SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Blaðsíða 8
8 30. október 2011
O
furstinn Muammar
Gaddafi réði ríkjum
í Líbíu í 42 ár.
Hann rændi völd-
um í landinu árið 1969 án þess
að úthella neinu blóði en féll
síðan í blóðugu borgarastríði
núna fyrir skömmu.
Gaddafi varð fyrir áhrifum
af arabískri þjóðernishyggju og
niðurlægjandi ósigur arabaríkj-
anna í sex daga stríðinu við
Ísrael árið 1967 varð til þess að
hann og fleiri foringjar í hern-
um fóru að undirbúa valdarán-
ið. Þegar konungur Líbíu
gekkst undir aðgerð á sjúkra-
húsi í Tyrklandi rændu þeir
völdum. Í byrjun vildi Gaddafi
leggja sitt af mörkum til að
sameina araba og sigra Ísr-
aelsmenn. Hann var mjög
hændur að forseta Egypta-
lands, Gamal Abdel Nasser, og
lagði til sameiningu ríkjanna. Í
byrjun átti hann ágætt sam-
starf við Anwar Sadat sem tók
við af Nasser árið 1970 en brátt
snerist vinátta þeirra upp í
andstæðu sína. Áhrifamönnum
í Líbíu sem voru andstæðingar
sameiningu landsins við
Egyptaland reyndu valdarán en
með aðstoð egypsku leyniþjón-
ustunnar náði Gaddafi að
brjóta þau áform á bak aftur og
hélt hann eftir það völdunum
að mestu í eigin höndum eða
fjölskyldu sinnar og nánustu
vina.
Sameiningaráform ríkjanna
urðu aldrei að veruleika og á
skömmum tíma breyttist vin-
skapur þeirra í slíkan óvinskap
að til átaka kom á milli herja
þeirra og nokkur hundruð
manns féllu árið 1977 í nokk-
urra daga stríði. Hann hataðist
svo heitt út í Sadat að þegar
hann var skotinn til bana af
lífvörðum sínum þá gaf Gad-
dafi landsmönnum sínum frí til
að geta fagnað og gerði daginn
að opinberum þjóðhátíðardegi.
Hann varð snemma óvin-
sæll á Vesturlöndum enda
hrakti hann Ítali á brott úr
landi sínu árið 1970 og sýndi
stuðning sinn við palestínska
hryðjuverkamenn í verki.
Hann lagði múslimum í Chad
og í Súdan mikið lið í baráttu
þeirra við kristna andstæðinga
sína og varð náinn vinur Idi
Amin. Hann studdi fjárhagslega
andvestrænar og andkapítal-
ískar hreyfingar úti um allan
heim. Meðal annars naut Rauði
herinn aðstoðar hans og írski
lýðveldisherinn. Hann sóttist
eftir að komast yfir kjarn-
orkuvopn og framleiddi þó-
nokkuð af eiturefnavopnum.
Líbískir leyniþjónustumenn
stóðu að sprengjuárás á diskó-
tek í Vestur-Berlín árið 1986
sem var vinsælt á meðal
bandarískra hermanna. Þáver-
andi forseti Bandaríkjanna
hefndi árásarinnar með loft-
árásum á Trípólí og Benghazi.
Óvinsældir hans á Vest-
urlöndum náðu líklegast há-
marki árið 1988 þegar leyni-
þjónustumenn hans sprengdu í
loft upp farþegaþotu Pan Am
yfir Lockerbie í Skotlandi og
létust um 270 borgarar. Við-
skiptabann var sett á Líbíu. En
við fall Sovétríkjanna fór Gad-
dafi að reyna að mýkja ímynd
sína á Vesturlöndum. Gaddafi
lét á endanum þá leyniþjón-
ustumenn sem stóðu að Loc-
kerbie-hryðjuverkinu í hendur
skosks dómstóls sem settur var
upp í Hollandi. Stjórn Líbíu
greiddi fórnarlömbunum
skaðabætur og viðskiptabann-
inu var aflétt af Líbíu árið
2001.
Þá byrjaði hægt tímabil
nokkurrar þíðu í samskiptum
Líbíu við Vesturlönd. Árið
2004 hitti Gaddafí forsætisráð-
herra Bretlands, Tony Blair.
Næstu árin var einsog þessi
fyrrum alræmdi leiðtogi Líbíu
væri tekinn í sátt. Utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna hitti
hann og helstu leiðtogar Evr-
ópuríkjanna og Evrópusam-
bandsins. Berlusconi lýsti hon-
um sem vini sínum. Árið 2009
hitti síðan forseti Bandaríkj-
anna, Barack Obama,hann og
tók í höndina á honum. Þá var
margur farinn að halda að nú
væri búið að breyta þessum
aldagamla stuðningsmanni
hryðjuverka í vin Vesturlanda.
En á örskömmum tíma
breyttist það og Vesturlönd
studdu við bakið á þeim sem
hófu uppreisn gegn honum
núna í ár. Þeir enduðu á því að
drepa Gaddafí með villimanns-
legum hætti og draga blóðugt
lík hans um götur Sirte.
Nú er hætt við að sumum
þessara leiðtoga þyki óþægilegt
að þessar ljósmyndir séu til af
þeim með Gaddafí.
Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, heilsar Gaddafí fyrir kvöldverð á
G8 fundi árið 2009.
REUTERS
Óvinur Vesturlanda
Vikuspegill
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Yfirmaður utanríkismála hjá Evrópusambandinu, Javier Solana, hitti Gad-
dafí í bedúína tjaldi í Brussel árið 2004.
Reuters
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, lýsti Gaddafí sem vini
sínum. Þessi mynd er frá fundi
þeirra árið 2009.
Reuters
Forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, hitti Gaddafí árið 2004.
Reuters
Hér er Gaddafí að spjalla við forseta Evrópusambandsins, Romano Prodi, árið 2004 þarsem hann tilkynnti að
Líbía hefði einsett sér að gegna lykilhlutverki í því að koma á friði í heiminum.