Morgunblaðið - 24.06.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.06.2010, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010 Föstudagur 25. júní Setningarfundur er öllum opinn – málefnastarf aðeins fyrir landsfundarfulltrúa 16.00 Setning – ræða formanns í beinni útsendingu á xd.is 17.00 Framsaga um stjórnmálaályktun. 17.15 Tillögur viðbragðshóps Sjálfstæðisflokksins. 18.00 Málefnavinna hefst. 21.30 Málefnavinnu lýkur. (Hægt verður að kaupa kvöldmat á staðnum.) Laugardagur 26. júní Fundurinn er í beinni útsendingu á xd.is 9.00 Skýrsla framkvæmdastjóra. 9.15 Frambjóðendakynningar. 10.00 Kynning á niðurstöðum málefnavinnu. 11.00 Tillögur viðbragðshóps Sjálfstæðisflokksins. Breytingar á skipulagsreglum. Umræður. 13.30 Kosning formanns. 14.00 Jafnréttisstefna Sjálfstæðisflokksins. Umræður. 15.00 Kosning varaformanns. 15.30 Stjórnmálaályktun. 17.00 Fundarslit – ávarp formanns. 20.00 Landsfundarhóf í Gullhömrum, Grafarholti, haldið af Sambandi ungra sjálfstæðismanna í tilefni af 80 ára afmæli sambandsins. Húsið verður opnað kl. 20.00 en borðhald hefst klukkan 20.30. Veislustjóri kvöldsins er Ari Eldjárn og eftir kvöld- verð leikur hljómsveitin Tríkot fyrir dansi. Frelsi -- ábyrgð -- umhyggja 39. landsfundur Sjálfstæðisflokksins 25. & 26. júní 2010 Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Sveitarfélög á Íslandi, í Noregi og Liechtenstein, þeim EFTA-ríkjum sem eru í EES, hafa komið sér upp vettvangi til að eiga samskipti við Héraðsnefnd Evrópusambandsins (e. Committee of the Regions), sem er nokkurs konar sveitarstjórnarstig sambandsins. Sveitarstjórnar- vettvangur EFTA er í raun nefnd sem Norðmenn og Íslendingar skipa sex menn í hvorir, en Liechtenstein á eftir að skipa sína fulltrúa. Halvdan Skard frá Noregi verður formaður nefndarinnar en Halldór Hall- dórsson, formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, verður varafor- maður „Þessi vettvangur mun hjálpa okk- ur við að koma hagsmunamálum okk- ar á framfæri á upphafsstigum mála innan Evrópusambandsins,“ segir Halldór. Málið snýst um að koma sjónarmiðum þessara svæða að snemma í löggjafarferlinu, svo ís- lensk sveitarfélög þurfi ekki að fram- fylgja alls kyns reglum sem eiga betur við þéttbýl svæði á meg- inlandi Evrópu. „Við viljum gera okkur gild- andi, því við erum dálítið sérstök,“ segir Halldór. Hann nefnir sem dæmi að strangar Evrópureglur um frárennslismál eigi kannski vel við sveitarfélög í Belgíu eða Hollandi en annað gildi um sveit- arfélög á Íslandi. Um 70% af þeim reglum sem lögfestar eru á Íslandi í gegnum EES-samninginn koma til framkvæmda hjá sveitarfélögum, en ekki var gert ráð fyrir því þegar samningurinn var gerður. Að sögn Halldórs er tilgangurinn sá að sleppa við innleiðingu þeirra reglna sem eiga ekki við hér og spara þannig gíf- urlega fjármuni. „Þess vegna þurfum við svona öflugan vettvang, því þegar málin eru komin á seinni stig þá breytir maður engu,“ segir hann. Vilja sleppa við stóran hluta ESB-löggjafar um sveitarstjórnarstigið Halldór Halldórsson „Nýju mörkin koma Landsvirkjun á óvart og munu að öllum líkindum hafa áhrif á stofn- og rekstr- arkostnað jarðvarmavirkjana í fram- tíðinni,“ segir Ragna Sara Jóns- dóttir, yfirmaður Samskiptasviðs Landsvirkjunar. Landsvirkjun muni þó virða allar reglur. Ný reglugerð umhverfisráðherra lækkar mjög viðmiðunarmörk út- blásturs brennisteinsvetnis frá jarð- varmavirkjunum. Ragna Sara segir nýju viðmið- unarmörkin ekki í fullu samræmi við niðurstöðu samráðsfundar orkufyrirtækjanna og umhverfis- ráðuneytisins. „Við tökum undir með fulltrúum Orkuveitunnar þar sem okkar skiln- ingur var sá að miðað yrði við við- miðunarmörk Alþjóða-heilbrigð- isstofnunarinnar,“ segir Ragna. Viðmiðunarmörk stofnunarinnar eru 150 míkrógrömm brennisteins- vetnis í rúmmetra að meðaltali á 24 klukkustundum en með reglugerð- inni er aðeins miðað við 50 míkrógrömm á rúmmetra. „Það er erfitt að meta full- komlega hver áhrif breyting- anna verða fyrr en þynningar- svæði virkj- ananna verður skilgreint,“ segir Ragna Sara en þynningarsvæði er það svæði þar sem leyfilegt er að fara yfir viðmið- unarmörkin. Enn eigi eftir að skilgreina þynn- ingarsvæðið. Verði það skilgreint þröngt mun kostnaður við jarð- varmavirkjanir aukast verulega. Ragna Sara segir reglugerðina þó hafa minni áhrif á Landsvirkjun en önnur jarðvarmafyrirtæki þar sem meginstarfsemin sé enn sem komið er í vatnsaflsvirkjunum. hjaltigeir@mbl.is Aukinn kostnaður Ragna Sara Jónsdóttir  Landsvirkjun segir viðmiðunar- mörkin ekki í samræmi við loforð Neytendastofa hefur bannað auglýs- ingar þar sem Orkan segist bjóða ódýrasta bensínið og eldsneytið á Ís- landi. Einnig leggur stofnunin á Orkuna 600 þúsund króna stjórn- valdssekt á þeim forsendum að um ítrekað brot sé að ræða. Í úrskurði Neytendastofu segir að auglýsingar Orkunnar hafi gefið neytendum til kynna að fyrirtækið byði ódýrasta eldsneytið á Íslandi. Gögn málsins, m.a. frá verðkönnunar- þjónustunni GSMbensínávallt, sýni hins vegar að Orkan hafi ekki verið með ódýrasta eldsneytið á Íslandi þegar auglýsingarnar birtust. „Neytendastofa telur að gera verði ríkar kröfur til fyrirtækja sem með auglýsingum sínum vilja höfða til neytenda á grundvelli verðsaman- burðar. Því voru auglýsingar Ork- unnar bannaðar þar sem fyrirtækið gat ekki sannað fullyrðingu sína um ódýrasta eldsneytið á Íslandi,“ segir í tilkynningunni frá Neytendastofu. Málið snýst um tvær auglýsingar frá Orkunni sem birtust í febrúar sl. og snúast báðar um að fyrirtækið veiti afslátt á „ódýrasta bensíninu á Íslandi“ að sögn Orkunnar og hins vegar „ódýrasta eldsneyti á Íslandi“. Olíuverzlun Íslands kvartaði til Neyt- endastofu vegna fullyrðinganna, taldi þær ósannar og krafð- ist þess að auglýsing- arnar væru bannaðar. Í kvörtun Olíuverzl- unar Íslands segir að ljóst sé að þegar aug- lýsingarnar birtust hafi ódýrasta bensínið verið að fá hjá ÓB í Bolungarvík og á Ísa- firði, en Olíuverzlun Íslands rekur ÓB. hlynurorri@mbl.is Orkan auglýsti rang- lega ódýrasta bensínið  Neytendastofa bannar auglýsingarnar og sektar Orkuna Olíufélögin hækkuðu í gær verð um u.þ.b. átta kr. á lítra. Í gærkvöldi kostaði bensínlítr- inn á höfuðborgarsvæðinu frá 194,1 kr. og upp í 194,6 kr. og var Orkan ódýrust. Olíufé- lögin hafa átt í miklu verð- stríði undanfarna daga. Í Morgunblaðinu á þriðjudag sögðu forsvarsmenn stóru félaganna álagninguna of lága. Hækkuðu verð í gær VERÐSTRÍÐ Á MARKAÐNUM Háhitasvæðið við Gunnuhver á Reykjanesi hefur verið opnað að nýju fyrir ferðamönnum. Almannavarnir lokuðu svæðinu af öryggisástæðum fyrir þremur árum eftir að aukin virkni hljóp í hverinn með þeim afleiðingum að hann breiddi úr sér og eyðilagði m.a. útsýnispall. Hann er nú stærsti leir- hver landsins, með 20 metra gígop, að því er segir í tilkynningu. Búið er að byggja nýja glæsilega útsýnispalla fyrir ferðamenn á svæðinu og er þar jafnframt aðgengi fyrir fatlaða. Gunnuhver orðinn stærsti leirhver á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.