SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Page 34

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Page 34
34 30. október 2011 V ið þingsetningu árið 1923 þótti tíðindum sæta að þá tók kona fyrst sæti á Alþingi Ís- lendinga. Brautryðjandinn var Ingibjörg H. Bjarnason, skólastjóri Kvennaskólans í Reykjavík, kjörin af landslista, sem borinn var fram af konum. Þær ákváðu að bjóða fram sérstakan kvennalista eftir að fullreynt þótti að samkomulag tækist ekki við stjórnmálaflokkana um að konur skipuðu sæti ofarlega á framboðslistum þeirra. Markmiðið var að koma konu á þing og það tókst. Ingibjörg fæddist á Þingeyri við Dýrafjörð 14. desember 1868, dóttir hjónanna Hákons Bjarnasonar kaup- manns og Jóhönnu Kristínar Þor- leifsdóttur. Af tólf börnum þeirra létust sjö úr barnaveiki en upp kom- ust fjórir synir og ein dóttir. Skömmu eftir fæðingu Ingibjargar hóf Hákon versl- unarrekstur og þilskipaútgerð og var jafnframt með skip í ferðum á milli landa. Þegar Ingibjörg var á ní- unda ári fórst Hákon ásamt flestum úr áhöfn sinni þegar skip hans brotnaði á Mýrdalssandi á heimleið frá Kaupmannahöfn. Móðir hennar hélt rekstri versl- unarinnar á Bíldudal áfram næstu árin og lagði mikla áherslu á að mennta börnin. Fjölskyldan fluttist síðar til Reykjavíkur þar sem Ingibjörg gekk í Kvennaskól- ann og lauk þaðan prófi 1882. Næstu ár stundaði hún nám hjá Þóru Pétursdóttir biskups en sigldi árið 1884 til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám næstu tíu árin, einkum á sviði uppeldis- og kennslu- mála. Brautryðjandi í leikfimikennslu Ingibjörg varð fyrsti Íslendingurinn til að ljúka leik- fimikennaraprófi en það gerði hún árið 1892 frá Poul Petersens Institut. Eftir heimkomu til Íslands hóf hún kennslu í fimleikum við Barnaskólann en sú náms- grein hafði ekki verið kennd þar fram að þessu. Lagði hún ætíð mikla áherslu á mikilvægi góðrar leikfimi- kennslu fyrir börn og ungmenni og sá til þess að henni væri vel sinnt í Kvennaskólanum. Var það henni mikið metnaðarmál að leikfimihús yrði reist við Kvennaskólann en það hefur ekki enn orðið að veruleika. Þegar Ingibjörg kom heim frá námi 1893 hóf hún kennslu við Barnaskóla Reykjavíkur, Kvennaskólann og í aukatímum. Helstu kennslugreinar voru danska, heilsufræði, teiknun, hannyrðir, leikfimi og dans og kom brátt í ljós að Ingibjörg var góður kennari. Árið 1901 fór Ingibjörg enn utan til náms og dvaldi í tvö ár í Þýskalandi og Sviss til að kynna sér helstu nýjungar í kennslumálum. Eftir heimkomuna kenndi Ingibjörg áfram við Barnaskólann og Kvennaskólann. Skólastjóri Kvennaskólans Þegar Þóra Melsteð, skólastjóri Kvennaskólans, lét af störfum árið 1906 tók Ingibjörg við stjórn skólans og gegndi starfinu til æviloka eða í 35 ár. Eitt fyrsta verkefni Ingibjargar var að leysa húsnæðisvanda skólans en það var gert með byggingu húss við Frí- kirkjuveg. Fluttist skólinn þangað árið 1909 og bjó Ingibjörg sjálf í skólanum. Kvennaskólinn þótti vera til fyrirmyndar í starfs- háttum undir stjórn Ingibjargar. Áhersla var lögð á reglusemi og nákvæmrar hlýðni krafist við settar reglur en Ingibjörg gekk sjálf á undan með góðu for- dæmi. Hún var þekkt fyrir stjórnsemi og jákvæðan aga, sköllin á göngum Kvennaskólans hljóðnuðu þeg- ar hún gekk um. Námsmeyjarnar vissu að góðvild bjó að baki strangleikanum og jafnframt að góðlátleg kímni féll í góðan jarðveg hjá henni. Félagsstarf kvenna í Reykjavík Ingibjörg var virk í félagslífi Reykjavíkur og drif- kraftur í ýmsum samtökum kvenna. Hún starfaði í Thorvaldsenfélaginu, tók þátt í leiksýningum á veg- um þess og var í stjórn barnauppeldissjóðs félagsins. Hún starfaði einnig í Hinu íslenska kvenfélagi og var einn af stofnendum Lestrarfélags kvenna 1911 og sat í fyrstu stjórn þess. Hún átti einnig þátt í stofnun Heimilisiðnaðarfélags Íslands 1913 og sat þar einnig í stjórn. Í júní 1915 komu fulltrúar tólf kvenfélaga í Reykja- vík saman á fundi og ræddu hvernig ætti að fagna því að 19. júní hefði Alþingi samþykkt að þær fengju stjórnmálaleg réttindi til jafns við karla. Sú hugmynd var samþykkt að konur skyldu gangast fyrir bygg- ingu sjúkrahúss og það yrði sem bautasteinn fyrir nýfengnum réttindum. Barátta fyrir Landspítala Til að fagna réttarbótinni efndu konurnar til hátíðar við setningu þingsins hinn 7. júlí. Fjöldi kvenna safn- aðist saman við Miðbæjarskólann og gekk fylktu liði inn á Austurvöll. Nefnd fimm kvenna fór inn í þing- húsið og hafði Ingibjörg orð fyrir þeim. Í ávarpi til þingheims vottaði hún þingmönnum gleði og þakk- læti kvenna fyrir nýfengin réttindi. Að lokinni athöfn í þinghúsi hófst hátíð á Austurvelli þar sem Ingibjörg lýsti yfir því í heyranda hljóði fyrir hönd kvenna- samtaka í Reykjavík að réttarbótarinnar yrði minnst með fjársöfnun til byggingar Landspítala. Þörfin var brýn og skortur á sjúkrarými brann mjög á konum. Sjálfgefið var að Ingibjörg yrði formaður sjóð- Einingartákn og merkisberi Í dag eru 70 ár liðin frá andláti Ingibjargar H. Bjarnason, fyrsta alþingismanns Íslendinga úr hópi kvenna. Er við hæfi að minnast hennar enda er hún í hópi merkustu Íslendinga síð- ustu aldar. Kjartan Magnússon Kjartan Magnússon

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.