Fréttablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 70
10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR54
bio@frettabladid.is
Ben Stiller hefur tekist, þrátt
fyrir að vera fremur lágvax-
inn og ó-kvikmyndalegur í
útliti, að verða ein skærasta
kvikmyndastjarna heims.
Taugaveiklaðar og sein-
heppnar persónur eru sér-
fag Stiller, sem fékk leikara-
bakteríuna í vöggugjöf.
Nýjasta kvikmynd Ben Stiller,
Tower Heist, verður frumsýnd
um helgina. Valinn maður er í
hverju rúmi; Eddie Murphy, Casey
Affleck, Alan Alda, Matthew
Broderick, Téa Leoni og Gabourey
Sidibe, svo fátt eitt sé nefnt. Mynd-
in segir frá því þegar hópur verka-
fólks í New York uppgötvar, sér til
mikillar skelfingar, að það hefur
verið haft að féþúfu af auðjöfr-
inum Arthur Shaw. En í stað þess
að gefast upp þá skipuleggur hóp-
urinn umsvifamikið og ansi flókið
rán til að hefna sín á fjármálafurs-
tanum. Leikstjóri myndarinnar er
Brett Ratner en myndin hefur feng-
ið ágætis dóma í Bandaríkjunum,
samkvæmt rotten tomatoes.com eru
sjötíu prósent gagnrýnenda sáttir
með hana.
Það lá einhvern veginn alltaf
fyrir að Ben Stiller myndi hella
sér útí skemmtanabransann. Faðir
hans, Jerry Stiller og móðir, Anne
Meare, nutu bæði tvö mikillar virð-
ingar innan grínsenunnar í Banda-
ríkjunum. Foreldrarnir tóku strák-
inn snemma með á tökustaði og
hann sýndi þá strax kvikmynda-
gerðinni mikinn áhuga. 8mm kvik-
myndir urðu snemma til og for-
eldrarnir áttu þess engan annan
kost en að gefa honum tækifæri til
að spreyta sig í hinum harða heimi
Hollywood (miklir Stiller-aðdáend-
ur geta leitað að honum í Empire
of the Sun og Next of Kin með Pat-
rick Swayze auk þess sem leikar-
inn birtist í einum þætti af Frasier).
Stiller sló hins vegar fyrst í gegn
á MTV-tónlistarstöðinni sem þátta-
stjórnandi og leikstjóri The Ben
Stiller Show. Hann naut liðsinnis
Judd Apatow við að koma þáttun-
Snemma beygist krókurinn
Síðasta Harry Potter-myndin er tilnefnd til níu
verðlauna hjá People-tímaritinu. Hin heilaga
þrenning, Emma Watson, Rupert Grint og
Daniel Radcliffe eru öll tilnefnd sem kvik-
myndastjarna ársins undir 25 ára aldri auk
þess sem Radcliffe keppir um verðlaunin
leikari ársins við þá Johnny Depp, Robert
Pattinson, Ryan Reynolds og Hugh Jackman.
Leikkonurnar Emma Stone, Jennifer Aniston,
Julia Roberts, Anne Hathaway og
Reese Witherspoon keppa um leik-
konu-verðlaun ársins.
Harry Potter og dauðadjásn-
in keppir við sjóræningja-
myndina On Stranger
Tides, Transformers:
Dark of the Moon, The
Help og Bridesma-
ids um titilinn besta
myndin en People-
verðlaunin eru ágætis
vísbending um þá sem
þykja hafa staðið sig í
stykkinu í bandarískum
afþreyingariðnaði. Sjón-
varpsþátturinn Glee er til-
nefndur til sjö verðlauna eins
og söngkonan Katy Perry. Sam-
kvæmt skipuleggjendum hátíð-
arinnar bárust fjörutíu milljón-
ir atkvæða í gegnum netið.
Harry Potter fær
níu tilnefningar
BESTA UNGA LEIKKONAN Emma
Watsons er tilnefnd sem besta unga
leikkonan á People-verðlaunahá-
tíðinni. Síðasta Harry Potter-myndin
fékk níu tilnefningar.
Kvikmyndin The Ides of March
verður frumsýnd um helgina.
Þetta er fjórða myndin sem
George Clooney leikstýrir og
það dylst engum að stór stjarnan
rennir hýrum augum til Óskars-
verðlaunanna. Clooney er einnig
einn af handritshöfundum
myndar innar, sem er skrifuð upp
úr leikverkinu Farragut North
eftir Beau Willimon.
Clooney leikur auk þess eitt
aðalhlutverkanna í myndinni, sem
fjallar um stjórnmála umhverfið í
Bandaríkjunum. Hún segir frá
hinum unga og metnaðarfulla
Stephen Meyers sem starfar að
forsetaframboði ríkisstjóra Penn-
sylvaníu og sér fram á bjarta
framtíð. Hann er hins vegar óvænt
dreginn inn í myrkustu skúmaskot
bandarískrar pólitíkur þar sem
menn svífast einskis og svipta and-
stæðinga sína mannorðinu án þess
að hika. Ef einhver skyldi velkjast
í vafa um hversu magnþrungin
myndin á að vera er rétt að geta
þess að heiti hennar vísar til dags-
ins þegar Júlíus Sesar var drepinn
árið 44 fyrir Krist.
Myndin er kynnt sem pólitískur
tryllir og hefur fengið afbragðs
góða dóma; hún fær 7,5 á imdb.com
og 85 prósent gagnrýnenda eru
sátt samkvæmt samantekt rotten-
tomatoes.com. Meðal annarra leik-
ara í myndinni eru Ryan Gosling,
Philip Seymour Hoffman, Evan
Rachel Wood og Marisa Tomei.
