Morgunblaðið - 24.06.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010
Morgunblaðið/Júlíus
Mótorhjólatöffarar Árni Friðleifsson segir starfsmenn umferðardeildarinnar vera mikla áhugamenn um mótorhjól og umferðarmenningu.
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
ingibjorgrosa@mbl.is
Þann 16. júní 1960 var tilkynnt
stofnun sérstakrar umferðardeildar
lögreglunnar í Reykjavík og er
deildin því 50 ára um þessar mund-
ir. Við stofnun sína hafði deildin 8
mótorhjól til umráða, jafnmörg eft-
irlitshverfum borgarinnar, og tvo
lögreglubíla. Afmælisins verður
minnst í dag á lögreglustöðinni við
Hverfisgötu þar sem haldið verður
kaffisamsæti fyrir núverandi og
fyrrverandi starfsmenn deildarinn-
ar, um 120 manns, og farið yfir sög-
una í máli og myndum. Í dag heitir
deildin umferðardeild lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu og eru um
28 menn starfandi í deildinni sem
hefur það aðalhlutverk að fylgjast
með allri umferð á höfuðborgar-
svæðinu, fylgjast með ökuhraða og
að umferðarreglur séu virtar. Þá
eru viðbrögð við ölvunarakstri stór
þáttur í starfi deildarinnar, auk
þess sem umferðardeildin kemur að
vettvangi umferðarslysa á svæðinu.
Þá stýrir deildin umferð og lok-
unum í tengslum við hátíðir, skrúð-
göngur og opinberar heimsóknir á
höfuðborgarsvæðinu..
Til staðar fyrir ökumennina
Árni Friðleifsson varðstjóri í
umferðardeild segir stöðuna á um-
ferðarmálum borgarinnar nokkuð
góða og tölur sýni að slysum hafi
farið fækkandi á svæðinu síðustu
ár. „En við erum mjög áfjáðir í að
lækka þá tölu enn meira. Við höfum
komið að mörgum slysum og bana-
slysum í gegnum tíðina, sem eru
svo mikill mannlegur harmleikur,
að við eflumst stöðugt í starfinu.
Hvert slys sem við getum komið í
veg fyrir er mikill sigur fyrir okk-
ur.“ Umferðardeildin hefur yfir að
ráða 14 mótorhjólum, 2 lögreglubíl-
um og einum ómerktum mynda-
vélabíl. Árni segir mótorhjólaáhuga
samofinn deildinni, lögreglumenn
sem hafi áhuga á mótorhjólum,
akstri ökutækja og umferðarmenn-
ingu safnist í umferðardeildina.
„Starfið byggist á því að menn séu
á bifhjólum og flestir sem hafa ver-
ið starfandi hér eiga sjálfir mót-
orhjól,“ segir Árni og bætir við að
mótorhjólin virki mjög vel í barátt-
unni fyrir bættri umferðarmenn-
ingu þar sem löggæslan sé mjög
sýnileg. „Við getum nálgast öku-
menn á annan hátt en bílar, það er
öðruvísi yfirferð á hjólunum í um-
ferðinni. Starfið felst í að vera
þarna úti og grípa inn í ef eitthvað
bjátar á og vera til staðar fyrir öku-
mennina.“
Umferðardeild í fimmtíu ár
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu heldur kaffisamsæti fyrir umferðardeildina
Lögreglumótorhjólin eru hluti af umferðinni og gera löggæsluna sýnilegri
Ljósmynd/Sigurður G. Norðdahl úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafninu
Upphafið Lögregluþjónar fyrir framan Sóleyjargötu 1 um 1950.
Á mótorhjólum í 70 ár
» Lögreglan hóf að nota
mótorhjól við löggæslustörf
upp úr 1940.
» Í desember 1959 var fyrst
prófað að hafa sérstaka bif-
hjóladeild að störfum við um-
ferðareftirlit, til að sinna jóla-
ösinni á götum borgarinnar.
» Fyrstu yfirmenn umferð-
ardeildarinnar sem stofnuð var
í júní 1960 voru Sverrir Guð-
mundsson og Sigurður E.
Ágústsson.
» Tveir lögreglumenn hafa
látist í bifhjólaslysum við
skyldustörf, árin 1961 og 1967.
Árni Friðleifsson er varðstjóri
og yfir hjólaflotanum.
„Við erum að
vinna hér baki
brotnu við að
greina þessi
gögn, en í stórum
dráttum get ég
sagt að þetta
kemur bara
nokkuð vel út.
Það er helst ef
fólk er með ein-
hver undirliggj-
andi vandamál, svo sem astma, sem
þetta hefur valdið ákveðnum erfið-
leikum,“ segir Haraldur Briem sótt-
varnalæknir, spurður hvaða áhrif
askan úr Eyjafjallajökli hefur haft á
heilsu fólks, en endanlegar niður-
stöður úr yfirstandandi rannsókn
eru væntanlegar eftir helgi.
Haraldur segir að margir hafi
fundið fyrir særindum og þurrki í
hálsi og sviða í augum vegna ösk-
unnar, en að ekki sé búist við því að
langvarandi áhrifa gæti vegna henn-
ar. Engin gögn sem til eru bendi til
þess. „En við höfum vaðið fyrir neð-
an okkur, skoðum fólkið og munum
fylgjast með því áfram,“ segir Har-
aldur. hjorturjg@mbl.is
Langvar-
andi áhrif
óþekkt
Afleiðingar gosösku á
heilsu fólks óþekktar
Haraldur
Briem
Sigurður Valur
Ásbjarnarson
hefur verið ráð-
inn bæjarstjóri í
Fjallabyggð og
mun hefja störf
um næstu mán-
aðamót.
Sigurður Valur
er enginn ný-
græðingur í
sveitarstjórnarmálum en undanfarin
18 ár hefur hann verið bæjarstjóri í
Sandgerði og þar áður var hann
bæjarstjóri á Álftanesi.
Meirihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks er við
völd í Fjallabyggð líkt og var síðasta
kjörtímabil.
Flokkarnir voru sammála um að
ráðinn yrði utanaðkomandi bæjar-
stjóri.
Bæjarstjóri
Fjallabyggðar
Sigurður Valur
Ásbjarnarson
Útsölustaðir Málningar: BYKO Kópavogi • BYKO Granda • Litaver Grensásvegi • BYKO Kauptún • BYKO Akranesi
Axel Þórarinsson málarameistari, Borgarnesi • Snæþvottur Grundarfirði • Virkið Hellissandi • Núpur byggingavöruverslun, Ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson
málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki • BYKO Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfirði • BYKO Reyðarfirði • G.T. VÍK Egilsstöðum
Verslunin PAN, Neskaupstað • BYKO Selfossi • Miðstöðin Vestmannaeyjum • BYKO Keflavík.
Notaðu sumarið til að búa í haginn fyrir veturinn.
80%málarameistara* velja
útimálningu frá Málningu
fyrir íslenskar aðstæðurÍSLENSKASIA.IS
M
A
L
5
0
0
4
8
0
5
/1
0