SunnudagsMogginn - 24.07.2011, Qupperneq 41
24. júlí 2011 41
LÁRÉTT
1. Klandrið hjá Önnu ruglar menn í leiðangri. (12)
7. Ljómi torg einhvern veginn út af steini. (9)
9. Má finna auk AA furðulega framleiðslu. (9)
10. Gera sívala að kryddi. (6)
12. Svimar við sund hjá Los Angeles (6)
13. Minnkaður er fyrir líknenski. (7)
14. Þýða aftur vegna vasaklúta. (5)
16. Einkar flókin gata. (6)
17. Kemur upp skýli fyrir fugla. (7)
18. Tölu pari við iðnaðarmann. (6)
19. Listi yfir stig er listi sem bændur nota. (9)
23. Ávextir sem vaxa ekki innandyra þurfa rafmagn.
(8)
26. Fljótlega verður á mörkum á bráðabirgða-
ákvæðum. (6)
28. Hannes urðar húninn með áhaldinu. (12)
30. Íhugar að víðir gefi frá sér hljóð sem lýsir vantrú.
(9)
31. Frekast endist. (5)
33. Deyr enn einu sinni út af rugli þegar prófaði. (6)
34. Bjarga nerði frá bráðgreindum út af litaðri. (7)
35. Sex skal finna með gáfu. (5)
36. Borgað hratt. (6)
LÓÐRÉTT
1. Dreitill ærsla er að sögn vegna eftirlits. (8)
2. Kjöt og slæm fara í ílát. (6)
3. Nál gast séð koma. (7)
4. Anna nær að saurga einhvern veginn frásögn.
(10)
5. Ha? Fast? Nei, nást. (6)
6. Hressir hvass endi á vopni. (10)
8. Árásargjarn án asa verður litaður (8)
11. Hefjist þrengsli upp með tæki. (10)
15. Prúða át einhvern vegin fyrir krotað. (7)
20. Gaf ríkum næstum því erlenda. (10)
21. Yfirstéttin fær þúsund fyrir bandið. (9)
22. Lofið saman nafnorðið. (9)
24. Sleit í einni tilhneigingu til að vera svipað. (10)
25. Það fara ofan á áhald er heimskuleg athöfn. (8)
27. Fugl lem með ávexti. (8)
29. Ógreiddir voru fluttir. (7)
32. Latneskur og grískur bókstafur búa til herbergi.
(5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta Morg-
unblaðsins, Hádegismóum 2,
110 Reykjavík. Frestur til að skila
úrlausn krossgátu 24. júlí rennur
út 28. júlí. Nafn vinningshafans
birtist í blaðinu 31. júlí. Heppinn
þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi
krossgátunnar 17. júlí er Óskar H. Ólafsson, Da-
lengi 2, Selfossi. Hlýtur hann að launum bókina
Fimbulkaldur eftir Lee Child. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Hjörvar Steinn Grétarsson náði
sínum öðrum áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli þegar hann
varð í 3.-7. sæti á opna mótinu í
Suður-Wales á dögunum.
Hjörvar hlaut 6½ vinning af níu
mögulegum. Sigurvegarar urðu
þeir Peter Wells og Keith Arkell
sem hlutu 7 vinninga, en þeim
fyrrnefnda var dæmdur sigur á
stigum. Búast má við því að
Hjörvar nái lokaáfanganum að
alþjóðlega titlinum á þessu ári,
en á verkefnalista framundan er
Evrópukeppni taflfélaga og
jafnvel Evrópukeppni landsliða.
Auk Hjörvars tefldu fjórir
ungir íslenskir skákmenn á
mótinu í Wales og stóðu sig allir
með mikilli prýði. Þannig var
árangur Arnar Leós Jóhanns-
sonar eftirtektarverður, en
hann hlaut 6 vinninga og hafn-
aði í 8.-9. sæti af 69 kepp-
endum. Eyjamaðurinn Nökkvi
Sverrisson hlaut 5 vinninga og
varð í 21.-25. sæti, Guðmundur
Kristinn Lee fékk 4 vinninga og
varð í 37.-49. sæti. Óskar Long
Einarsson og Birkir Karl Sig-
urðsson hlutu 3½ vinning og
urðu í 50.-57. sæti.
Hjörvar tefldi margar
skemmtilegar skákir á mótinu
en stysta sigurskákin kom í
fimmtu umferð:
Opna Suður-Wales-mótið
2011:
Hjörvar Steinn Grétarsson –
Jack Rudd
Benony – byrjun
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 c5 4.
d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rf3 g6 7.
Da4+!?
Athyglisverður leikur sem
getur reynst erfður viðfangs ef
menn eru ekki með á nótunum.
Algengara er 7. Bf4, 7. Rd2, 7. e4
eða 7. g3.
7. … Rbd7
7. … Bd7 er vel svarað með 8.
Db3.
8. Bf4 a6 9. e4 Rh5 10. Bg5
Dc7?
Betra var 10. … Be7.
11. g4! h6
Riddarinn stendur hörmulega
á g7 en ekki gengur 11. … Rgf6
vegna 12. Bxf6 og riddarinn á d7
er leppur.
12. gxh5 hxg5 13. hxg6 f6
14. e5!
Að leika peði beint ofan í
þrælvaldaðan reit kom margoft
fyrir í skákum Kasparovs. Hug-
myndin í þessu tilviki er að
rýma e4-reitinn fyrir ridd-
arann. Hér kemur til greina að
leika 14. … g4 sem Hjörvar
hugðist svara með 15. exf6!
gxf3 16. g7 o.s. frv.
14. … dxe5 15. Re4 b5 16.
Bxb5 axb5 17. Dxa8 g4 18. Rfd2
Db7
Eða 18. … Rb6 19. Da5.
19. Dxb7 Bxb7 20. g7!
– og svartur gafst upp.
Magnús efstur í Biel
Magnús Carlsen hefur forystu
þegar tefldar hafa verið þrjár
umferðir í stórmeistaraflokki
skákhátíðarinnar í Biel í Sviss.
Sex skákmenn tefla tvöfalda
umferð og hefur Magnús hlotið
2½ v. eða 7 stig, en á þessu móti
hefur þriggja stiga kerfið fyrir
sigur verið tekið upp. Moroze-
vich kemur næstur með 2
vinninga og 5 stig og síðan
Alexei Shirov sem er með 1½ v.
og 4 stig. Magnús hóf mótið
með því að vinna heimamann-
inn Pelletier og síðan lagði hann
Shirov að velli í aðeins 33 leikj-
um og var ekki langt frá því að
leggja Morozevich í 3. umferð
en skákinni lauk með jafntefli.
Í heimsmeistarakeppni lands-
liða sem fram fer þessa dagana í
Ningbo í Kína hafa Armenar með
Lev Aronjan á 1. borði náð
öruggri forystu eftir fimm um-
ferðir með 8 stig og 13½ vinning
af 20 mögulegum. Rússar koma
næstir með 7 stig og 12 vinninga
og í 3. sæti eru Ungverjar með 7
stig og 11½ vinning.
Alls taka tíu lið þátt í þessari
keppni, þátttökuréttur miðast
við fimm efstu lið frá síðasta Ól-
ympíumóti og fimm „heims-
álfulið“. Íslendingar komust í
þessa keppni þegar hún var
haldin í Luzern árið 1993.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Annar áfangi Hjörvars
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta