Fréttablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 80
10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR64 sport@frettabladid.is U-21 LIÐ ÍSLANDS mætir Englendingum í undankeppni EM 2013 í Colchester á morgun. Völlurinn, Weston Homes Community-völlurinn, tekur tíu þúsund manns í sæti og er uppselt á leikinn. Ísland er með þrjú stig í riðlinum eftir þrjá leiki en England trónir á toppnum með fullt hús stiga. Gengi liða 2009-2011 Gengi liða á Íslandsmótinu út frá spám fyrir Íslandsmótin 2009, 2010 og 2011: Stjarnan +12 sæti ÍBV +9 Fylkir +4 Breiðablik 0 FH –1 Fram –2 Grindavík –5 Valur –6 Keflavík –7 *Aðeins lið sem voru með öll þrjú árin. FÓTBOLTI Stjörnumenn komu mikið á óvart í sumar þegar litið er á spá forráðamanna, fyrirliða og þjálfara fyrir mót. Stjörnu- liðinu var spáð 10. sætinu en var síðan aðeins hárbreidd frá því að ná þriðja sætinu, sem hefði gefið sæti í Evrópukeppni. Þetta er ekki fyrsta sumarið sem Stjörnu- menn koma á óvart undir stjórn Bjarna Jóhannssonar því þegar betur er að gáð kemur í ljós að Garðbæingar hafa hækkað sig samanlagt um tólf sæti síðustu þrjú sumur ef lokastaða liðsins er borin saman við spána í byrjun móts. Stjörnuliðinu var spáð 12. sæti 2009 (7. sæti), 9. sæti 2010 (8. sæti) og loks 10. sæti í ár (4. sæti). Eyjamenn koma næstir (upp um 9 sæti) en Keflavík (niður um 7 sæti), Valur (-6) og Grindavík (-5) hafa hins vegar valdið mest- um vonbrigðum undanfarin þrjú tímabil ef tekið er mið af þessari tölfræði. - óój Stjarnan gefur lítið fyrir spár: Hækkuðu sig um heilt mót ÖFLUGIR Halldór Orri Björnsson er einn þeirra leikmanna sem hafa farið fyrir Stjörnunni síðustu þrjú árin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Gunnar Örn Jónsson, kantmaðurinn öflugi úr KR, skrif- aði í gær undir tveggja ára samn- ing við Stjörnuna. Hann var samn- ingslaus eftir fjögurra ára dvöl hjá KR, sem varð Íslands- og bikar- meistari í sumar. „Það var kominn tími á að skipta og fá að spila almennilega,“ sagði Gunnar um ástæður þess að hann ákvað að fara frá KR. „Ég fékk að spila mikið fyrstu tvö árin mín hjá KR en eftir að ég lenti í meiðslum árið 2010 urðu tækifærin færri og ég átti erfitt með að komast í liðið, sem var að spila mjög vel. Mér líst nú afar vel á að vera kominn hing- að í Garðabæinn.“ Bjarni var ánægður með að fá Gunnar Örn í félagið og sagði að það myndi skerpa enn á sóknar- leik liðsins. Smellpassar í liðið „Ég vil meina að hann smellpassi í okkar leikaðferð og þær áætl- anir sem ég hef fyrir liðið,“ sagði Bjarni á blaðamannafundi Stjörn- unnar í gær. „Koma hans eykur ekki bara samkeppnina í liðinu heldur einnig breiddina og gæðin. Við höfum ekki verið með nógu marga leikmenn í gegnum tíð- ina sem geta flokkast sem mjög sterkir knattspyrnumenn og þann þátt verðum við að styrkja, þó það væri ekki nema bara til þess eins að verja fjórða sætið á næsta ári.“ Hann segir einnig að með komu Gunnars Arnar verði liðið stöð- ugra. Þeir Daníel og Jóhann Lax- dal, sem báðir eru varnarmenn, spiluðu stundum á hægri kantin- um í sumar en með tilkomu Gunn- ars geti þeir einbeitt sér frekar að sínu. „Við vorum svolítið rokkandi í fyrra enda var liðið ekki næstum því fullmótað þegar mótið hófst í vor. Veturinn var okkur mjög erfiður og við vitum að ef Stjarnan ætlar sér að vera með í einhverri baráttu næsta sumar verðum við að vera með í henni strax frá upp- hafi.