SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Síða 39

SunnudagsMogginn - 30.10.2011, Síða 39
30. október 2011 39 N ú um helgina eru líklegast um 4.000 rjúpnaskyttur á heiðum uppi við veiðar. Talsverðar líkur eru á að veiðin sé treg, lítið er um rjúpu, hún dreifð og veðrið frekar slæmt. Rjúpnaveiðar eru krefjandi og líkamlega erfiðar, veiðimaðurinn þarf að ganga allan daginn, oft klífa fjöll og fara upp og niður brattar hlíðar. Hann þarf að vera einbeittur, fylgjast með veðrinu, lesa landslagið og skima eft- ir bráðinni. Þrátt fyrir að veiðin sé lítil og stundum engin eru það yfirleitt sáttir menn sem koma heim að kveldi. Þeir hafa verið úti, reynt á líkama og sál og notið töfra náttúrunnar. Það er nefnilega svo, að nú orðið er það ekki veiðin sem skiptir öllu máli í huga veiðimanna, heldur ýmislegt ann- að, eins og það að vera úti í náttúrunni á þessum árstíma og svo auðvitað félagsskapurinn. Í 5.000 ár hafa karlar haldið út á mörkina til að draga björg í bú og svo á kvöldin yljað sér við eldinn, sagt veiðisögur og notið samvistanna. Rjúpnaveiðar eru holl afþreying bæði fyrir líkama og sál. Þetta er vert að hafa í huga í ljósi frétta sem birtust í liðinni viku þess efnis að Íslend- ingar nytu þess vafasama heiðurs að vera næstfeitasta þjóð Vesturlanda á eftir Bandaríkjamönnum. Framtíðin er því miður ekki björt í þessum efn- um. 20% íslenskra barna eru of þung og 5% þeirra of feit. Ofþyngd er afar hættuleg heilsu okkar, hún getur orsakað marga hættulega sjúkdóma eins og hjartasjúkdóma, krabbamein og sykursýki. Offita er í flokki lífsstílssjúkdóma, en það eru sjúkdómar sem eru áunnir vegna rangra lífshátta, hreyfing- arleysis, reykinga, streitu og rangs mataræðis. Þá er offita mjög íþyngjandi fyrir heilbrigð- iskerfið, 6% útgjalda til heilbrigðismála á Vesturlöndum fara til meðferðar á sjúkdómum sem tengjast offitu. Hver aukning með- alþyngdar Íslendinga um eitt stig líkams- þyngdarstuðuls (BMI) eykur heilbrigð- iskostnað þjóðarinnar um hátt í tvo milljarða á ársgrundvelli. Íslensk náttúra er uppspretta góðrar heilsu og því „hinn mikli læknir“ eins og indíánarnir, frumbyggjar Ameríku, kölluðu náttúruna. Ísland er strjálbýlasta land Evrópu og raunar eitt af strjálbýlustu löndum heims. Ís- lendingar hafa því meiri möguleika en flestar aðrar þjóðir á að stunda holla útivist úti í náttúrunni og bæta með því heilsu sína, styrkja líkama og sál. Gjafir náttúrunnar, ber og sveppir og villibráð af ýmsum toga, er einhver sá hollasti matur sem völ er á. Villibráðin er fitusnauð og laus við óæskileg aukaefni, fyrir utan það að vera frábær matur. Veiðar, hvort sem það eru stangveiðar eða skotveiðar, eru þjóðhagslega hagkvæmar. Það er verið að nýta afurðir af landi sem ekki nýtist annars, veiðimenn lengja ferðamannatímann og skilja því eftir talsverðar tekjur á landsbyggðinni. Líklegast eyða rjúpnaveiðimenn um 36 milljónum úti á landi nú um helgina, þessar tekjur skipta máli. Veiðar bæta heilsuna, við veiðar slök- um við á og minnkum streitu, veiðar eru líkamlega krefjandi, villibráð er hollustufæði og veiðar skapa atvinnu á landsbyggðinni. Offita er faraldur