SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Page 24
24 30. október 2011
Í
herbergi inn af móttökunni í Katt-
holti liggur læða í búri ásamt fjórum
tveggja vikna afkvæmum sínum
sem sjúga móðurmjólkina af áfergju.
Þetta er ósköp venjuleg kattafjölskylda –
nema hvað hún á hvergi heima. Fjöl-
skyldan fannst yfirgefin í bílskúr, sárt
mjálmið heyrðist út á götu. Miskunn-
samur samverji sá aumur á þeim og kom í
öruggt skjól í Kattholti. Ekki er í önnur
hús að venda fyrir ketti í óskilum. Læðan
er lítið eitt skelkuð eftir hrakningana en er
óðum að ná áttum í örygginu í eina katta-
athvarfi landsins.
Því miður er þetta ekkert einsdæmi. El-
ín G. Folha K., sem ræður húsum í Katt-
holti, og Anna Kristine Magnúsdóttir, for-
maður Kattavinafélags Íslands, upplýsa að
Katthollt
Þar við
liggur lífið
kattarins
Kattholt er eina athvarfið fyrir heimilislausa
ketti á Íslandi en þangað hafa komið um 600
kettir það sem af er árinu. Starfseminni er
þröngur stakkur sniðinn sem kemur sér illa því
60 til 100 kettir eru daglega í fæði í Kattholti.
Myndir: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Þessi læða fannst ásamt
kettlingunum sínum fjórum
yfirgefin í bílskúr. Þau eru
öll að koma til.