Morgunblaðið - 10.05.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.05.2010, Blaðsíða 21
Dagbók 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. MAÍ 2010 Sudoku Frumstig 7 2 3 1 5 2 4 7 5 6 5 1 6 8 6 4 8 8 7 1 5 3 2 7 4 6 8 5 3 2 5 1 4 7 3 4 7 5 6 5 2 7 7 8 4 6 5 3 8 2 4 9 7 6 1 2 3 6 5 7 9 1 5 2 1 2 9 3 4 4 7 5 7 1 5 6 4 3 9 8 2 9 4 2 7 5 8 3 1 6 6 3 8 1 9 2 5 7 4 4 5 7 8 3 1 2 6 9 3 8 6 9 2 7 1 4 5 1 2 9 5 6 4 7 3 8 8 6 3 2 1 5 4 9 7 5 7 4 3 8 9 6 2 1 2 9 1 4 7 6 8 5 3 2 8 7 5 4 1 6 3 9 6 5 1 9 3 2 8 7 4 9 4 3 8 7 6 1 5 2 5 2 4 6 9 7 3 1 8 7 9 8 4 1 3 5 2 6 1 3 6 2 5 8 9 4 7 8 1 2 3 6 4 7 9 5 4 7 9 1 8 5 2 6 3 3 6 5 7 2 9 4 8 1 4 3 1 8 5 2 6 7 9 8 6 2 9 7 1 4 5 3 5 7 9 6 4 3 8 1 2 1 4 5 3 2 9 7 8 6 7 2 6 4 8 5 3 9 1 3 9 8 7 1 6 2 4 5 9 1 7 2 6 4 5 3 8 6 5 4 1 3 8 9 2 7 2 8 3 5 9 7 1 6 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 10. maí, 130. dag- ur ársins 2010 Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrni- runni. (Lúkas 6, 44.) Þegar Víkverji vill næra andannleitar hann oftar en ekki á heimasíðu Þjóðfundarins svokallaða sem haldinn var síðasta vetur. Fund- urinn fékk mikla athygli fjölmiðla en því miður hefur verið minna fjallað um þær mögnuðu uppástungur sem komu fram á fundinum. Þær má finna á ofangreindri heimasíðu. Ljóst má vera að íslensku samfélagi muni farn- ast vel miðað við þá flóru hugmynda sem er að finna á heimasíðunni. x x x Kona á fimmtugsaldri sem býr ípóstnúmeri 780 stingur til að mynda upp á að „stjórnsýsla á að vera þannig að erlendum glæpa- mönnum sé úthýst“. Kona á Seltjarn- arnesi leggur til að gagnkvæm virð- ing ríki á milli „stjórnar og þjóðar“. Karlmaður í Vesturbænum vill auka virðingu Alþingis. x x x Hugmyndirnar snúast ekki ein-göngu um umbætur stjórnsýsl- unnar. Áhugaverðar tillögur um fjöl- skyldumál má einnig finna á vefsíðunni. Karlmaður í póstnúmeri 220 stingur upp á að elliheimili og barnaheimili verði „dregin saman“, hvað sem það svo þýðir. Ung kona í Reykjavík segir: „skyldunámskeið í samskiptum kynjanna fyrir verðandi hjón og foreldra (getur bætt svooo margt) :-).“ x x x Brýnt er að þeir sem með völdinfara kynni sér þær aðgerðir sem fundarmennirnir lögðu fram í at- vinnumálum. Kona um þrítugt á án efa frumlegustu tillöguna en hún lagði til að sókn í „aflandsfiskistofna“ yrði aukin. Karlmaður í Árbænum telur mikilvægt að ekki verði beðið lengur með uppbyggingu þekking- arþorps. x x x Það er greinilegt að niðurstaðaÞjóðfundarins er orðin að mikil- vægri auðlind í eigu allra Íslendinga. Það er því ekki að furða að kona um fimmtugt segi mikilvægustu aðgerð- ina að halda annan þjóðfund eftir fimm ár. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 nístandi vind- ur, 4 eklu, 7 sjúga, 8 svikull, 9 miskunn, 11 brún, 13 vex, 14 fiskinn, 15 skordýr, 17 verkfæri, 20 mann, 22 gjálfra, 23 jarðlífið, 24 hásum, 25 fugl. Lóðrétt | 1 gegn, 2 hæn- an, 3 skelin, 4 stígur, 5 fuglar, 6 lifir, 10 tunn- una, 12 skepna, 13 op, 15 falleg, 16 áköfum, 18 píluna, 19 týna, 20 sorg, 21 lokuð. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 tónsmíðar, 8 skæri, 9 túlka, 10 gær, 11 reisa, 13 aumum, 15 stóll, 18 kagar, 21 íma, 22 svört, 23 laufs, 24 snillings. Lóðrétt: 2 ónæði, 3 seiga, 4 ístra, 5 aulum, 6 ósar, 7 faðm, 12 sel, 14 una, 15 sess, 16 ósönn, 17 lítil, 18 kalsi, 19 grugg, 20 ræsa. