Morgunblaðið - 02.07.2010, Page 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
ofin málverk og ljóð. Málaralistin,
sem hann stundaði fram til hins síð-
asta af elju og með aðdáunarverðum
árangri var Gísla eflaust hugstæðust
listsköpun. Ef til vill mætti segja, að
altaristaflan í Úthlíðarkirkju sé
safnnefnari þeirrar listsköpunar:
Hin mæta Guðsmóðir, kýrin, bókin,
möttullinn hlýi og fjöllin, sveitin –
óður hans til náttúru og sögu þessa
lands. Lista- og atorkumanninum
var þorinn kraftur. Skyldi Jóns-
messudraumur hans hafa verið ákall
listaskáldsins góða:
Sólin heim úr suðri snýr,
sumri lofar hlýju.
Ó, að ég væri orðinn nýr
og ynni þér að nýju.
Hver veit nema draumurinn hafi
ræst. Guð blessi Jóhönnu, Hrafn-
hildi, Bjarna og fjölskyldu og öðrum
ástvinum minninguna um góðan
dreng.
Jakob Þ. Möller.
Það er svo ljúft að minnast Gísla
vegna góðmennsku hans, hjálpfýsi
og göfuglyndis. Ég vann fyrir hann
þegar hann var ritstjóri Vikunnar
og þýddi þá fyrir hann smásögur úr
dönsku og ensku til að birta í Vik-
unni. Seinna varð Gísli ritstjóri Les-
bókar Morgunblaðsins og þá varð
samvinna okkar löng og góð. Alltaf
þegar ég hafði skrifað smásögu,
stemmu eða ljóð hringdi ég til Gísla
á Lesbókina og spurði hann hvort ég
mætti koma með hugverk mín til
hans og hann svaraði að hann myndi
lesa þau yfir. Ég fór oft með fleira
en eitt til Gísla og hann valdi úr. Ég
sat oft hjá honum dágóða stund á
skrifstofu Lesbókarinnar og við
ræddum margt saman. Hann málaði
mikið og hélt málverkasýningar og
ég fór á sýningar hjá honum og
keypti málverk sem var mér mjög
kært, því það minnti mig svo á sveit-
ina mína. Ég man þegar Gísli birti
ljóð eftir mig í hátíðarblaði Lesbók-
arinnar fyrir jólin og það vissi ég að
var mikill heiður. Þegar ég vann í
Noregi sendi ég Gísla ljóð eftir mig
og fannst mjög vænt um þegar fjöl-
skylda mín eða vinir hringdu til mín
til útlanda og hrósuðu mér fyrir ljóð
mín í Lesbók Morgunblaðsins. Gísli
gaf mér skrifleg meðmæli til að
senda með umsókn minni um dvöl í
Róm á Ítalíu til að vera þar og
skrifa.
Jesús blessi minningu þessa dá-
indismanns.
Valgerður Þóra
Benediktsson.
Við Gísli Sigurðsson áttum í sam-
starfi um langt árabil.
Segja má að það hafi hafist óbeint,
er hann var ritstjóri Vikunnar, og
hefur þá tekið á móti smásögu er
var þar tekin til birtingar, eftir móð-
ur mína, Amalíu Líndal, blaða-
mennskufræðing.
Sjálfur hitti ég hann fyrst í kring-
um 1969, er ég freistaði þess að fá
fyrstu smásögu mína birta, í Lesbók
Morgunblaðsins. Seinna, eftir að ég
kom heim frá mannfræðinámi, hófst
samstarf okkar er varði í næstum
tvo áratugi, til 2000. En þá hóf ég að
skrifa mikið í Lesbókina hans; bæði
ljóð, blaðagreinar, þýðingar og smá-
sögu. Voru frumsamin ljóð mín þar á
endanum orðin nógu mörg til að
fylla eina og hálfa ljóðabók! Nokkr-
um árum síðar tileinkaði ég eina
ljóðabók mína samstarfi okkar; enda
fækkaði svo ljóðabirtingum í Lesbók
eftir hans umsjónartíð, að ég hef síð-
ustu árin séð þann afarkost vænst-
an, að reyna að koma frumsömdum
ljóðum mínum sem mest að í víð-
lesnari minningargreinum í Morg-
unblaðinu.
Ég forðaðist eftir megni að hitta
Gísla augliti til auglitis, svo sem
háttur minn er með ritstjóra blaða,
til að samstarfið héldist á sem mál-
efnalegustum nótum. Þessu ýjaði ég
að í einu ljóðinu sem hann birti eftir
mig. Seinna lét hann mig raunar
heyra að ég hefði verið hans besti
penni!
Eitt sinn gladdi það hann að lesa
frá mér, að ég hefði spurt alnafna
hans, íslenskufræðinginn, hvers
vegna sá væri nú farinn að skrifa um
íslenskt mál í Lesbókina, án þess að
gera greinarmun á sjálfum sér og al-
nafna sínum blaðamanninum. Hefði
þá íslenskufræðingurinn svarað mér
sem svo, að hann væri ekki að skrifa
í blaðið, heldur blaðamaðurinn Gísli;
og hann bætti því við að ef hann
myndi skrifa í Lesbókina, þá hefði
hann einmitt viljað skrifa eins og
Gísli blaðamaður! Við þetta undr-
aðist ég, og taldi það til merkis um
hve Gísli var duglegur við að tileinka
sér aðra hluti en hann var sjálfur
sérmenntaður í. Ég lét Gísla vita að
ég teldi hann með listfengustu og
vönduðustu listmálurunum okkar.
Og seinna sá ég að hann var farinn
að taka landslagsljósmyndir sem
voru einmitt eins og hliðstæður mál-
verka hans. Og ennþá seinna lét ég
gefa mér málverkabókina hans, þar
sem hann yrkir ljóð sem aðfaraorð
að hverri mynd.
