Morgunblaðið - 02.07.2010, Side 34
AF MAT
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Smjör, smjör og smjör,“ svararKate þegar Nick spyr hanahver séu þrjú leyndarmál
franskrar matargerðar í kvikmynd-
inni No Reservations. Í myndinni
leikur Catherine Zeta-Jones yf-
irmatreiðslumeistara sem á í inni-
legra sambandi við jarðsveppi en
flest fólk í kringum hana. Þetta er
rómantísk gamanmynd og bara
svona í meðallagi afþreying, en ég
mundi eftir þessum þremur töfra-
orðum þegar ég horfði á myndina
Julie & Julia síðastliðna helgi.
Það er skemmst frá því að segja
að ég var yfir mig hrifin. Í Julie &
Julia er samtvinnuð saga listakokks-
ins Juliu Child og rithöfundarins Ju-
lie Powell, sem eldaði sig í gegnum
bók Juliu, Mastering the Art of
French Cooking, alls 524 upp-
skriftir, á einu ári.
Myndin er yndisleg. MerylStreep nær Juliu ótrúlega vel;
bæði röddinni og töktunum, hún
hreinlega verður Julia. Amy Adams
stendur sig líka prýðilega sem Julie,
sem fer hamförum í eldhúsinu til að
læra franska matargerð af næstum-
því-nöfnu sinni.
unum í matinn og svo upp í sig. Það
þótti þeim ekki beint geðslegt. Þær
hins vegar voru mjög hrifnar af
spjall- og matreiðsluþætti Rachael
Ray, fannst hún hress og skemmti-
leg, en mér fannst asinn og stans-
laust masið ofboðslega þreytandi.
Þær horfðu á Jamie Oliver, ég á
Gordon Ramsay.
Hvað sem því líður er það stað-reynd að fólk horfir á annað
fólk elda í bíómyndum og í sjónvarpi.
Matreiðsluþættir kenna okkur ekki
bara ný brögð í eldhúsinu, heldur
veita okkur líka innblástur, og matur
kveikir alls konar viðbrögð í heil-
anum, jafnvel þótt maður sé bara að
horfa á hann. Það er samt dálítið
spaugilegt að ranka allt í einu við sér
þegar matreiðsluþátturinn er búinn,
með vatnið í munninum og garna-
gaul í maganum. Því hvað svo sem
sjónvarpskokkarnir segja er svo
miklu auðveldara að horfa á en gera!
Maturinn á skjánum
Í gervi Juliu Julia Child lærði matreiðslu þegar hún dvaldi í Frakklandi og kenndi síðan Bandaríkjamönnum
franska matargerð í þáttunum The French Chef, auk þess sem hún gaf út ótal matreiðslubækur.
Það er dálítill munur á No Re-
servations og Julie & Julia, en hann
er sá að í fyrri myndinni eru sögu-
hetjurnar kokkar og maturinn í
aukahlutverki, en í þeirri seinni er
maturinn í sérstöku aðalhlutverki.
Ástríðan skín í gegn og maður næst-
um því finnur lyktina af Boeuf Bour-
guignon à la Julia Child og dauð-
langar að smakka leyniuppskriftina
að heimalöguðu mæjónesi. Þetta
kann að hljóma kjánalega, en það er
eitthvað svo ómótstæðilegt við mat,
jafnvel bara á skjánum.
En það er ekki alveg samahvernig maturinn er borinn á
borð (eða skjá) fyrir mann. Það kom
til dæmis eitt sinn í ljós að ég og
ákveðnar vinkonur mínar höfðum
mjög ólíkar skoðanir á því hvaða
sjónvarpskokka okkur þætti
skemmtilegt að horfa á.
Ég hélt mikið upp á Nigellu
Lawson, en þeim þótti hún óþolandi
af því að hún stakk gjarnan putt-
»Ég hélt mikið uppá Nigellu Lawson, en
þeim þótti hún óþolandi
af því að hún stakk
gjarnan puttunum í
matinn og svo upp í sig.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Killers kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára The A-Team kl. 5:20 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Killers kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 LÚXUS Get Him to the Greek kl. 5:30- 8 - 10:25 B.i. 12 ára
Grown Ups kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ Húgó 3 kl. 4 íslenskt tal LEYFÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
H E I M S F R U M S Ý N D
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Killers kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Grown Ups kl. 6 - 8 LEYFÐ
The A-Team kl. 10 B.i. 12 ára
Háskólabíó
Föstud 2 júlí
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
FRÁ LEIKSTJÓRA FORGETTING SARAH MARSHALL
OG FRAMLEIÐANDA KNOCKED UP
KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND SUMARSINS
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
HHHH
„Ofursvöl Scarface
Norðurlanda“
Ómar Eyþórsson X-ið 977SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng