SunnudagsMogginn - 13.03.2011, Side 45
13. mars 2011 45
É
g er iðulega með 1-2
bækur á náttborðinu,
en lestrarhraðinn
ræðst nú mikið af
þreytustiginu þegar ég loksins
fer í rúmið. Ég var að klára
bókina Born to Run eftir
bandaríkjamanninn Chri-
stopher McDougall, sem er
flott bók fyrir hlaupagikki.
Hann fjallar vítt um hlaup út
frá kynnum ultramaraþon-
hlaupara og Tarahumara in-
diána í Mexíkó, sem þekktir
eru fyrir ótrúlega lang-
hlaupagetu. Bókin er þræl-
skemmtileg aflestrar og stút-
full af misgagnlegum fróðleik
um líffræði hlaups og hlaupa-
tækni. Það eru til dæmis ekki
margir sem vita að til eru al-
varlegar þróunarkenningar um
að frummenn hafi veitt antil-
ópur í Afríku í hundruð þús-
unda ára með því að skokka
þær til dauða!
Nú er ég hinsvegar að lesa
Morgunengil eftir Árna Þór-
arinsson, sem byrjar ágætlega.
Annars gengur það hægt því
ýmsar greinar um vistvæni og
kennslu í vistvænum arkitekt-
úr eru að þvælast fyrir fag-
urbókmenntunum. Bæði er ég
að fara að kenna efnið upp í
Listaháskóla, en það tengist
líka vinnu minni í stýrihópi
fyrir verkefnið Vistmennt og
vinnu í tengslum við Vist-
byggðaráð. Vistmennt snýst
um að þýða og staðfæra
kennsluefni í vistvænum
byggingavenjum fyrir íslensk-
ar aðstæður og Vistbyggðaráð
er að vinna að skilgreiningu á
vistvænum aðstæðum á Ís-
landi. Þannig fæ ég voða mikið
úr hverjum lestri, en þar sem
þetta er að einhverju leyti
netsurf, þá er þetta nú mis-
gagnlegt.
Á undan virðist ég hafa svo
verið í þemanu myndlist og
bókmenntir: Las nokkurn
veginn í röð og bland bæk-
urnar Player One eftir David
Coupland, sem er starfandi
conseptlistamaður og rithöf-
undurinn sem lagði til hug-
takið „Generation X“. Oft
góður, en ekki sérstaklega í
þessari. Svo las ég The Orien-
talists sem er eiginlega
myndabók um evrópska mál-
ara sem ferðuðust um Aust-
urlönd nær á 19.öld og máluðu
það sem fyrir augu bar. Ég
náði í hana á flottri sýningu
um sama efni í Konunglega
Listasafninu í Brussel í desem-
ber. Loks var það skáldsagan
Konur eftir Steinar Braga, sem
fjallar á frekar andstyggilegan
máta um konur og nútímalist
(ég er nú ekki viss um að Jón
Yngvi félagi minn kaupi þessa
greiningu).
Lesarinn Halldór Eiríksson, arkitekt
Langhlaup og
vistmennt
Rithöfundurinn Steinar Bragi Guðmundsson.
Morgunblaðið/Ómar
Í
tilefni af alþjóðadegi
kvenna fyrir skemmstu
var birt ýmisleg tölfræði
um karla og konur. Þar á
meðal var sú forvitnilega stað-
reynd að konur eru 67% allra
handhafa bókasafnsskírteina á
Borgarbókasafninu sem er
óhætt að túlka svo að þær lesi
meira, eða að þær langar í það
minnsta meira til að lesa en
karlana. Það rennir og stoðum
undir þá staðhæfingu bókaút-
gefenda sem ég hef rætt við að
konur lesi, en karlar síður.
Fyrir stuttu rifjaði vefritið Sa-
lon líka upp að í könnun sem
gerð var við Queen Mary há-
skólann í Lundúnum fyrir
nokkrum árum kom fram að
karlar lásu helst bækur eftir aðra
karla (80% bóka sem karlar lásu
voru eftir karla), en konur
höfðu ekki eins þröngt sjónar-
horn: þær voru jafn líklegar til
að lesa bækur eftir konur og
karla. Þetta rímar vel við það
sem Dagný Kristjánsdóttir sagði
hér í blaðinu fyrir viku: „Karlar
lesa helst bækur eftir karla, en
konur lesa bækur eftir bæði
konur og karla. Það má því segja
að allir lesi karlana en bara kon-
urnar konur.“
Fyrir þessu geta vitanlega
verið margar ástæður, til að
mynda sú að konur skrifi lélegri
eða leiðinlegri bækur en karlar,
bækur eftir konur séu ekki
markaðssettar á sama hátt og
bækur karla, þær séu með
Konur lesa bækur
’
Líklegasta skýr-
ingin er þó sú
gamla innræt-
ing að allir alvöru
listamenn séu karlar.
Orðanna
hljóðan
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
kápur sem höfði síður til karla
en kvenna og svo má lengi telja.
Líklegasta skýringin er þó sú
gamla innræting að allir alvöru
listamenn séu karlar og því líti
menn óvart framhjá konum,
gleymi að hafa þær í huga og
telji ósjálfrátt að þeirra bækur
séu lakari en bækur karla.
Hér er við hæfi að vitna frekar
í orð Dagnýjar: „Ef þetta heldur
áfram er langt í land með að
konur sem eru rithöfundar nái
þeirri áheyrn og þeirri virðingu
sem þær hafa barist svo hart
fyrir.“
LISTASAFN ÍSLANDS
Söfn • Setur • Sýningar
HLJÓÐHEIMAR 26.2. - 22.5. 2011
Salur 2
LAUGARDAG KL. 14
EVP / UPPTÖKUR ÚR LJÓSVAKANUM;
Hljóðgjörningur eftir Hilmar Örn Hilmarsson.
SKRUÐ - Innsetning eftir Sigurð Guðjónsson, stendur til 13. mars.
VIÐTÖL UM DAUÐANN 26.2. - 22.5. 2011
Salur 1
ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
Allir velkomnir! www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
„Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“. Sýning um æsku og
lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd
Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og
ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla
fjölskylduna.
Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009.
Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi.
Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri
lengd.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn Reykjanesbæjar
ÞRYKKT, samsýning með
sögulegu ívafi.
16 íslenskir grafíklistamenn.
Byggðasafn Reykjanesbæjar:
Völlurinn, sögusýning
Bátasafn Gríms Karlssonar:
100 bátalíkön
Opið virka daga 12.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
GUNNAR MAGNÚSSON ´61-´78
(11.2. - 29.5. 2011)
HÚSGÖGN Í HÖRPU
- samkeppnistillögur
(14.1. - 13.3. 2011)
Síðasta sýningarhelgi
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-17
KRAUM og kaffi
Garðatorgi 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ASÍ
Tvær sýningaropnanir
laugardaginn 12. mars kl. 15
Ásmundarsalur:
Brynhildur Þorgeirsdóttir
HUGARLUNDUR
Gryfja:
Jón Henrysson
ÞOLGÆÐI
Opið 13-17, nema mánudaga.
Aðgangur ókeypis.
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
Þjóðbúningadagur
Sunnudaginn 13. mars kl. 14
Leiðsögn á ungversku
Sunnudaginn 13. mars kl. 14
Kvon
Ný sýning laugardaginn 12. mars
Þjóð verður til - Ljósmyndari Mývetninga – Guðvelkomnir,
góðir vinir! – Stoppað í fat – Útskornir kistlar
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga nema mánudaga 11-17
12. febrúar – 13. mars 2011
Síðasta sýningarhelgi
Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands
Libia Castro og Ólafur Ólafsson
Sunnudagur 13. mars kl. 14
Sýningarstjóraspjall
Hanna Styrmisdóttir
Opið 12-17, fimmtudaga 12-21,
lokað þriðjudaga
www.hafnarborg.is
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis