SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Qupperneq 17
stundum pirruð. Og fyrir vikið birtist aldrei neitt!“
Hún hallar sér fram á borðið.
„En ég hef mikla reynslu af eldgosum, þó að maður þurfi ekki sí-
fellt að tala um það. Auðvitað var ömurlegt þegar rokið og myrkrið
var mest, en við tókum þá ákvörðun að láta það ekki buga okkur
eða hafa neikvæð áhrif á okkur.“
„Við búum á Íslandi!“ segir Magnús með áherslu.
„Og við sáum ekki Gamla fjósið, þó að það væri rétt spölkorn frá
heimilinu, og þurftum að fara á bíl á milli húsa. En ég bjó í Vest-
mannaeyjum þegar Surtseyjargosið var og flúði Vestmannaeyja-
gosið. Þegar maður hefur flúið heimili sitt einu sinni út af eldgosi,
þá veit maður að allt verður gott á eftir og því hafði þetta ekki eins
mikil áhrif á mann.“
– Þess vegna er eldfjallasúpa á matseðlinum?
„Já, súpan var líka vinsæl þegar margt fólk var hérna eftir gosið
og það varð kveikjan að því að selja hana með nautakjötinu okkar.“
Það sem ég kann að baka
Á Hvassafelli eru 65 mjólkandi kýr og 200 ungneyti. „Það er nóg af
kjöti,“ segir Eygló. „Og þú getur valið beint úr haganum, eins og
þegar þú færð þér humar,“ bætir hún við – í gamni að sjálfsögðu.
„Svo erum við með örfáar kindur og hesta,“ segir Magnús.
– Ég hjó eftir því að grjónagrautur er á matseðlinum. Er hann
ljúffengur?
„Ég vona það,“ segir Heiða og hlær.
– Hvert sækið þið uppskriftirnar?
„Fyrst ætluðum við að vera með heimilismat, grjónagraut og
svoleiðis, en svo var eftirspurnin mikil eftir hamborgurum. Enda
veit fólk að það fær bara kjöt og engin aukaefni.“
– Hvað um þessar dýrindis kökur?
„Þetta er bara það sem ég kann að baka,“ segir Eygló.
– Hvar lærðir þú það?
„Ekki hjá mömmu sinni,“ skýtur Heiða inn í og hlær.
„Ætli það sé ekki mótþrói,“ svarar Eygló. „Börn vilja aldrei vera
eins og foreldrarnir. Mamma er svo löt við baksturinn að ég vildi
verða góður bakari.“
Stellið á veitingastaðnum og hluti af innréttingunum var keypt á
mörkuðum í Belgíu. „Sú sem keypti það fyrir okkur flytur inn
gamla muni og selur þá í húsi í Skerjafirðinum, en býr sjálf í Skerja-
firðinum. Hún kom hingað í fyrrakvöld og þá með þessa könnu í
innflutningsgjöf,“ segir Heiða og bendir á hillu á veglegum skáp á
miðju gólfi, sem notaður er undir gamalt og fallegt stell.
„Annars teiknaði arkitektastofan ASK fyrir okkur útlínurnar að
innréttingunum, Júlía Andersen innanhúshönnuður, en þetta var
þó mestmegnis af fingrum fram.“
Og það má búast við sælkeramat um helgar í haust í Gamla fjós-
inu. „Við stefnum að því að bjóða fýl um helgar í september og gæs
í október,“ segir Magnús. „Ætli við verðum ekki líka með sauðfjár-
afurðir, svið og slátur. Við erum að reyna að skera okkur úr og
byggja á því sem við stöndum fyrir.“
Landslagið er ægifagurt
undir Eyjafjöllum.
Gamla fjósið áður er ráðist
var í framkvæmdir.
4. september 2011 17
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Fyrsta uppboð vetrarins
Listmunauppboð
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
mánudaginn 5. september, kl. 18
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Jóhannes
S.Kjarval
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag sunnudag kl. 12–17 og mánudag kl. 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Viðar Einarsson sem er úr Togga-
fjölskyldunni í Eyjum og því kall-
aður Viðar Togga, kom færandi
hendi eftir að Gamla fjósið var
opnað með mynd af sér á sviði
ásamt John Lennon, forsprakka
Bítlanna.
Viðar er goðsögn í lifanda lífi,
mikill Bítlaaðdáandi og gjörþekkir
allt sem þeim tengist. Í tilefni af
því létu vinir hans og kunningjar
búa til þessa ljósmynd, þar sem
honum er bætt inn með Bítlunum.
Þegar Viðar sá myndina dáðist
hann strax að henni, þó að hann
kæmi ekki alveg fyrir sig hvenær
hún hefði verið tekin. Svo bætti
hann við: „Það eina sem passar
ekki er að ég hef aldrei átt svört
jakkaföt.“
Viðar, Lennon
og Bítlarnir