SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Qupperneq 37

SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Qupperneq 37
24. júlí 2011 37 hennar. Oprah hóf vinnu í sjónvarpi árið 1974 sem fréttamaður og vann til nokk- urra verðlauna fyrir frammistöðu sína. Þeir sem störfuðu með henni sögðu hana hafa verið fremur lélegan fréttamann, ef hún átti að fjalla um eldsvoða fór hún á staðinn en kom svo í vinnuna og fór í símann til að leita að aðstoð fyrir fjöl- skylduna sem hafði misst heimili sitt. Þegar hún fékk svo tækifæri til að sjá um morgunþátt í sjónvarpi fór hún að vekja athygli. Hún var einlæg, algjörlega óhrædd við að spyrja kjánalegra spurn- inga og náði afar góðu sambandi við við- mælendur sína. Henni var boðið að vinna að eigin spjallþætti í Chicago og flutti þangað. Þar varð hún ástfanginn af plötu- snúð. Hann var kvæntur en ástarsam- bandið stóð í fimm ár. Á þessum tíma neytti hún eiturlyfja. Seinna átti annar ástmaður hennar, sem hún bjó með í fimm mánuði, eftir að lýsa kókaínneyslu hennar. Frægð og frami Árið 1985 lék hún í mynd Steven Spiel- bergs, Color Purple og var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Hún ferðaðist um Bandaríkin og kom fram í fjölmiðlum til að kynna myndina. Þetta var gríðarleg auglýsing, ekki bara fyrir myndina held- ur einnig fyrir hana sjálfa. Á næstu árum varð hún einn vinsælasti þáttastjórnandi Bandaríkjanna og auk þess vellauðug. Í þáttum sínum ræddi hún heimilisofbeldi, sambönd, heilsu, andleg málefni, bækur og kvikmyndir. Bókaklúbbur hennar naut mikilla vin- sælda og jók bókasölu í Bandaríkjunum umtalsvert. Fræga fólkið kepptist við að koma í þátt til hennar og hún hefur vingast við marga af heimsfrægum gestum sínum. Sam- skipti hennar við eigin fjölskyldumeðlimi hafa ekki verið jafn góð. Árið 1987 kom móðir hennar fram í mæðradagsþætti hennar. Oprah, sem faðmar viðmælendur sína innilega, gat ekki faðmað móður sína. Hún segir sjálf um samband sitt við móður sína: „Við höfum aldrei faðmast, aldrei sagt við hvor aðra: Ég elska þig.“ Móðir hennar hefur ekki einu sinni síma- númerið hennar. Hún hittir fjölskyldu sína einstaka sinnum og styrkir fjárhags- lega, en það er engin sérstök vænt- umþykja sem streymir frá henni til þeirra sem eiga að standa henni næst. Bróðir hennar Jeffrey lést úr eyðni og Patricia, systir hennar, lést 42 ára af völdum of stórs lyfjaskammts. Í byrjun ársins komu svo óvæntar fréttir þegar Oprah sagði frá því að hún ætti hálfsystur sem hún hefði ekki vitað af. Hún heitir Patricia, eins og hún látna systir Opruh. Móðir Opruh eignaðist hana þegar Oprah var níu ára gömul og bjó hjá föður sínum. Móðirin gaf barnið til ættleiðingar og sagði Opruh aldrei frá tilvist þess. Þeir sem til þekkja fullyrða að Oprah elski ekki móður sína en hún dýrkar hins vegar rithöfundinn Mayu Angelou. „Ég held að Maya Angelou hafi verið móðir mín í fyrra lífi. Ég elska hana innilega,“ segir hún. Meðal nánustu vina eru Quincy Jones, Julia Roberts og John Travolta, en nánasta vinkonan er fjölmiðlakonan Gayle King og slúðrað hefur verið um lesbískt samband þeirra. Enginn fótur virðist vera fyrir þeim sögusögnum sem særa Ophru mjög og það mikið að hún sá sig knúna til að lýsa því yfir opinberlega að hún væri ekki lesbía. Oprah gerði Gayle að ristjóra tímarits síns, O-magasine