Fréttablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
NÝJUNG
FETAKU
BBUR
Ljúffengar uppskriftir
með fetaosti er að finna
á www.gottimatinn.is
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/T
O
Y
56
74
5
11
/1
1
Miðnætur
Í kvöld, 10. nóvember
Fimmtudagur
skoðun 24
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Popp
10. nóvember 2011
263. tölublað 11. árgangur
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Opið mán.-fös. 10-18.Opið á laugardögum 10-14.þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.is
TILBOÐ TILBOÐ - ÞESSI TEGUND OG FLEIRI Á 25% AFSLÆTTI
teg 9351 - létt fylltur, mjúkur í B C skálum áður kr. 4.600,-
NÚ KR. 3.450,- buxur áður kr. 1.995,- NÚ KR. 1.496,-
Öflugt hamrandi nudd sem dregur úr vöðvabólgu.
Fjölbreyttir stillimöguleikar.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
NÝTT
Háls og herðanudd
Vertu vinur okkar á facebook
Vorum að taka uppjólalínuna fráTUZZI og Apanage.
Kjólar,
bolero jakkar,bolir,
toppar
og pils.
Óhætt er að segja að þessi gula múndering
sé í skrautlegra lagi, en hún var á meðal þess
sem sýnt var á Artez-tískusýningunni í Aruba á
dögunum. Ekki fylgir fréttinni hver hugsunin var
á bak við flíkina en hún var að minnsta kosti
ekki hönnuð með þægindi í huga.
Þ etta er fyrsta alvöru-skrefið sem við tökum til að vekja athygli á merkinu þarna úti, þótt kannski sé nærri lagi að tala um hænuskref,“ segir Berg-þóra Guðnadóttir hönnuðFarm
Concept Store í Soho, New York.Vetrarlínan samanstendur af dömu- og herrafatnaði, yfir-höfnum, kjólum, peysum, buxum og ullarnærfatnaði sem endurspegla íslen k
smám saman að hanna í kringum þær, síðast ullarnærföt sem eru svo praktísk að maður gæti nán-ast klæðst þeim eiá
Fatahönnunarfyrirtækið Farmers Market frumsýnir nýja vetrarlínu í Kisu Concept Store í New York.
Hænuskref í stóra eplinu
TÓNLISTARBLAÐ • 10 NÓVEMBER 2011
RIGNING SYÐRA Í dag verða víða
suðaustan eða austan 8-15 m/s
en sums staðar hvassara við S- og
A-ströndina. Rigning einkum SA-
lands en þurrt N-til. Milt í veðri.
VEÐUR 4
9
7
6
8
10
Gefur hlutum nýtt líf
Elísabet Olka með fyrstu
myndlistarsýningu sína í
Kaupmannahöfn.
fólk 56
Laus við meiðslin
Ásdís
Hjálmsdóttir
keppti meidd
í hálft ár en
náði samt
góðum árangri.
sport 66
Styrkur til sjálfstæðis
Blindravinnustofan hefur
starfað í sjötíu ár.
tímamót 36
FJARSKIPTI Póst- og fjarskipta-
stofnun hefur nú til rannsóknar
mál sem varðar meinta símhlerun
starfsmanns símafyrirtækis. Þetta
staðfestir Hrafnkell Gíslason, for-
stjóri PFS, við Fréttablaðið. Hann
segir þetta mál það fyrsta sinnar
tegundar sem stofnunin hafi feng-
ið til athugunar. Því sé ekki lokið
en muni ljúka í þessum mánuði.
Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst sakar fyrrverandi
maki starfsmannsins hann um að
hafa hlerað síma sinn. Blátt bann
er lagt við slíku í fjarskiptalögum
og ríkar skyldur lagðar á síma-
fyrirtækin að tryggja leynd fjar-
skipta.
Ekkert utanaðkomandi eftirlit
er með framkvæmd símhlerana
í þágu rannsókna lögreglu. Póst-
og fjarskiptastofnun hefur sett
almennar reglur um framkvæmd-
ina en sinnir ekki reglulegu eftir-
liti. Lítil hópur tæknimanna, sem
stjórnendur fyrirtækjanna vita
ekki hverjir eru, tengir þau síma-
númer sem vilji er til að hlera
við lögregluna að undangengnum
dómsúrskurði. Engin skipulögð leit
fer fram innan fyrirtækjanna að
sporum sem hleranir skilja eftir
sig. Þetta kemur fram í svörum
Símans, Vodafone, Nova og Tals
við fyrirspurn Fréttablaðsins um
málið.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður
greiningardeildar Ríkislögreglu-
stjóra, bendir á að lögreglan skoði
ekki bakgrunn þeirra starfsmanna
sem komi að tengingu vegna sím-
hlerana hjá fjarskiptafyrirtækjun-
um. Úr því þurfi að bæta.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra segir að þarna sé um að
ræða brotalöm í kerfinu til vernd-
ar réttindum borgaranna, sem
verði að laga. -jss, þsj / sjá síðu 16
Símastarfsmaður er
grunaður um hlerun
Póst- og fjarskiptastofnun rannsakar grun um símhlerun starfsmanns síma-
fyrirtækis. Ekkert utanaðkomandi eftirlit er með framkvæmd símhlerana.