hér á Íslandi, offitan kostar þjóðarbúið milljarða á ári hverju. Það er því brýnt verkefni að stjórnvöld beiti sér fyrir því að skorin verði upp herör gegn þeirri plágu sem ofþyngd landsmanna hefur í för með sér. Það verð- ur meðal annars gert með því að hvetja fólk til að ferðast um okkar fagra land og auðvelda landsmönnum að stunda veiðar. Því miður er það nú svo að undanfarin ár, segjum undanfarin átta til tíu ár, hefur okkur stöð- ugt verið gert erfiðara fyrir að njóta íslenskrar náttúru. Lokað hefur verið slóðum á hálendinu sem jeppamenn hafa ekið í áratugi án þess að náttúr- an bæri nokkurn skaða af. Skotveiðar á öræfum hafa verið bannaðar eða takmarkaðar án nokkurra sannfærandi raka. Silungsveiðimenn hafa verið skyldaðir til að greiða fyrir veiðileyfi í vötnum í þjóðlendum. Veiðar og nánast öll útivist bætir heilsuna, nærir líkama og sál. Eins og áður sagði verður líklegast frekar lítil rjúpnaveiði í ár. Náttúrufræðistofnun leggur til að hver veiðimaður veiði aðeins sex rjúpur. Þetta er vitaskuld aðeins ábending, sumir veiðimenn þurfa kanski tólf rjúpur fyrir sig og sína, aðrir aðeins fjórar. Það sem skiptir máli er að gæta hófs við veiðarnar, veiða að- eins fyrir sig og sína. Rjúpan er einhver sá besti matur sem völ er á, hún lifir á háfjallagróðri og velur fæðu sína af mikilli kostgæfni. Hlutskipti rjúpunnar er að vera matur, allar rjúpur eru nefnilega étnar. En – hvað eiga þeir veiðimenn að gera sem aðeins veiða eina rjúpu nú í haust? Jú, bringurnar má hakka með hníf og bragðbæta með eggjarauðu, kryddi og borða hráar sem forrétt. Bein, fóarn og hjörtu má svo hluta niður, steikja, sjóða og búa til kraft til að bragðbæta sósur, til dæmis með lambakjöti. Betri villibráðarkraft er ekki hægt að hugsa sér. Þeir veiðimenn sem hins vegar fá enga rjúpu geta huggað sig við það, að þeir hafa sennilega lést um nokkur kíló, styrkt hjarta og lungu og upplifað enn einn dag í paradís. Feit þjóð í fögru landi Villibráð Sigmar B. Hauksson ’ Rjúpna- veiðar eru holl afþreying bæði fyrir líkama og sál. Risastór legókall fannst í fjörunni í Sara- sota í Flórída í Banda- ríkjunum. Jeff Hind- man fann gripinn en hélt í fyrstu að hann væri strandað sjáv- ardýr en svo reyndist alls ekki vera. „Ég botna ekkert í þessu,“ sagði hann við Herald Tribune. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem legókalli skolar á land en svipaður kall fannst á strönd í Hollandi 2007 og Englandi 2008. Í þau skipti tengdist atburðurinn listamanninum Ego Leonard og svo virðist sem þessi kall sé líka kominn frá honum. Hann er að minnsta kosti merktur að aftan Ego Leonard 8. Kona í Sara- sota var þrátt fyrir þetta viss um að kallinn kæmi úr geimskipi og aðrir voru vissir um að þetta væri hluti kynningarherferðar fyrir nýjan Legoland-skemmtigarð í Flórída. Garðurinn var opnaður 15. október, aðeins tíu dögum áður en kallinn fannst. Leonard sendi frá sér þessi skilaboð fyrir hönd kallsins: „Ég er feginn að ég komst alla þessa leið. Gott veður og vingjarn- legt fólk. Ég held ég verði hér um tíma.