og keypti handa henni íbúð í New York, og hefur hlaðið gjöfum á þessa góðu vin- konu sína. Í rúma tvo áratugi hefur Oprah verið í sambandi með Stedman Graham en hann vann sem fangavörður og fyrirsæta þegar þau kynntust. Þau hafa ekki geng- ið í hjónaband og eru barnlaus. Rík þörf fyrir viðurkenningu Oprah er ekki alltaf auðveld í sam- skiptum. Einn starfsmaður sagði að það að vinna fyrir hana væri eins og að vera í ormagryfju. Í byrjun sjónvarpsferils síns tók hún í hönd áhorfenda í sjónvarpssal, gaf eiginhandaráritanir og leyfði mynda- tökur af sér. Smám saman hætti hún þessu. Einhverjir gesta hennar hafa sagt að hún hafi verið fremur kuldaleg við þá þegar myndavélin var ekki í gangi. Oprah hefur sagst hafa afar ríka þörf fyrir að fólk kunni vel við hana. Hún virð- ist haldin vanmáttarkennd vegna útlits síns og vaxtarlags. „Oprah án farða og ógreidd er ansi óhugguleg sjón,“ sagði rithöfundur sem kom fram í þætti henn- ar. Hún hefur farið í ótal megranir sem hafa ekki borið varanlegan árangur. „Ég þoli ekki sjálfa mig þegar ég er feit. Ég trúi ekki feitu fólki sem segist vera hamingju- samt,“ segir hún. Hún er auðugasta blökkukona heims en situr ekki á auði sínum. Gjafmildi hennar er alþekkt. Hún hleður gjöfum á vini sína og kunningja og styrkir alls kyns félög. Á ferðalagi um Afríku gaf hún fátækum og munaðarlausum börnum jólagjafir og ættleiddi tíu munaðarlaus börn á aldr- inum sjö til fjórtán ára. Þau bjuggu þó áfram í Afríku þar sem hún sendi þau í einkaskóla og sá þeim fyrir umsjón- armönnum. Árið 2006 keypti hún handa þeim stórt hús en þegar hún kom í heim- sókn næsta ár varð hún skelfingu lostin þegar hún sá að börnin voru upptekin í farsímum, iPod og tölvum. Hún sá að hún hafði ofdekrað þau. Næsta ár sendi hún þeim ekki hauga af gjöfum heldur fékk þau til að velja fjölskyldur sem voru eins fátækar og þau höfðu verið og gefa þeim gjafir. Þegar hún hitti eitt sinn Nelson Man- dela spurði hún hann hvað hún gæti gefið honum og landi hans. „Byggðu skóla,“ sagði hann og hún samþykkti það. Stúlknaskóli reis í Suður-Afríku fyrir 152 fátækar stúlkur. Góðverkið snerist nokk- uð í höndum hennar þegar forstöðukona á heimavist skólans var sökuð um að beita fjórtán nemendur kynferðislegu ofbeldi. Fyrir einhverjum árum tók sig saman hópur fólks sem vildi að Oprah fengi Friðarverðlaun Nóbels. Safnað var undir- skriftum sem senda átti til Nóbelsnefnd- arinnar. Undirtektirnar voru ekki jafn góðar og búist var við. Fjörutíu þúsund manns skrifuðu undir en fjölmargir, að stórum hlutu blökkumenn, neituðu, meðal annars vegna þess að Oprah væri ekki gift sambýlismanni sínum og sýndi með því slæmt fordæmi. Þótt fjarska ólíklegt sé að Oprah eigi eftir að fá friðarverðlaun Nóbels er enginn vafi á því að hún hefur sýnt á glæsilegan hátt að hægt er að snúa baki við slæmri fortíð og snúa lífi sínu upp í sigur. Oprah og Nelson Mandela. Byggðu handa mér skóla, sagði hann og hún gerði það. Reuters Oprah á fjölda þekktra vina og einlæg vinátta er milli hennar og leikkonunnar Juliu Roberts. Reuters ’ Á síðustu stundu hætti hún við að gefa ævisöguna út vegna viðkvæmra upp- lýsinga sem þar var að finna um erfiða fortíð, misnotkun í æsku, þungun, barnsdauða, fíkniefnaneyslu og ást- arsamband við giftan mann

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.