Eitt ljóð hef ég ort um listmálara,
en það var hinn forn-gríski Zeuxis.
En það fjallar um málverk hans af
Helenu fögru. Held ég nú, að ein
kveikjan að því hafi verið konumynd
eftir Gísla. En ljóðið heitir Zeuxis
málar Helenu, og birtist það í elleftu
ljóðabók minni, Kvæðaljóðum og
sögum (2008). Þykir mér nú hlýða að
birta upphafið á því hér, er ég kveð
minn gamla velgjörðarmann:
Um það bil sem við Aþeningar
vorum í sárum eftir Spartverja,
birtist hann, þessi frægi málari;
ríkur eins og andskotinn
fyrir nákvæmar eftirlíkingar sínar;
og fór að mála sjálfa Helenu;
þá sem olli Trójustríðunum.
Menn sáu í fegurð þeirrar frúar
eitthvað ógeðfellt í augunum,
einhvern fölva í kinnroðanum
sem sagði við þá sem svo:
Þarna er kominn okkar dauði
Tryggvi V. Líndal.
Gísli Sigurðsson
✝
Bróðir okkar,
JÓN JÓHANN KRISTJÁNSSON,
frá Eiði,
Borgarbraut 8,
Grundarfirði,
andaðist 28. júní á Sjúkrahúsinu á Akranesi.
Systkinin.
✝
Vinur okkar,
KJARTAN BJARNASON,
frá Djúpadal,
Vesturvegi 15a,
Vestmannaeyjum,
lést sunnudaginn 27. júní á heilbrigðisstofnuninni í
Vestmannaeyjum.
Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 10. júlí kl.14.00.
Hildur K. Oddgeirsdóttir
og fjölskylda.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN SÖLVI HELGASON,
Efra – Apavatni,
Bláskógabyggð,
sem lést á heilbrigðisstofnun Suðurlands
sunnudaginn 27. júní, verður jarðsunginn frá
Skálholtsdómkirkju laugardaginn 3. júlí og hefst
athöfnin klukkan 13.00.
Rúna Jónsdóttir, Jón Þór Ragnarsson,
Eyjólfur Óli Jónsson, Emilía Jónsdóttir,
Guðbjörg Þóra Jónsdóttir, Jóhann Reynir Sveinbjörnsson,
Sigríður Jónsdóttir, Örvar Ólafsson
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og langamma,
MARGRÉT JÚLÍUSDÓTTIR,
frá Bjarnastöðum,
lést á Sjúkrahúsi Akraness þriðjudaginn 29. júní.
Útförin fer fram frá Reykholtskirkju þriðjudaginn
6. júlí kl. 14.00.
Guðmundur Jónsson,
Hrefna Halldórsdóttir, David L. Bell,
Jófríður Guðmundsdóttir, Davíð G. Sverrisson,
Arndís Guðmundsdóttir, Sigurður R. Gunnarsson,
Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Jóhannes Kristleifsson,
börn og barnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Reynir Guðmundsson
skipstjóri,
Strikið 10,
Garðabæ,
áður Víðilundi 13,
Garðabæ,
lést að Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði föstudaginn 25. júní.
Útförin hefur farið fram frá Garðakirkju.
Unnur Reynisdóttir,
Elfar Reynisson
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur,
tengdasonur og afi,
JAKOB KRISTINSSON
vélvirki,
Ránargötu 25,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri þriðjudaginn
29. júní.
Jóhanna Maríanna Antonsdóttir,
Ragnheiður Jakobsdóttir, Rúnar Hermannsson,
Lilja Jakobsdóttir, Sævar Ísleifur Benjamínsson,
Anna Jakobsdóttir,
Kristinn Frímann Jakobsson, Guðrún S. Þorsteinsdóttir,
Elín Árnadóttir,
Ragnheiður Árnadóttir, Anton B. Finnsson,
Baldvin, Steinunn Alda, Hermann Helgi,
Maríanna Vilborg og Atli Jakob.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR H. KARLSSON
stýrimaður,
Vallengi 13,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 30. júní.
Þóra Kjartansdóttir,
Karl Guðmundsson, Brynja Hafsteinsdóttir,
Þuríður Saga Guðmundsdóttir, Guðni Ólason,
Sigurbjörg Unnur Guðmundsdóttir, Bjarni Þór Óskarsson,
Kjartan Ísak Guðmundsson, Erna Vigdís Ingólfsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur hins látna.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru,
MAGNÞÓRU KRISTÍNAR ÞÓRÐARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heima-
hlynningar og líknardeildarinnar í Kópavogi.
Sveinbjörn Árnason,
Ingibjörg Þ. Sveinbjörnsdóttir, Guðmundur B. Jóhannsson,
Árni Sveinbjörnsson, Marianne Sveinbjörnsson,
Sveindís M. Sveinbjörnsdóttir, Óskar Sigurbjörnsson,
Sigrún I. Petersen, Ingolf J. Petersen,
Díana S. Sveinbjörnsdóttir, Jón Þ. Traustason,
Kolbrún L. Sveinbjörnsdóttir, Stefán Halldórsson,
barnabörn, barnabarnabörn og
aðrir aðstandendur.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
BJÖRNS B. KRISTINSSONAR,
frá Fljótsbakka,
S-Þingeyjarsýslu,
til heimilis að Suðurgötu 21,
Sandgerði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A og D-deilda heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja fyrir sérstaklega góða umönnun og hlýtt viðmót.
Elsa Þorvaldsdóttir,
Björn Þorvaldur Björnsson,
Sigrún Rósa Björnsdóttir, Jóhann Birgisson,
María Sigurbjörg Björnsdóttir, Ægir Sigurðsson,
barnabörn og aðrir vandamenn.