“ Lögreglan er með legókallinn í sinni vörslu og eigandinn hefur 90 daga til þess að sækja hann. Legó í fjörunni Dúkka bjargaði fjöl- skyldu í Tennessee í Bandaríkjunum frá því að brenna inni í vik- unni. Dúkkan var skólaverkefni hjá stúlkunni á heimilinu, sem átti að sinna öll- um hennar þörfum því dúkkan fer annars að gráta. Verkefnið á að sýna unglingum hversu mikil ábyrgð það er að sinna ungbarni. Húsið brann til grunna en fjölskyldan bjargaðist. „Stelpan segir að hún sofi venjulega mjög fast en ekki eftir að hún tók dúkkuna heim. Það heyrðist eitthvað í dúkkunni og stelpan vaknaði við það,“ sagði talsmaður lögreglu Kathy Tyson við dagblað í bænum La Vergne. „Hún fór fram til að kanna það sem henni heyrðist vera diskur að brotna. Þegar hún opnaði dyrnar mætti hún reykjarmekkinum,“ sagði Tyson. Það var þó enginn diskur sem brotnaði heldur var þetta hljóðið í rúðu sem sprakk baka til í húsinu. Stelpan fór strax og vakti móður sína og kærasta hennar og þeim tókst að komast út heilum á húfi. „Stelpan vildi fara aftur inn að sækja bíllyklana sína en það var ekki hægt,“ sagði slökkviliðsstjórinn Victor Woods. „Mínútu eða tveimur síðar hefði þessi saga fengið annan endi.“ Dúkkan bjargvættur Alþýðubandalagið og þingmenn þess komust nokkrum sinnum í ríkisstjórn. Einstaka ráðherra mætti hér nefna. Lúðvík Jósepsson var sjávarútvegsráðherra tvívegis og tók þá af skarið með útfærslu land- helginnar fyrst í 50 og síðar 200 sjómílur. Magnús Kjartansson, sem sat í ríkisstjórn 1971-1974, beitti sér fyrir ýmsum umbótum á sviði al- mannatrygginga. Hjörleifur Guttormsson lét til sín taka sem iðn- aðarráðherra á árunum 1978-1983 og einn af svipmeiri fjármála- ráðherrum Íslandssögunnar er Ólafur Ragnar Grímsson sem sat við ríkiskassann í Arnarhváli frá hausti 1988 til vors 1991. Er í þessari upp- talningu hvergi á aðra ráðherra flokksins hallað þótt ónefndir séu. „Alþýðubandalagið var þjóðernissinnaður sósíalistaflokkur sem hafði meiri hljómgrunn en hliðstæðir flokkar annars staðar á Norð- urlöndunum,“ segir Birgir Guðmundsson, stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri. „Gjarnan naut flokkurinn fylgis 17-18% kjós- enda og stundum náði það raunar meiri hæðum, t.d. 1978 þegar Al- þýðubandalagið fékk nærri 23% fylgi. Þjóðernishugsun flokksins birt- ist mjög sterkt í andstöðu gegn veru bandarísks herliðs hér á landi sem og í andstöðu gegn NATO. Þá var hið sósíalíska element í flokknum sterk taug sem hafði samband við launafólk og samtök þess. Alþýðu- bandalagið var sprottið upp úr flokkum sem höfðu sterk tengsl við hina alþjóðlegu kommúnistahreyfingu, t.d. Komintern, og klofnings- brotum úr Alþýðuflokknum. Þetta tvíeðli einkenndi flokkinn alla tíð og má segja að það hafi brotist fram síðar, til dæmis á árunum upp úr 1980 og eftir það þegar deilur og ágreiningsmál fóru að einkenna flokkinn en sú var raunin allt uns flokkurinn gekk inn í Samfylkinguna þótt aðrir fyndu skoðunum sínum farveg innan VG.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is ’ Þjóðernissinn- aður sósíal- istaflokkur sem hafði meiri hljóm- grunn en hliðstæðir flokkar annars staðar á Norðurlöndunum. Birgir Guðmundsson.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.