Morgunblaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 12
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Fleiri leituðu sér ráðgjafar hjá Ráð-
gjafarstofu heimilanna á liðnu ári en
nokkru sinni fyrr. Alls voru afgreiddar
1.184 umsóknir um ráðgjöf vegna
greiðsluerfiðleika og til viðbótar að-
stoðaði stofan við gerð 439 beiðna um
greiðsluaðlögun. Rúmur þriðjungur
þeirra sem leitaði ráðgjafar á síðasta
ári eru hjón eða sambúðarfólk með
börn, að því er fram kemur í árs-
skýrslu Ráðgjafarstofu heimilanna.
Einstæðar mæður ekki lengur
stærsti hópur umsækjenda
Undanfarin ár hafa einstæðar mæð-
ur verið stærsti hópurinn sem hefur
leitað sér ráðgjafar vegna greiðsluerf-
iðleika, í kringum 30-35% umsækj-
enda. Hjón og sambúðarfólk með börn
hafa verið á bak við um fimmtung um-
sókna, eins og sjá má í ársskýrslum
undanfarinna ára sem birtar eru á
vefnum www.rad.is. Helsta breytingin
á hópi umsækjenda á síðasta ári er sú
að hjónum og sambúðarfólki með börn
fjölgar verulega, en 411 umsóknir voru
afgreiddar á árinu 2009 frá þessum
hópi sem nemur um 35% af heildar-
fjölda umsókna. Til samanburðar voru
afgreiddar 252 umsóknir frá einstæð-
um mæðrum í fyrra. Umsóknir frá
þeim hópi voru því um 21% af heildar-
fjölda.
Meðalumsækjandinn skuldar rúma
31 milljón króna. Meirihluti umsækj-
enda er á fertugsaldri, í vinnu og býr í
eigin húsnæði. Fasteignaskuldir eru
langstærstur hluti heildarskulda um-
sækjenda, eða samanlagt um þrír
fjórðu. Heildarskuldir jukust um 120%
frá 2008.
Vanskil vegna bílalána
jukust um 481% milli ára
Vanskil umsækjenda tvöfölduðust
milli áranna 2008 og 2009 samkvæmt
ársskýrslunni. Mesta hækkun vanskila
var vegna bílalána, eða 481% milli ár-
anna 2008 og 2009. Einnig hafa vanskil
vegna rað- og fjölgreiðsluskulda og
kreditkortaskulda meira en tvöfaldast
milli ára. Vanskil hafa aukist milli ára í
öllum flokkum lána. „Það verður að
teljast afar óhagstæð þróun á milli ár-
anna 2008 og 2009 hvað vanskil hafa
hækkað mikið,“ segir í ársskýrslunni.
Ærið verkefni bíður nýs embættis
umboðsmanns skuldara sem stofnað
verður þann 1.ágúst næstkomandi, en
samkvæmt fréttatilkynningu frá Ráð-
gjafarstofu heimilanna bíða 500 mál
úrlausnar. Ráðgjafarstofa heimilanna
verður lögð niður í þeirri mynd sem
hún er nú, á sama tíma og nýtt emb-
ætti tekur til starfa.
Heildarskuldir umsækjenda
hækka og vanskil aukast
Meðalumsækjandi hjá Ráðgjafarstofu heimilanna skuldar rúma 31 milljón kr.
Morgunblaðið/Golli
Vanskil Fasteignaskuldir vega þyngst af heildarskuldum heimilanna.
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
Stofnuð hefur verið rannsóknar-
stofa í þroskaþjálfafræðum við
menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Helstu hlutverk rannsóknarstof-
unnar er að stuðla að samfélagi án
aðgreiningar með því að stunda
rannsóknir, ráðgjöf og þróunar-
starf í málefnum fatlaðra.
Leitast verður við að efla rann-
sóknir á störfum og starfssviði
þroskaþjálfa. Þá mun rannsóknar-
stofan standa fyrir ráðstefnum,
málþingum og útgáfu og miðla
þekkingu á sviði þroskaþjálfa-
fræða. Guðrún V. Stefánsdóttir,
ábyrgðarmaður stofunnar, og
Steinunn Gestsdóttir, formaður
rannsóknarráðs menntavísinda-
sviðs, undirrituðu samninginn.
Í höfn Samningurinn undirritaður.
Þroskaþjálfun
Á morgun, laugardag, verður
Fuglavernd með fuglaskoðunar-
ferð í Gróttu í samstarfi við
Ferðafélag barnanna þar sem
áhersla er lögð á að skoða, telja
og teikna fugla og jafnvel semja
ljóð um fugla.
