SunnudagsMogginn - 04.09.2011, Síða 18
18 4. september 2011
Á
lfrún Helga Örnólfsdóttir og
Saga Sigurðardóttir eru í leik-
hópnum Ég og vinir mínir sem
setti upp hina bráðskemmti-
legu sýningu Verði þér að góðu í vor.
Hópurinn er blandaður, bæði skipaður
dönsurum og leikurum, og er útkoman
kraftmikill línudans milli þessara tveggja
heima.
Það leggst vel í stelpurnar að taka þráð-
inn upp að nýju en verkið er sýnt um
helgina og þá næstu í Þjóðleikhúsinu „Ég
er búin að sakna verksins í allt sumar. Ég
held við séum öll spennt að fara aftur í
partýið okkar,“ segir Saga en sýningin
fékk góðar viðtökur áhorfenda og þrjár
tilnefningar til Grímunnar.
„Það kom okkur svo á óvart hvað það
var hlegið mikið á frumsýningunni. Við
hugsuðum: Gerðum við óvart farsa?“ segir
Álfrún en í sýningunni býður hópurinn til
samkvæmis og kannar ýmsar partýhliðar
mannlegrar hegðunar, allt frá kurteislegu
matarboði yfir í tryllta dansgleði á
djamminu.
Í fæðingu allan æfingatímann
„Maður veit ekki í raun hvaða leikrit mað-
ur er með í höndunum frá upphafi. Það er
að verða til allan æfingatímann,“ segir
Álfrún en hópurinn notast við spuna og er
að útfæra verkið fram að frumsýningu.
Sýningin hefur nú enn tekið breyt-
ingum því Álfrún og Saga hafa þurft að
víxla hlutverkum.
„Þegar við hættum var ég komin rúma
átta mánuði á leið,“ segir Álfrún en stúlk-
an Kolbrún Helga kom í heiminn þann 4.
júlí. Barnsfaðir Álfrúnar, Friðrik Frið-
riksson, er einmitt einn úr hópnum og
jafnframt leikstjóri sýningarinnar.
„Ég er núna komin sjö mánuði á leið og
um miðjan september verð ég að komast á
níunda mánuðinn eins og Álfrún var í vor.
Þetta er auðvitað algjör tilviljun en samt
svolítið skemmtilegt. Nú þegar ég fer aftur
á svið er Álfrún auðvitað fyrirmyndin
mín,“ segir Saga.
„Ef við höldum áfram að sýna þetta
verðum við að tryggja það að það verði
alltaf ólétt leikkona í hópnum,“ grínast
Álfrún.
„Ég var einmitt að spyrja mig hvort það
myndi ekki eitthvað vanta ef það væri
ekki ólétt kona í sýningunni,“ segir Saga.
„Ég var líka ólétt allt æfingatímabilið
þannig að það var alltaf ákveðinn þáttur í
verkinu. Það var ekkert verið að fela
ástandið heldur talað um það og notað. Ég
dansaði alveg á fullu þó ég væri ekki mikið
að rúlla mér á maganum. Ég fann mér leið
til að gera eins og ég gat,“ segir Álfrún.
Frábært að dansa svona lengi
„Ég fer í Álfrúnar spor í dansatriðunum.
Hún var búin að finna mjög smart leiðir til
að komast í gegnum dansatriðin, sem ég fæ
að njóta núna. Hún tekur aftur á móti við
mínu, sem ég er hætt að þora að gera. Í
einni senu brestur ófrísk kona í grát þar sem
hún er viðkvæm fyrir í þessu ástandi sínu,“
segir Saga. „Þá náttúrulega gerir ólétta kon-
an það,“ botnar Álfrún og heldur áfram:
„Mér fannst frábært að geta verið á sviðinu
svona lengi í óléttunni. Þetta er oft vandamál
að leikkonur þurfa að stíga út úr sínum hlut-
verkum af því það hentar ekki alltaf leikhús-
inu að vera með kasólétta leikkonu.“
Saga samsinnir. „Mér finnst sömuleiðis
frábært að fá að halda mínu striki með
hópnum og að við getum gert þetta áfram
saman.“
En gætu hlutirnir verið öðruvísi al-
mennt í leikhúsinu eða dansheiminum?
„Það gefur ákveðinn karakter eða dýpt í
verkið að hafa kasólétta konu í því,“ segir
Álfrún. „Ég held að fólki finnist gaman að
sjá manneskju í þessu ástandi uppi á sviði.
Af því maður sér þetta ekki svo oft þá voru
sumir sem héldu að ég væri með gervi-
bumbu! En ef þú ert með skrifað verk þá
passar það ekki alltaf inní en kannski
mætti hugsa stundum útí það að láta það
ekki stoppa sig ef leikkona eða dansari er
barnshafandi heldur finna leiðir til að láta
þetta ganga upp.“
Álfrún útskýrir að þó sumar konur lendi
í því að veikjast á meðgöngu séu barnshaf-
andi konur oftar en ekki „heilbrigðar og
geta unnið og fá jafnvel einhvern auka-
kraft. Það er oft styttra í tilfinningarnar og
maður er aðeins öðruvísi. Það getur verið
áhugaverð orka sem er skemmtilegt að
nýta og sjá á sviði. Mér finnst óléttar kon-
ur líka alltaf svo fallegar, þær hafa eitthvað
við sig.“
Alþjóðleg vandræðaheit
Sýningin í kvöld, laugardagskvöld, verður
flutt á ensku. „Það er auka-áskorun en ég
hlakka mjög til að hoppa aftur inn í
þetta,“ segir Álfrún.
Þær segja að sýningin færist
Ekkert
að fela
Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Saga Sigurð-
ardóttir bjóða til samkvæmis í Verði þér að
góðu, sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. Þær hafa
þurft að víxla hlutverkum frá í vor en þá var
Álfrún kasólétt. Hún er nú með tveggja mán-
aða stúlku en Saga er komin sjö mánuði á leið
og fetar í dansspor vinkonu sinnar.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
’
Ég held að fólki finn-
ist gaman að sjá
manneskju í þessu
ástandi uppi á sviði. Af því
maður sér þetta ekki svo oft
þá voru sumir sem héldu að
ég væri með gervibumbu.