SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Qupperneq 8
8 4. september 2011
Dasha Zhukova, ritstjóri hins nýja tímarits Garage,
er þrítugur Rússi, dóttir óligarkans og vopnasalans
Alexanders Radkins Zhukovs og ástkona auðkýf-
ingsins og Íslandsvinarins Romans Abramovitsj,
sem meðal annars á enska knattspyrnufélagið
Chelsea. Eiga þau saman einn son, tæplega tveggja
ára. Zhukova var áður í nánu vinfengi við rússneska
tennisleikarann Marat Safin.
Foreldrar Zhukovu skildu þegar hún var tíu ára og
flutti stúlkan þá með móður sinni, sem er prófessor í
sameindalíffræði, til Bandaríkjanna. Hún brautskráð-
ist með láði frá Kaliforníuháskóla með gráður í bók-
menntum og slavneskum fræðum. Eftir það flutti hún
aftur til Moskvu og þaðan til Lundúna en býr nú í Los
Angeles.
Zhukova hefur lengi verið mikil áhugakona um
samtímalist og -menningu og setti fyrir nokkrum ár-
um á laggirnar stofnun í heimalandi sínu sem hefur
það hlutverk með höndum að koma nútímalist á
framfæri. Tímaritið Garage er rökrétt framhald á því
starfi. Zhukova ritstýrði áður tískuritinu Pop.
Hefur brennandi áhuga
á samtímalistum
Dasha Zhukova býr með Roman Abramovitsj.
D
reymir þig, kona góð, um að fæða
barn gegnum listaverk eftir Damien
Hirst? Þá skaltu fara að dæmi hinnar
23 ára gömlu Lundúnameyjar Shaunu
Taylor en hún lét á dögunum flúra fiðrildi eftir
hinn heimskunna listamann á skapabarma sína.
Gjörningurinn var að undirlagi Döshu Zhu-
kovu, ritstjóra glænýs lista- og tískutímarits,
Garage, en hún fékk ýmsa valinkunna listamenn
til að hanna listaverk sem síðan yrði flúrað á
„lifandi striga“, eins og þar stendur. Ljósmyndir
af verkunum munu prýða fyrsta tölublað hins
nýja og framsækna tímarits sem hleypt verður af
stokkunum í næstu viku.
Ekki minni menn en Jeff Koons, Jake og Dino
Chapman, John Baldessari og Paul McCarthy
tóku áskoruninni en eins og við var að búast
hefur framlag Hirsts valdið mestri geðshrær-
ingu. Var einhver að tala um skapandi lista-
menn?
Verk Hirsts, það er sköp Shaunu Taylor, mun
prýða forsíðu tímaritsins en eins og sjá má á
meðfylgjandi mynd er búið að festa veglegan
fiðrildislímmiða yfir sem lesendur verða að
draga í burtu til að berja verkið augum. „Dragið
rólega frá og skoðið,“ stendur litlum stöfum við
ör sem vísar á límmiðann á forsíðunni.
Þegar örlar á titringi í blaða- og bókabúðum í
Bretlandi og hinn umsvifamikli smásöluaðili WH
Smith hefur þegar lýst því yfir að hann muni
ekki taka tímaritið til sölu.
Ekki upplifað meiri sársauka
Hirst valdi sjálfur húðflúrlistamanninn Mo
Coppoletta til að flúra verkið á Taylor en fiðr-
ildið mun vera grænt og svart að lit. Þurfti
blómarósin hugdjarfa að setjast í tvígang í stól-
inn hjá honum. „Ég stóð í þeirri von að þetta
yrði bara notalegt en þegar á hólminn var komið
var þetta mesti sársauki sem ég hef upplifað. Ég
hélt ég myndi falla í öngvit,“ trúði hún dag-
blaðinu New York Post fyrir.
Það var þó þess virði en Taylor er hæstánægð
með útkomuna. „Þetta er geðveikt. Ég hefði
verið galin að taka ekki þátt í þessu verkefni. Ég
er með listaverk á sköpum mínum. Engin kona
hefur fram að þessu getað sagt að hún hafi alið
barn gegnum listaverk eftir Damien Hirst. Það
get ég ef ég eignast barn.“
Skemmst er að minnast þess að Hirst var kall-
aður sadisti fyrir nokkrum árum þegar hann
skóp listaverk úr vængjum þúsunda hitabelt-
isfiðrilda. Ekki er ólíklegt að þær raddir geri
ó-sköp úr uppákomunni nú.
Á umliðnum árum hefur það verið íþrótt að
velta fyrir sér hvað sé list og hvað ekki. Vænt-
anlega verður þetta nýja sköpunarverk Hirsts
ekki til þess fallið að lægja öldur í þeim efnum.
Verkið vekur líka spurningar um það hver eigi
listaverkið og hvers virði það sé. Alltént er varla
hægt að hugsa sér mikið persónulegra listaverk.
Auðvitað snertir fiðrildi Hirsts líka húðflúr-
menninguna, sem tröllriðið hefur heimsbyggð-
inni á undanförnum misserum. Er þetta áleitna
verk til marks um að hún sé mettuð?
Forsíða fyrsta tölublaðs Garage. Allt er komið í bál og brand.
Húðflúr sem
skiptir sköpum
Enn á ný gengur listamaðurinn
Damien Hirst fram af fólki
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Damien Hirst kallar ekki allt ömmu sína í listinni.
Reuters
Damien Hirst er 46 ára gam-
all breskur listamaður sem
öðlaðist heimsfrægð á sein-
asta áratug liðinnar aldar.
Hermt er að hann sé auð-
ugasti núlifandi myndlist-
armaður heims en eignir hans
munu vera metnar á 215 millj-
ónir sterlingspunda. Árið
2008 seldist sýning hans,
Beautiful Inside My Head For-
ever, í heilu lagi fyrir 111 m.
punda á uppboði hjá Sothe-
by’s.
Dauði hefur löngum verið mið-
lægur í verkum Hirsts en
hann vakti fyrst athygli fyrir
verk þar sem dauð dýr komu
við sögu, svo sem hákarl,
sauðkind og kýr. Varðveitir
hann skepnurnar gjarnan í
formalíni, jafnvel aflimaðar.
Hirst hefur alla tíð verið um-
deildur og margoft verið
vændur um brot á höfund-
arrétti, bæði af listamönnum
og blaðamönnum á prenti.
Slíkt mál hefur þó aðeins einu
sinni endað fyrir dómstólum
og lauk því með sátt.
Hirst gerði allt vitlaust eftir
hryðjuverkaárásirnar 11.
september þegar hann ósk-
aði gerendunum til hamingju
með vel heppnað verk. Viku
síðar baðst hann velvirðingar.
Hákarlinn frægi eftir Hirst.
Auðugur og umdeildur
Miðasala 568 8000
borgarleikhus.is
Áskriftar-
kortið mitt
Kjartan Darri Kristjánsson,
nemi