Morgunblaðið - 24.06.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.06.2010, Blaðsíða 10
10 Daglegt líf Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Okkur fannst vel við hæfi íljósi núverandi efna-hagsstöðu þjóðarinnarað setja upp þemasýn- ingu um verksmiðju sem var stofnuð til að skapa atvinnu á erf- iðum tímum og til að bregðast við gjaldeyrisskorti,“ segir Karl Rún- ar Þórsson, sagnfræðingur og sér- fræðingur á Byggðasafni Hafnar- fjarðar, en sumarsýning safnsins þetta árið heitir Draumaverk- smiðja íslenskra húsmæðra og fjallar um raftækjaverksmiðjuna RAFHA sem var í Hafnarfirði. „Þar voru framleidd raftæki undir vörumerkinu RAFHA sem varð „heimsfrægt“ á Íslandi, því um tíma mátti finna RAFHA-tæki á nánast hverju heimili. Eldavélarnar voru helsta framleiðslan á fyrstu árum verk- smiðjunnar en fjölmörg önnur raf- tæki áttu eftir að bætast við.“ Karl Rúnar segir að verk- smiðjan hafi verið stofnuð árið 1936 en þá hafði Ísland rafvæðst með virkjun Sogsins. „Það var til nóg af rafmagni en engin raftæki. Verksmiðjan var hlutafélag og ríkið átti meðal ann- ars hlut í henni, þannig að stofn- un fyrirtækisins var pólitísk ákvörðun, Alþingi samþykkti að setja peninga í þetta. Verksmiðjunni var ætlað að fullnægja þörfinni fyrir raf- tæki hér á landi og spara í leið- inni gjaldeyri með framleiðslu raftækja hér á landi.“ Leitað til Bandaríkjanna En gjaldeyrishöft voru líka á þessum tíma og verksmiðjan þurfti að sækja um sérstakt gjald- eyrisleyfi til að geta keypt hráefni til framleiðslunnar. „Það gat orðið erfitt, því það var ekki alltaf hægt að fá allan þann gjaldeyri sem þurfti til að anna eftirspurn eftir raftækjum. Í síðari heimsstyrjöldinni lok- uðust hráefnismarkaðir frá Norð- urlöndum þegar Danmörk og Nor- egur voru hernumin. Forstjórinn Axel Kristjánsson fór því árið 1940 til Bandaríkjanna og gerði 1946 gerði verksmiðjan einkleyf- issamning við Elektrolux og með honum efldist tæknin enn frekar.“ Heimur út af fyrir sig Fyrirtækið stækkaði hratt og þegar mest var störfuðu um sjötíu manns hjá RAFHA. Þetta var því mjög stórt og öfl- ugt fyrirtæki á íslenskan mæli- kvarða þess tíma og risafyrirtæki á hafnfirskan mælikvarða. Verk- smiðjan var um 5000 fermetrar að stærð og þar var meðal annars samkomusalur. „Fyrirtækið byggði fjölbýlis- hús árið 1965 þar sem starfsmenn höfðu tækifæri til að kaupa íbúðir á góðum kjörum. Þetta var í raun heimur út af fyrir sig, heilt sam- félag þar sem mikil samkennd var meðal starfsmanna. Innan þeirra raða var meðal annars starfandi karlakór og fólk kom saman á jólaböllum.“ Ennþá í notkun RAFHA-tækin voru vönduð og nánast ódrepandi. Draumaverksmiðja íslenskra húsmæðra Sú er yfirskrift sumarsýningar Byggðasafnsins í Hafnarfirði og er þar vísað í að allir vildu á RAFHA eldað hafa. Nú eru þessi raftæki sveipuð rómantískum blæ, þau fylla fólk sem notaði þau á yngri árum fortíðarþrá en hjá yngri kynslóðinni hefur margur ísskápurinn umbreyst í fataskáp eða aðra hirslu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Allskonar Ryksugur voru meðal þeirra tækja sem RAFHA framleiddi. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010 Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is *Árleg meðalávöxtun frá 15.01.2001 til 3 .0 .2010. Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag verðbréfasjóða ÍV hf. er rekstrarfélag sjóðsins. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu www.iv.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðsins og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti. Við öflum fyrir þig 10, % 100%RÍKISTRYGGING ÁRLEGMEÐALÁVÖXTUN* Strandgata 3 600 Akureyri I Sigtún 42 105 Reykjavík Sími: 460 4700 I www.iv.is I iv@iv.is 3 1 5 Vinafélag Krýsuvíkurkirkju gengst fyrir stuttri en táknrænni helgistund í Krýsuvík í kvöld, að kvöldi Jóns- messu, 24. júní, kl. 20. Sr. Gunnþór Ingason og sr. Þórhallur Heimisson stýra henni við grunn Krýsuvík- urkirkju, sem brann 2. janúar sl. Eftir stundina verður farið í stutta göngu um Krýsuvíkurtorfuna undir leiðsögn Jónatans Garðarssonar og verður síðan boðið í kvöldkaffi í Sveinssafni, húsi málarans. Þar stendur yfir ný- opnuð málverkasýning sem nefnist „Charlottenborgarárin“. Helgistundin og kvöldgangan í Krýsuvík miða að því að viðhalda helgihaldi í Krýsuvík þrátt fyrir kirkjubrunann. Undirbúningur að byggingu nýrrar kirkju í Krýsuvík gengur vel og standa vonir til að hún verði vígð í sumarbyrjun 2012. Jónsmessan er tengd nafni Jó- hannesar skírara og er fæðingarhátíð hans. Velunnarar og vinir Krýsuvík- urkirkju eru hvattir til að taka þátt í helgistund og kvöldgöngu í Krýsuvík í kvöld. Allir eru velkomnir. Endilega... ...mætið í helgistund og göngu Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Krýsuvíkurkirkja Kirkjan brann til grunna 2. janúar síðastliðinn. samninga um kaup á hráefni það- an og þá hófst framleiðsla svokall- aðrar „gormaeldavélar“ þar sem plöturnar voru snúnar og var æv- inlega kölluð ameríska týpan. Árið Úti um víða veröld leynast flottir hönnuðir og Kristina Viirpalu er ein af þeim. Hún býr í Eistlandi og er með verslun í gamla miðbænum í Tallinn og full ástæða til að mælast til þess að þeir sem eru veikir fyrir vönduðum efnum og frumlegri hönn- un geri sér ferð þangað. Til dæmis tekur ekki nema tvo tíma að fara með ferju frá Helsinki til Tallinn. Á vefsíðu Kristinu má glögglega sjá að hún hannar frumleg föt, kjóla, kápur, hatta, skó og skartgripi. Hún hannar líka brúðarkjóla en eitt af því sem hún er hvað þekktust fyrir eru silki- sokkarnir hennar, sem eru mun- úðarfullir og ná ýmist upp að hné eða eru hærri, upp á mið læri, en þá krefjast þeir þess að notuð séu sokkabönd við þá. Kristina hannar því oft samstæð sokkabönd og sokka. En vert er að taka fram að sokkarnir haldast ágætlega uppi þó ekki séu notuð sokkabönd. Sokkarnir eru unaðslegir viðkomu og silkið gerir einnig að verkum að gott er að klæðast þessum litfögru sokkum sem margir hverjir eru með rönd aftan á legg og læri, minna því svolítið á stríðsárin. Margir þeirra eru með mjög miklu munstri og oft eru sokkarnir ekki eins þó þeir séu samstæðir. Aðrir eru einfaldari og fullkomlega samstæðir. Kristina býður upp á sérstaka sokkasýningu með reglulegu millibili til að kynna dásemdina á fæti. Skórnir og töskurnar sem hún hannar eru gjarnan úr roði eða öðr- um náttúrulegum efnum. Vefsíðan www.kristinadesign.ee Geggjaðir sokkar, kjólar, skart

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.