“ Gunnar Örn var ánægður með að heyra Bjarna tala á þessum nótum. „Ég þekki Bjarna vel og mér líst mjög vel á það sem hann hefur í hyggju. Ég vissi að ég væri leikmaður að hans skapi og það er spennandi sumar fram undan.“ Vörnin verður líka góð Stjarnan hefur verið fyrst og fremst þekkt fyrir að skora mikið af mörkum undanfarin ár og leikir liðsins iðulega hin mesta skemmt- un. „Það er rosalega spennandi að taka þátt í sóknarleik Stjörn- unnar og hann heillar mig mjög mikið,“ bætti Gunnar við. „Auð- vitað þarf að skerpa á varnar- leiknum líka og ég veit að hann verður góður næsta sumar, með þá Laxdal bræður, Hörð Árnason, Tryggvi Bjarnason og fleiri. Þetta er hörkuvörn sem þarf bara að slípa aðeins til. Þegar það verður komið verður Stjarnan komið með afar sterkt lið.“ eirikur@frettabladid.is Sóknarleikurinn heillandi Gunnar Örn Jónsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Stjörnuna. Stjarnan skoraði flest mörk allra liða í Pepsi-deildinni í sumar og ljóst að koma Gunnars mun styrkja sóknarleik liðsins enn frekar. Þjálfarinn var ánægður. ÁNÆGÐUR MEÐ SINN MANN Bjarni Jóhannsson þjálfaði Gunnar Örn Jónsson hjá Breiðabliki á sínum tíma. Þeir hittast nú á nýjan leik í Garðabænum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Iceland Express-d. kvenna Fjölnir - Njarðvík 78-99 (41-48) Fjölnir: Brittney Jones 40/7 fráköst, Katina Mandylaris 20/16 fráköst, Birna Eiríksdóttir 9, Erla Sif Kristinsdóttir 7, Eva María Emilsdóttir 2. Njarðvík: Shanae Baker 34/8 fráköst, Lele Hardy 23/17 fráköst/7 stolnir, Petrúnella Skúladóttir 17, Sara Dögg Margeirsdóttir 10, Ólöf Helga Pálsdóttir 4, Salbjörg Sævarsdóttir 4, Emelía Ósk Grétarsdóttir 4, Erna Hákonardóttir 2, Aníta Carter Kristmundsdóttir 1. Valur - Hamar 61-69 (36-34) Valur: Melissa Leichlitner 15/7 stoðsendingar, Guðbjörg Sverrisdóttir 15, María Ben Erlings- dóttir 12/12 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 4, Þórunn Bjarnadóttir 4, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 4, Berglind Karen Ingvarsdóttir 3, Hallveig Jónsdóttir 2, Signý Hermannsdóttir 2. Hamar: Hannah Tuomi 26/17 fráköst, Samantha Murphy 25/8 fráköst, Álfhildur Þorsteinsdóttir 6/15 fráköst, Sóley Guðgeirsdóttir 5, Kristrún Rut Antonsdóttir 3, Jenný Harðardóttir 2, Marín Laufey Davíðsdóttir 2. Haukar - KR 66-60 (40-27) Haukar: Jence Ann Rhoads 21, Íris Sverrisdóttir 15 Hope Elam 12/15 fráköst, Margrét Rósa Hálfdánardótir 8, Sara Pálmadóttir 4, Auður Íris Ólafsdóttir 3, Guðrún Ósk Ámundardóttir 3. KR: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 16, Erica Prosser 15, Hafrún Hálfdánardóttir 11, Margrét Kara Sturludóttir 8, Bryndís Guðmundsdóttir 8/12 fráköst, Helga Einarsdóttir 2. Keflavík - Snæfell 82-66 (59-35) Keflavík: Jaleesa Butler 27/20 fráköst, Birna Valgarðsdóttir 13, Pálína Gunnlaugsdóttir 11, Sara Hinriksdóttir 9, Lovísa Falsdóttir 7, Sandra Lind Þrastardóttir 6, Hrund Jóhannsdóttir 6, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2, Helga Hallgrímsdóttir 1. Snæfell: Kieraah Marlow 19, Hildur Sigurðar- dottir 16/9 fráköst, Hildur Kjartansdóttir 13 Helga Hjördís Björgvinsdóttir 12, Björg Einarsdóttir 3, Alda Leif Jónsdóttir 2, Sara Mjöll Magnúsdóttir 1. STAÐAN Keflavík 6 5 1 537-438 10 KR 6 5 1 457-410 10 Njarðvík 6 4 2 533-492 8 Hamar 6 2 4 423-479 4 Valur 6 2 4 369-390 4 Fjölnir 6 2 4 454-496 4 Haukar 6 2 4 