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. b4 e5 2. Bb2 Bxb4 3. Bxe5 Rf6 4. Rf3 O-O 5. h3 Rc6 6. Bb2 d5 7. e3 He8 8. Be2 a6 9. O-O Re4 10. c4 Be6 11. Dc2 Rg5 12. Rxg5 Dxg5 13. f4 Dd8 14. f5 Bc8 15. cxd5 Dxd5 16. Bc4 Dd7 17. Rc3 Re5 18. Rd5 Rxc4 19. Dxc4 Bd6 Staðan kom upp á Skákmóti öð- linga sem fer senn að ljúka í húsa- kynnum Taflfélags Reykjavíkur. Páll G. Jónsson (1710) hafði hvítt gegn Sveinbirni Guðmundssyni (1665). 20. Rf6+! gxf6 21. Dg4+ Kf8 22. Bxf6 He5 svartur hefði einnig tapað eftir 22… Hd8 23. Hf4!. 23. Dg7+ Ke8 24. Bxe5 Bxe5 25. Dxe5+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur S. Hermannsson | ritstjorn- @mbl.is 6 redoblaðir yfirslagir Norður ♠Á9 ♥6 ♦K652 ♣Á98432 Vestur Austur ♠KDG3 ♠8754 ♥K10973 ♥842 ♦108 ♦D9 ♣KD ♣G765 Suður ♠1062 ♥ÁDG5 ♦ÁG743 ♣10 Suður spilar 1♦xx. Útspil ♣K. Grikki að nafni Nikos Sarantakos hef- ur það einkennilega áhugamál að skrá met af ýmsu tagi sem tengjast brids. Breski höfundurinn David Bird fékk að grúska í þessu metasafni og sendi frá sér bók um efnið: Famous Bridge Re- cords. Íslendingar koma við sögu í nokkrum þessara meta, eiga m.a. metið í að fá flesta yfirslagi í redobluðu spili í alþjóðlegu móti. Þetta gerðist í leik Ís- lands og Botsvana á ólympíumótinu árið 2000. Við annað borðið spiluðu Botsv- anamenn 3Gr í NS og fengu 9 slagi. Við hitt opnaði Þröstur Ingimarsson í suður á 1♦, vestur doblaði, Magnús Magn- ússon í norður redoblaði og allir sögðu pass; vestur hélt að austur lofaði tígli með passinu. Þröstur fékk síðan 13 slagi þegar hann hitti í laufið, 1430 fyrir og 14 impa. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú munt rekast á einhver ummæli, sem hafa mikil áhrif á þig. Gættu þess að fara ekki út af sporinu og finndu hinn gullna meðalveg. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það hefur ekkert upp á sig að lenda í orðaskaki við fólk sem aldrei þekkir sinn vitjunartíma. Atvinnutilboð berst úr óvæntri átt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ekki er ólíklegt að tafir, rugl- ingur og viðlíka ergi þig í dag. Sýndu þol- inmæði fram eftir degi og gerðu ráð fyrir einhverju óvæntu í eftirmiðdaginn. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú vinnur sjálfum þér aðeins tjón með því að neita að horfast í augu við staðreyndir. Menn vilja bara heyra hvað gerðist en ekki hvað þér finnst. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Allt virðist leika í höndunum á þér og þú nýtur aðdáunar annarra. Vertu á verði og gættu sjálfsvirðingar þinnar. Einföld gönguferð í faðmi náttúrunnar er allra meina bót. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Nýtt ástarsamband reynist óbæri- lega spennandi, eða þá daður eykur til- breytinguna í lífi þínu. Þú eyðir meiru í fallega muni og gjafir handa ástvinum en gott er. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Sannleikurinn er afstæður. Notfærðu þér það og komdu öllu því í verk sem þú hefur látið reka á reiðanum að undan- förnu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það vantar ekki mikið upp á að þér takist að klára það verkefni sem þér hefur verið falið. Láttu neikvæðni annarra ekki draga úr þér því þú veist hvað þú þarft að gera. