og
gagnrýnandanum Harold Bloom, sem lýstu því
yfir að hún væri lélegur rithöfundur. Fjölmargir
eru á öðru máli.
Það er ekki nema sanngjarnt að dæma höf-
unda eftir því sem þeir gera best – og þá er Al-
lende í ágætum málum. Hús andanna stendur
enn alveg fyrir sínu og þeir sem ekki hafa lesið
bókina eiga góða lestrarupplifun fyrir höndum.
Bókin er fyrsta skáldsaga Allende svo kannski
má segja að hún hafi byrjað á toppnum. Það er
þó ekki rétt að halda því fram að hún hafi ekki
skrifað áhugaverðar bækur síðan. Bók hennar
Paula, þar sem hún skrifaði um veikindi og
dauða dóttur sinnar, er sennilega áhrifamesta
verk hennar, skrifað af gríðarlega mikilli til-
finningu og ástríðu.
Allende tileinkar Hús andanna móður sinni
og ömmu og þeim konum sem koma við sögu í
bókinni. Styrkur bókarinnar liggur ekki síst í
sterkum og litríkum kvenlýsingum. Konurnar í
bókinni eru engar lufsur heldur viljasterkar,
sérvitrar og hver um sig einstök á sinn hátt. Líf
þeirra er barátta og þær sigra sannarlega ekki
alltaf en þær berjast af mikilli þrautseigju fyrir
tilveru sinni. Í öllum þessum kvennafansi er svo
erfiður og nær óþolandi karlmaður, Esteban
Trueba, sem segir hluta af þeirri miklu sögu sem
rakin er í verkinu. Það er enginn leikur að hafa
ógeðfellda persónu sem sögumann í skáldverki
en Allende tekst það fremur vel, en fyrirmynd
persónunnar mun vera afi hennar.
Hið yfirskilvitlega kemur mjög við sögu.
Andar eru á stöðugt á sveimi og minna á fortíð-
ina og þeir sem lifandi eru ræða gjarnan við þá.
Hið sýnilega er einungis einn hluti raunveru-
leikans, hið yfirskilvitlega er þar annar mikil-
vægur þáttur. Allende minnir sífellt á, ekki bara
í þessu verki sínu heldur einnig öðrum, að það
eru til ýmsar víddir í tilverunni.
Ástin er ætíð fyrirferðarmikil í verkum Al-
lende og Hús andanna er löðrandi í ástríðum.
Mikill og vaxandi þungi færist síðan í verkið
þegar á líður og verið er að lýsa valdaráninu í
Síle, en forseti landsins, Salvador Allende, var
frændi Isabel Allende.
Hús andanna stendur vel undir því að
flokkast sem erlend klassík. Þetta er við-
burðarík saga sem fáum ætti að leiðast, hvað
sem líður umsögnum Bolanos og Blooms.
Isabel Allende og Thor Vilhjálmsson - Höfundur og þýðandi á Bókmenntahátíð í Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristján G.
Fjörugir andar
snúa aftur
Hús andanna, hin vinsæla skáldsaga Isabel Allende, hefur
verið endurútgefin í þýðingu Thors Vilhjálmssonar.
Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is