429-458 4 Snæfell 6 2 4 371-410 4 Þýski handboltinn A-deild: Lübbecke - Kiel 22-32 Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel en Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins. B-deild: Rheinland - Nordhorn 23-24 Björgvin Hólmgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir Rh. ÚRSLIT Almar Guðmundsson (á mynd), formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, tilkynnti í gær að knattspyrnuvöllur liðsins fengi nýtt gervigras fyrir næsta sumar og að það yrði af bestu mögulegu gerð. Bjarni Jóhannsson, þjálfari liðsins, segir um byltingu að ræða. „Sérstaklega fyrir leikmennina. Það er him- inn og haf á milli í gæðum á gamla grasinu og þess nýja. Með þessu er félagið að taka stórt framfaraskref en fram undan er heilmikil vinna í framtíðarskipulagi fyrir æfingasvæði Stjörnunnar og margar spenn- andi hugmyndir uppi á borðinu,“ sagði Bjarni. „En þessi breyting nú, að skipta um gras, er löngu tímabær.“ Stjörnuvöllur „teppalagður“ upp á nýtt FÓTBOLTI Valur Fannar Gíslason gekk í gær til liðs við Hauka en hann hefur undanfarin ár leikið með Fylki. Þá var einnig staðfest að Magnús Páll Gunnarsson léki með liðinu næsta sumar en hann var síðast á mála hjá Víkingi. Ólafur Jóhannesson, fyrr- verandi landsliðsþjálfari, stýrir Haukum. Liðsstyrkur fyrir Hauka: Valur Fannar í Hafnarfjörðinn Stórt Rís 59 kr ...opið í 20 ár KÖRFUBOLTI Haukar gerðu sér lítið fyrir í gærkvöldi og lögðu KR-inga í Iceland Express-deild kvenna, 66-60, er heil umferð fór fram í deildinni. Þetta var fyrsti tap- leikur KR á tímabilinu en Keflavík skellti sér á toppinn með öruggum sigri á Snæfelli, 82-66. Ógöngur Vals halda áfram en liðið mátti þola tap gegn Hamri á heimavelli í gær. Þá töpuðu ný liðar Fjölnis fyrir Njarðvík í Grafar- voginum. Hin bandaríska Jence Ann Rhoades fór mikinn í liði Hauka í gær, þá sérstaklega í fyrri hálfleik er Haukar náðu myndarlegu for- skoti. Rhoades skoraði alls 21 stig í leiknum, þar af sautján í fyrri hálfleik. Íris Sverrisdóttir átti einnig góðan leik en einnig fleiri leikmenn, svo sem Hope Elam sem tók alls fimmtán fráköst. Hjá KR munaði mikið um að Margrét Kara Sturludóttir náði sér ekki á strik, en hún skoraði átta stig í leiknum. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var stigahæst KR- inga með sextán stig. Valskonur byrjuðu tímabilið vel og unnu fyrstu tvo leikina sína. En síðan þá hefur ekkert gengið og nýliðarnir tapað fjórum leikjum í röð. Liðið er þó skipað mörgum öfl- ugum leikmönnum sem hafa náð sér illa á strik í síðustu leikjum. Hvergerðingar eru greinilega með afar öfluga útlendinga sem keyra sitt lið áfram. Samantha Murphy og Hannah Tuomi skor- uðu samtals 49 af 69 stigum liðsins í gær. Murphy fór á kostum í þriðja leikhluta, er Hamar sneri leiknum sér í vil og skoraði þá sautján stig – sjö stigum meira en allt Valsliðið til samans í leikhlutanum. Valur hafði náð átta stiga for- ystu í öðrum leikhluta, 31-23, en leikur liðsins virtist svo hrynja í seinni hálfleiknum. Fjölnir hóf tímabilið vel, með því að vinna Íslands- og bikar- meistara Keflavíkur. En liðið mátti þola slæmt tap gegn Njarðvík þar sem það fékk á sig 99 stig. - esá Óvænt úrslit er heil umferð fór fram í Iceland Express-deild kvenna í gær: Haukar fyrstir til að vinna KR STERK Jence Ann Rhoades skoraði 21 stig fyrir Hauka í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.