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Samskipti þín við aðra eru stundum á yfirborðinu. Breytingarnar sem vinnufélagarnir tilkynna ættu að gleðja þig – en því miður er ekki svo. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það eru ýmsir möguleikar í stöðunni en farðu þér hægt því að flas er ekki til fagnaðar. Tilfinningarnar bera þig stundum ofurliði. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er ákaflega leiðinlegt þeg- ar gamall vinur er í sífellu að segja þér hvernig þú eigir að haga lífi þínu. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Ekki kaupa neitt af fljótfærni í dag. Ef þú sníður þér stakk eftir vexti mun þér ganga allt í haginn. Stjörnuspá 10. maí 1940 Hernámsdagurinn. Breskt herlið var sett á land í Reykja- vík. Allmargir Þjóðverjar voru handteknir, meðal ann- ars Gerlach ræðismaður. Í hernámsliði Breta voru rúm- lega 25 þúsund menn þegar mest var. Bandaríkjamenn tóku að sér hervernd landsins, ásamt Bretum, 7. júlí 1941. 10. maí 1990 Stúlkubarn fæddist Gríms- eyingum en næstu sjö árin á undan höfðu einungis fæðst drengir, 15 alls. 10. maí 2000 „Ég er á toppi tilverunnar,“ sagði Haraldur Örn Ólafsson þegar hann hringdi kl. 21.28 frá norðurpólnum, en þangað gekk hann, fyrstur Íslendinga. „Það er stórkostleg stund að upplifa þetta eftir tveggja mánaða þrotlausa vinnu,“ sagði þessi 28 ára lögfræð- ingur, sem hafði áður gengið á suðurpólinn. 10. maí 2009 Ríkisstjórn Samfylkingar- innar og Vinstri grænna tók til starfa undir forsæti Jó- hönnu Sigurðardóttur. Flestir ráðherranna höfðu verið í rík- isstjórn sem var mynduð 1. febrúar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Jóna Björg Georgsdóttir frá Brekku í Njarð- vík er áttræð í dag, 10. maí. Hún verður að heim- an á afmælisdag- inn. 80 ára „VIÐ erum fjögur sem ætlum að halda sameig- inlega afmælisveislu,“ segir Margrét Geirsdóttir, matvælafræðingur hjá Matís ohf., sem fagnar fer- tugsafmæli sínu í dag en hélt upp á það í góðra vina hópi um nýliðna helgi. Hún bauð ásamt þrem- ur skólabræðrum sínum úr Menntaskólanum við Sund um tvö hundruð manns í Þróttaraheimilið. „Við sáum það þegar við fórum að plana afmæl- isveislur okkar að það væri skynsamlegast að slá þeim saman, bæði vegna þess hversu þétt afmælin liggja en líka vegna þess að við eigum talsvert af sameiginlegum vinum.“ Í dag ætlar Margrét hins vegar að fagna deginum með því að mæta með köku í vinnuna eins og hún hefur gert mörg síðustu ár, en kvöld- ið er helgað fjölskyldunni, eiginmanninum og tveimur börnum. Spurð um eftirminnileg afmæli nefnir Margrét 10 ára afmælið, enda hafi verið merkilegt að ná loks tveggja stafa tölu, tvítugsafmælið sem hún hélt upp á að loknu stúdentsprófi og 35 ára afmælið þar sem hún hélt veislu fyrir fjölskylduna. Aðspurð segist Margrét oft hafa verið í próf- um eða próflestri á afmælisdeginum sínum og því sé hún vön því að þurfa að fresta afmælisveislum sínum til hentugri tíma. silja@mbl.is Margrét Geirsdóttir matvælafræðingur 40 ára Mætir með köku í vinnuna Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.