SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Síða 38
38 30. október 2011
H
örðustu aðdáendur dansmyndarinnar Footloose frá árinu 1984 glöddust
ekki þegar í ljós kom að endurgera átti myndina. Sú skoðun var áberandi
að ekki ætti að eiga við svona kvikmyndaklassík. Stjarna myndarinnar,
Kevin Bacon, sem lék Ren McCormack í upphaflegu myndinni hefur núna
gefið myndinni blessun sína. „F-Loose! Var að sjá hana. Til hamingju Craig, Kenny,
Julianne, Dennis, Andie, Miles og allir leikararnir. Þið rokkið,“ skrifaði Bacon á Twit-
ter í vikunni og setti um leið mynd af bíómiðanum sínum inn á síðuna. Nýja myndin,
sem er með Kenny Wormald í hlutverki Rens, hefur fengið góða dóma og notið vin-
sælda í bíóhúsum en dómur Bacons vegur auðvitað líka þungt. Sérstaklega hjá þeim
sem þótti vegið að honum með þess-
ari endurgerð.
Kevin Norwood Bacon fæddist 8.
júlí árið 1958 og er því 53 ára. Hann
hefur leikið í mörgum vinsælum
myndum og unnið til Golden
Globe- og SAG-verðlauna. Breska
dagblaðið The Guardian hefur til-
nefnt hann í hóp bestu leikaranna
sem hafa aldrei hlotið Ósk-
arsverðlaun. Hann fékk hins veg-
ar stjörnu á frægðargangstétt
Hollywood árið 2003.
Langlíft hjónaband
Bacon kvæntist leikkonunni
Kyru Sedgwick 4. september
árið 1988, sem gerir hjónaband
þeirra eitt það langlífasta í
Hollywood. Hjónin hafa leikið
saman í nokkrum myndum, Pyrates, Murder in the First, The Woodsman
og Loverboy. Sedgwick hefur notið mikilla vinsælda síðustu ár í hlutverki
sínu sem lögregluforinginn Brenda Leigh Johnson í The Closer. Þau eiga tvö
börn, Travis, f. 23. júní 1989, og Sosie Ruth, f. 15. mars árið 1992. Fjöl-
skyldan er ekki búsett í Los Angeles eins og svo margir leikarar heldur í New
York, nánar tiltekið bæjarhlutanum sem kallaður er Upper West Side á Man-
hattan.
Bacon var boðið að vera í nýju myndinni en hann afþakkaði. „Kevin var
skynsamur að neita því,“ sagði leikstjórinn Craig Brewer í viðtali við E! On-
line. „Ég held hann hafi haft góða ástæðu til að segja nei. Ég held að hann
hafi vitað að myndin yrði ómerkilegri ef hann myndi skyndilega birtast og
blikka myndavélina. Það hefði gert frásögnina veikari.“
Bacon er enn stoltur af Footloose, myndinni sem gerði hann að stjörnu.
„Fólk lítur á myndina sem poppað léttmeti. En ef þú lítur til baka og horfir á
hana þá er myndin mun djarfari en fólk man.“
Búið er að endurgera kvikmyndina Footloose en Kevin Bacon
varð frægur fyrir dansspor sín í upphaflegu myndinni.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
’
Bacon
var
boðið
að vera í nýju
myndinni en hann
afþakkaði.
Bacon blessar
nýju Footloose
Á
þeim rúmu fjörutíu árum sem Alþýðubandalagið starfaði
kom það ýmsu til leiðar í íslensku þjóðlífi. Flokkurinn, sem
var yst til vinstri á litrófi stjórnmálanna, var upphaflega
stofnaður sem kosningasamtök árið 1956. Kjarninn í hreyf-
ingunni var Málfundafélag jafnaðarmanna undir forystu Hannibals
Valdimarssonar, sem nokkru fyrr hafði yfirgefið Alþýðuflokkinn.
Einnig átti Sameiningarflokkur alþýðu – Sósíalistaflokkurinn undir
forystu Einars Olgeirssonar aðild að bandalaginu og síðar kom Þjóð-
varnarflokkur herstöðvaandstæðingar til liðs við hreyfinguna.
Árið 1968 varð Alþýðubandalagið formlegur stjórnmálaflokkur og
varð Ragnar Arnalds formaður. Þeir formenn sem síðar komu voru
Lúðvík Jósepsson, Svavar Gestsson, Ólafur Ragnar Grímsson og síðast
Margrét Frímannsdóttir, sem kjörin var formaður haustið 1995. Hún
leiddi flokkinn á breytingatímum en 1998 rann Alþýðubandalagið svo
inn í Samfylkinguna sem þá var verið að stofna og bauð í fyrsta sinn
fram árið 1999. Ráðherrarnir Ragnar Arnalds, Svavar Gestsson og Hjörleifur Guttormsson. Áhrifamiklir Alþýðubandalagsmenn.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Myndasafnið Mars 1979
Tvíeðli Al-
þýðubandalags
Frægð og furður
Reuters
Hjónakornin Kevin og Kyra á frumsýningu á mynd
sinni The Woodsman á kvikmyndahátíðinni í
Deauville í Frakklandi árið 2004.
Reuters
Bacon er enn stoltur af mynd-
inni sem gerði hann að stjörnu.