Innanríkisráðherra segir brotalamir í kerfinu sem verði að laga.
ALÞINGI Erfiðlega gekk að ná fjáraukalögum út úr
fjárlaganefnd og þurfti að fresta fundi nefndarinnar
í gær. Ástæðan var deilur um heimild til fjármála-
ráðherra vegna Vaðlaheiðarganga. Eftir þingflokks-
fund Samfylkingarinnar var fundað á ný og málið
afgreitt úr nefnd.
Fjármálaráðherra fær heimild til að lána Vaðla-
heiði ehf. allt að einum milljarði króna vegna fram-
kvæmdarinnar. Skilyrði er að hún sé arðbær og
verður ráðherra að kynna nefndinni samninga áður
en gengið verður frá þeim. Þá fær ráðherra heim-
ild til að ábyrgjast fjármögnun upp á 8,8 milljarða
króna vegna framkvæmdarinnar.
„Fjármálaráðherra er með þessu veitt full heim-
ild til að setja verkið af stað og hann mun síðan
upplýsa fjárlaganefnd um málið áður en skrifað
verður undir. Heimildin er hins vegar mjög skýr,“
segir Björn Valur Gíslason, varaformaður fjárlaga-
nefndar.
- kóp / sjá síðu 4
Stjórnarflokkarnir deildu um heimild ráðherra vegna Vaðlaheiðarganga:
Göngin ógnuðu fjáraukalögum
Þarna er brotalöm
í kerfinu sem ég vil
kalla varnarkerfi fyrir réttindi
borgarans.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
INNANRÍKISRÁÐHERRA
GRIKKLAND Viðræður um myndun
þjóðstjórnar í Grikklandi standa
enn yfir. Um miðjan dag í gær
gengu fulltrúar litla hægriflokks-
ins Laos á dyr og var þá gert hlé
á viðræðunum, sem hafa staðið
yfir frá því á sunnudag. Þeim
verður þó haldið áfram í dag.
Að sögn grískra fjölmiðla er
enn deilt um hlutverk stóru flokk-
anna í stjórninni og forsætis-
ráðherraefni. Georg Papandreú,
fráfarandi forsætisráðherra,
flutti í gær ávarp í sjónvarpi
sem talið var að væri kveðju-
ávarp hans. Þar hét hann því að
nýja ríkisstjórnin myndi koma í
framkvæmd óvinsælum aðhalds-
aðgerðum í tengslum við nýjasta
björgunarpakka ESB. - mþl
Pólitísk flækja í Grikklandi:
Erfið myndun
þjóðstjórnar
PAPANDREÚ Fráfarandi forsætisráðherra
flutti sjónvarpsávarp í gær. NORDICPHOTOS/AFP
FLIKK FLAKK Fjöldi áhorfenda fylgdist í gær með opinni æfingu hjá blönduðu fimleikaliði Ármanns og
Stjörnunnar í Ásgarði í Garðabæ. Liðið heldur í dag utan til Noregs, þar sem það tekur þátt í Norðurlandamótinu í
fimleikum, en þar munu Evrópumeistarar Gerplu einnig keppa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
TYRKLAND Jarðskjálfti sem mæld-
ist 5,7 stig á Richter-kvarða
varð í austurhluta Tyrklands á
áttunda tímanum í gærkvöldi. Að
minnsta kosti 18 byggingar féllu
í borginni Van, þar á meðal sex
hæða hótel sem hýsti nokkurn
fjölda erlendra blaðamanna.
Talið er að fjöldi fólks hafi
látist í skjálftanum og að margir
séu fastir í rústum hinna föllnu
húsa. Björgunarstarf var rétt að
hefjast þegar Fréttablaðið fór í
prentun.
Skjálftinn varð í sama héraði
og 7,2 stiga jarðskjálftinn sem
varð rúmlega 600 manns að bana
í október. - mþl
Talið að fjöldi fólks hafi látist:
Annar skjálfti
skók Tyrklandi