SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Side 12
12 24. júlí 2011
Mánudagur
Toshiki Toma Saki
Kumagai, stelpan
sem skoraði síðasta
mark í HM keppni í
gær, er frá Makomanai-Minami bæ
í Sapporo-borg, en þarna búa for-
eldrar mínir og ég var þar líka síð-
astu tvær vikur. Vissi ekki af þessu,
en gaman! Mamma mín sagði mér í
símtali í morgun að bærinn væri í
„hátíð“...
Miðvikudagur
Víkingur Heiðar Ólafsson Rach 3
og Goldberg. Lífið gæti verið verra.
Edda Björg Eyjólfs-
dóttir Eftir að hafa átt
saman pappírs, bóm-
ul, leður, blóma, tré,
sykur, ullar og brons
þá eigum við hjónin í dag 9 ára leir-
brúðkaup.
Fimmtudagur
Þórarinn Eldjárn
Kæru vinir. Farið
inn á http://
tinyurl.com/4yb529p
og heitið á mig og
aðra sem hlaupa fyrir Minning-
arsjóð Kristjáns Eldjárns gítarleik-
ara í Reykjavíkurmaraþoni 2011.
Fésbók
vikunnar flett
Mér skilst að vinsælasti sími á Ís-
landi nú um stundir sé Samsung Ga-
laxy S II sem margir segja besta
Android-símann og ýmsir besta
snjallsímann yfirleitt. Hann kostar þó
sitt og þá er spurning hvort ekki sé
hægt að byrja með einhvern aðeins
ódýrari, til að mynda Nexus S, sem
Samsung framleiðir í samvinnu við
Google.
Eins og sjá má á myndinni er Nex-
us S svipaður Galaxy S í útliti, þ.e.
eldri gerðinni, og vélbúnaður er líka
áþekkur. Hann er þó rúnnaðri, tals-
vert þykkari um sig og heldur þyngri.
Í hann vantar líka ýmislegt sem er í
Galaxy S, hvað þá í Galaxy S II, og
til að mynda er ekki í honum rauf fyr-
ir minniskort. Hraðinn í honum er þó
fínn, enda nýjasta útgáfa af Android
á honum, skjárinn í góðu meðallagi
og flest hægt að gera með honum
sem hægt er með dýrari símum.
HP 2310ti er ekki bara
snertiskjár, hann er þrælf-
ínn 23" tölvuskjár með
16:9 sniði. Grunnupplausn
á honum er 1920 x 1080 díl-
ar, skerpa 1000:1, sjón-
arhorn 160° lárétt og lóð-
rétt, VGA-tengi og DVI-D
tengi, innbyggðir hátalarar
og styrkstillir framan á skján-
um. Hann er nokkuð þungur,
rúm átta kíló, enda er hann
heldur þykkari en hefðbundnir
skjáir, 8,4 sm, 57,3 sm á
breidd og 35,9 á hæð.
Það er stuðningur fyrir snert-
iskjái í Windows 7 og þá fyrir
flest það sem menn vilja gera á
slíkum skjám, eins og að draga
hluti til með fingrunum, stækka
myndir og síður með því að færa
tvo fingur í sundur, aukinn hraði
ef maður hreyfir fingurna hraðar
og svo má telja. Snertiskjáir eru
þó mismunandi hvað þetta varðar og
ekki skilja þeir allir slíkar snertingar,
en HP 2310ti skilur allt.
Ekki er bara fínn stuðningur við snertiskjái í Windows 7 held-
ur er hægt að bæta við ókeypis svonefndri Touch Pack-
viðbót fyrir Windows 7 og þá fylgja leikir og sitthvað
með, hægt er að spila töflu-
leik, leika sér með
fiska og bolta,
skoða heims-
kort ýmist
sem þrí-
víðan hnött
eða sem tví-
víð landa-
kort, hægt
að sýsla
með
myndir og
svo má
telja.
Stundum henta mús og lykla-
borð óneitanlega betur er
snertiskjár, til að mynda þegar
maður er að skrifa græjuumfjöllun, en það er ótalmargt sem verður
miklu þægilegra og skemmtilegra þegar hægt er að snerta skjáinn
og hvern hefur ekki dreymt um að geta verið með tvær mýs í gangi
í einu? Tónlistarforrit er augljóst dæmi þar sem hægt er að nota
báðar hendur og einnig ýmis myndvinnsla og teikniforrit og svo
náttúrlega leikir.
Snertu skjáinn!
Um leið og menn komast í tæri við snertiskjái átta þeir sig á því hvað mús og lykla-
borð takmarka í raun það sem hægt er að gera á tölvum og hve miklu fljótlegra
væri að gera sitthvað ef maður gæti notað fingurna. Þá skiptir maður út gamla
skjánum fyrir snertiskjá, hvað annað?
Græjur
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Samsung Nexus S
Má bjóða þér að-
eins ódýrari til að
byrja með?