SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Blaðsíða 31
24. júlí 2011 31 H ildur Eir Bolladóttir er fædd þann 25. apríl árið 1978 í Laufási við Eyjafjörð Þar sleit hún barns- skónum í hópi sex systkina, í skjóli Lauf- áshnjúks og Kaldbaks við móðurlegan söng æðarkollunnar og í moldarbeði kartöflugarðanna, eins og hún orðar það svo ljóðrænt sjálf. Hildur var 14 ára þegar hún flutti ásamt foreldrum sínum séra Bolla Þóri Gúst- avssyni og Matthildi Jónsdóttur að Hólum í Hjaltadal þar sem faðir hennar tók við embætti vígslubiskups. Hildur stundaði framhaldsskólanám við báða menntaskóla Ak- ureyrar, fyrst í MA þar sem hún fékk félagslegri þörf sinni fullnægt og síðan í VMA þar sem hún kepptist við að vinna upp námið sem ekki gafst tími til að sinna í MA! Hún lauk stúdentsprófi frá VMA, kenndi einn vetur í Brekkuskóla á Akureyri en skráði sig svo í guðfræði við HÍ 2000 og lauk þaðan embættisprófi 2005. Hildur var vígð til prestsþjón- ustu við Laugarneskirkju árið 2006 en tók við embætti prests við Akureyrarkirkju á vordögum 2010. Hildur er gift Heimi Haraldssyni náms- og starfsráðgjafa og eiga þau tvo syni, Harald Bolla níu ára og Jónatan Huga, þriggja ára. Velti því fyrir mér hvort ég ætti að verða prestur, skáld eða fiðluleikari. Fiðludraum- urinn endaði skjótt og varð það eflaust til að bjarga geðheilsu systkina minna. Ég kom heim svona klippt, viku eftir að við Heimir giftum okkur. Frá þeirri stundu vissi hann að líf hans með mér yrði aldrei mjög fyrirsjáanlegt! Ég hef alltaf tekið sjálfa mig frekar hátíðlega og sett markið hátt eins og sést á þessari mynd. Foreldrar mínir eru hinir virðulegustu en ég er eins og Ingjaldsfíflið í bakgrunni. Með systrum mínum, Hlín, Jónu Hrönn og Gerði á skírnardaginn 17. júní árið 1978. Jóna systir var fermd sama dag, þannig að við deildum athygl- inni bróðurlega á milli okkar. Ræturnar toga af krafti norð- ur. Gústav Geir er myndlist- armaður og rekur Verksmiðj- una á Hjalteyri ásamt konu sinni Veronique og fleirum. Fjölskyldan fyrir ári, þá nýflutt til Akureyrar. Þetta fyrsta ár okkar fyrir norðan hefur verið mikil blessun og gleði, við erum algjörir luk- kugrísir, við Heimir, og í kringum okkur er svo margt yndislegt fólk. Af presti ertu komin Hildur Eir Bolladóttir frá Laufási, prestur í Akureyrarkirkju, gluggar í fjölskyldualbúmið. Nafnarnir Haraldur Bolli og Bolli Þórir. Þarna er pabbi orðinn mjög veikur en það var þrennt sem heilabilunin gat aldrei rænt hann, og það var trúin á góðan Guð, húmor og gott hjartalag. Haraldur Bolli með Matthildi Bjarnadóttur systurdóttur minni á jólum. Matthildur er í guðfræði, þriðja kynslóð fjöl- skyldunnar er komin í deildina. Við Bolli bróðir, sem er nú prestur í Laufási. Við erum yngst af systkinunum og vorum mest saman í æsku, deildum meira að segja herbergi um tíma, við getum stundum hleg- ið svo mikið að við grátum. Við Heimir giftum okkur eftir eins árs sam- band, en ég hygg að skaparinn hafi þó haft áhrif á þennan ráðahag því betri og skemmti- legri eiginmaður er vandfundinn. Yngri sonur okkar Heimis, Jónatan Hugi. Hann fæddist nokkrum dögum eftir að pabbi dó, mikið kærleiksblóm og friðarsinni með ríka réttlætiskennd. Að störfum í fjölskylduguðsþjónustu í Akureyrarkirkju, þar sem ég er að segja frá Jesú. Þegar öllu er á botnin hvolft er það mikilvægasti þáttur starfsins, að segja biblíusögur, þær hafa mann- og samfélagsbætandi boðskap að geyma. Myndaalbúmið Á brúðkaupsdaginn 18.júní árið 2000. Jóna systir gifti okkur Heimi en pabbi leiddi hreiðurböggulinn inn kirkjuna, upp frá því fór hann að veikj- ast af heilabilun sem dró hann til dauða árið 2008. Við söknum hans öll alveg hræðilega mikið, hann var alltaf Guðs engill.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.