Clooney horfir til Óskarsins
ÓSKARSVÆN Kvikmyndin The Ides of
March hefur fengið afbragðsgóða dóma,
en þetta er fjórða kvikmyndin sem
George Clooney leikstýrir.
> REKINN
Leikstjórinn Brett Ratner, maður-
inn sem almennt er talinn ábyrg-
ur fyrir því að Eddie Murphy verði
kynnir á Óskarnum á næsta
ári, hefur látið af störfum
eftir að hafa sagt niðrandi
brandara um samkyn-
hneigða á blaðamanna-
fundi og í útvarpsþætti
Howard Stern. Eftir-
maður hans hefur ekki
verið ráðinn.
Það er ekki tekið út með sældinni
að vera nýjasta Bond-stúlkan. Sam-
kvæmt breska götublaðinu Daily
Star hafa framleiðendur Skyfall,
nýjustu Bond-myndarinnar, farið
þess á leit við Naomie Harris að hún
breyti rödd sinni. Harris á að leika
hina goðsagnakenndu Miss Money-
penny og í stað þess að sitja við
skrifborð sitt og bjóða James Bond
velkominn á fund M með daðrandi
athugasemdum á hún að vera fær
leyniþjónustukona sem starfar á
vettvangi dagsins.
Og af þeim sökum vilja framleið-
endurnir ekki að þessi fræga kona
hljómi eins og táningsstúlka og hafa
því beðið Harris um að lækka tóninn
í röddinni sinni. „Hún er með mjög
stelpulega rödd en þeir vilja hafa
hana kvenlegri og kynþokkafyllri og
hafa þess vegna beðið hana um að
breyta röddinni fyrir framan töku-
vélarnar,“ hefur Daily Star eftir
heimildarmanni sínum.
Það vakti töluverða athygli þegar
í ljós kom að Miss Moneypenny yrði
þeldökk í Skyfall. Og ef marka má
orð Harris er ljóst að Bond-aðdáend-
ur mega búist við fleiri breytingum.
„Hún verður mjög sérstök,“ var haft
eftir Harris sem bætti því við að hún
hefði alltaf hrifist af frammistöðu
Grace Jones í A View to a Kill. „Hún
var ekki eiginleg Bond-stúlka, hún
var þorpari.“
Breytir röddinni fyrir Skyfall
DIMMRADDAÐRI Framleiðendur Skyfall hafa beðið
Naomie Harris um að breyta aðeins röddinni, vera
aðeins kvenlegri og kynþokkafyllri.
ÞÁ OG NÚ
Ben Stiller sýndi snemma að leiðin
lægi í kvikmyndagerð. Pabbi hans,
Jerry Stiller, tók hann með sér á töku-
staði og strákurinn fékk að reyna sig
í kvikmyndaleik. Zoolander er senni-
lega eitt frægasta hlutverk Stiller, en
kvikmyndir leikarans mala yfirleitt
gull í miðasölu.
um á koppinn og gerði í þeim grín
að þekktum sjónvarpsþáttum og
kvikmyndum. Stiller varð jafn-
framt hluti af hinu svokallaða Frat
Pack sem ræður ríkjum í banda-
rísku gríni um þessar mundir, með-
limir þess eru meðal annars Wil-
son-bræðurnir Owen og Luke, Will
Ferrell og Vince Vaughn.
Velgengni Stiller varð til þess að
honum var úthlutuð leikstjórastaða
kvikmyndarinnar Reality Bites þar
sem hann lék einnig aðalhlutverk-
ið á móti Winonu Ryder. Myndin
naut töluverðra vinsælda, ekki síst
vegna þeirrar frábæru tónlistar
sem hljómaði í myndinni enda var
hún runnin undan rifjum MTV.
Hins vegar átti MTV engan þátt í
velgengni Cable Guy sem Stiller
stýrði af mikilli snilld og skartaði
þeim Matthew Broderick og Jim
Carrey í aðalhlutverkum. Kvik-
myndin There‘s Something About
Mary eftir Farelly-bræður skaut
honum sjálfum uppá stjörnuhim-
ininn og var jafnframt upphafið að
einkennishlutverki leikarans; eilít-
ið taugaveiklaður, góðhjartaður og
ákaflega seinheppinn náungi sem
stendur uppi sem sigurvegari undir
lok kvikmyndarinnar.
Framhaldið þekkja síðan flestir,
kvikmyndir Stiller mala öllu jafnan
gull og hafa þénað að meðaltali 73
milljónir dollara í miðasölu. Stiller
gæti orðið ansi góður vinur Íslands
ef allt nær fram að ganga því hann
hefur í hyggju að gera kvikmyndina
The Secret Life of Walter Mitty hér
á landi eins og Fréttablaðið hefur
greint frá. freyrgigja@frettabladid.isJÓLAGJAFA
HANDBÓKIN
KEMUR ÚT 29. NÓVEMBER
MEÐAL EFNIS
Í BLAÐINU:
Jólaljósin, kökur og sætindi,
skraut og föndur, matur og borðhald
jólasiður og venjur
Bókið auglýsingar tímanlega:
Benedikt Freyr Jónsson
S: 512 5411, gsm 823 5055
benediktj@365.is
Ívar Örn Hansen
S: 512 5429 , gsm 615 4349
ivarorn@365.is
Sigríður Dagný
S: 512 5462, gsm 823 3344
sigridurdagny@365.is