Mæting er við bílastæðið úti við
Gróttu kl. 10:00. Þátttaka er
ókeypis og eru allir velkomnir.
Fuglaskoðunarferð
Bjarni E. Sig-
urðsson, fyrrver-
andi skólastjóri,
hefur í sumar
flutt fyrirlestra
um Njálu í Ás-
garði á Hvols-
velli. Á morgun,
laugardag kl.
15:00, heldur
hann fyrir-
lestraröðinni
áfram með fyrirlestri þar sem farið
verður yfir þátt Bergþóru Skarp-
héðinsdóttur í Njáls sögu.
Í Ásgarði er einnig að finna
fjölda mynda af persónum Njálu,
túlkuðum af listakonunni Þórhildi
Jónsdóttur. Gestir geta því velt því
fyrir sér hvort þær eru eitthvað í
líkingu við þær persónur sem þeir
voru búnir að búa til í huga sínum.
Ræðir um hlutverk
Bergþóru í Njálu
Njáll í túlkun Þór-
hildar Jónsdóttur.
Costa del Sol
frá kr. 98.220
frá kr. 131.340 með öllu inniföldu
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum í
spennandi sumarleyfisferð til eins allra vinsælasta
sólaráfangastaðar Íslendinga, Costa del Sol. Í boði er
ferð 17. júlí í 10 nætur. Fjölbreytt gisting í boði á
ótrúlegum kjörum. Costa del Sol býður allt það helsta
sem maður getur óskað sér í fríinu. Gríptu þetta
einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum vinsæla
áfangastað í sumarfríinu.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða og herbergja í
boði - verð getur hækkað án fyrirvara.
Verð kr. 98.220 - Bajondillo ***
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára, í stúdíó-
íbúð í 10 nætur. Verð m.v. 2 í stúdíó kr. 114.900.
Sértilboð 17. júlí
Verð kr. 131.340 - Hotel Griego Mar ***
með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í
fjölskylduherbergi með "öllu inniföldu" í 10 nætur. Verð á mann m.v.
gistingu í tvíbýli með "öllu inniföldu" 10 nætur kr. 148.880. Sértilboð
17. júlí.
Verð kr. 129.900 Aguamarina ***
með fullu fæði (+ drykkir með mat)
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð með
1 svefnherbergi í 10 nætur með fullu fæði og drykkjum með
máltíðum. Verð m.v. 2 í stúdíóíbúð í 10 nætur kr. 159.900 með
fullu fæði og drykkjum með máltíðum. Sértilboð 17. júlí.
17. júlí í 10 nætur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
10 nátta ferð - ótrúleg kjör!
Gagnaveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
sími 516-7800 fax 516-7809
www.or.is/utbod
ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum til
Ljósleiðarablásturs og tengingar,
Borgir Víkur
Verk þetta nær til ljósleiðarablásturs og annarrar tengdrar vinnu á
þeim svæðum sem lýst er í útboðsgögnum. Verktaki skal annast
undirbúning og blástur ljósleiðarastrengja í rörakerfi GR ásamt
frágangi tenginga ljósleiðara.
Verkinu skal skila fullfrágengnu þannig að ljósleiðaraþráður sem
uppfyllir gæðakröfur GR sé komin á milli inntakskassa og
tengibrettis í tengistöð.
Verkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum GRV 2010/06
Verklok 1. áfanga eru 17. september 2010.
Verklok 2. áfanga eru 8. október 2010.
Útboðsgögnin er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu OR
www.or.is/UmOR/Utbod frá og með mánudeginum 5 Júlí 2010.
Tilboð verða opnuð hjá Gagnaveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1,
föstudaginn 16. júlí 2010, kl. 10:00.
GRV 2010/06 3.7.2010
Nærri tvöfalt fleiri leituðu sér
ráðgjafar hjá Ráðgjafarstofu
heimilanna á síðasta ári en það
gerðu árið 2007, áður en hrunið
skall á. Alls leituðu 1.184 eftir al-
mennri ráðgjöf á síðasta ári en
612 tveimur árum fyrr. Á hrun-
árinu 2008 voru umsækjendur
869.
Ef teknir eru með þeir sem
sóttu sér aðstoð vegna greiðslu-
aðlögunar þá var heildarfjöldi
viðskiptavina Ráðgjafarstofu
heimilanna alls 1623 í fyrra.
Tvöfalt fleiri
leita ráðgjafar
RÁÐGJAFARSTOFA HEIM-
ILANNA VEITIR FLEIRUM RÁÐ
Afgreiddar umsóknir
2007 2008 2009
612
869
1.184
439
Greiðsluaðlögun