Fréttablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 66
10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR50 tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds- son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Skýringar: Sæti Flytjandi Plata 1 Mugison .................................................................... Haglél 2 Of Monsters and Men ............My Head Is an Animal 3 Björk ..................................................................... Biophilia 4 Hjálmar .......................................................................... Órar 5 Lay Low ................................................ Brostinn strengur 6 Coldplay .......................................................... Mylo Xyloto 7 Helgi Bjö. & reiðm. vindanna ...Ég vil fara upp í sveit 8 Quarashi.............................................................Anthology 9 Jón Jónsson ..................................................Wait for Fate 10 GRM ...............................................................Þrjár stjörnur TÓNLISTINN Vikuna 3. - 9. nóvember 2011 LAGALISTINN Vikuna 3. - 9. nóvember 2011 Sæti Flytjandi Lag 1 Of Monsters and Men ..................King and Lionheart 2 Hjálmar ..................................................Ég teikna stjörnu 3 Goyte / Kimbra ................Somebody I Used to Know 4 Mugison ............................................................. Kletturinn 5 Adam Levine / Christina Agu. .....Moves Like Jagger 6 Coldplay ................................................................Paradise 7 Lady Gaga ...........................................................You And I 8 Jón Jónsson .................................................Wanna Get It 9 Florence & The Machine ........................... Shake It Out 10 Lay Low ................................................Brostinn strengur Nú er runninn upp sá árstími þegar plötukassar og viðhafnar- útgáfur streyma á markaðinn. Einn af þeim pökkum sem hægt er að mæla með undir jólatré tónlistaráhugafólks er The Philles Album Collection, en hann hefur að geyma sjö geisladiska með tónlist sem plötuútgáfa Phils Spector, Philles Records, gaf út á árunum 1962-1964. Spector stofnaði Philles árið 1961 ásamt Lester Still, en árið 1962 keypti hann hlut Stills og varð með því yngsti plötuútgáfu- stjóri þess tíma, aðeins 21 árs að aldri. Hann valdi efni til útgáfu og stjórnaði upptökum á all flestum þeim plötum sem fyrirtækið gaf út. Phil Spector er einn af merk- ustu upptökumönnum sögunnar. Hann hafði gríðarlegan metnað á þessum tíma og varð frægur fyrir þann þykka ofur-popphljóm sem hann bjó til og fékk nafnið Wall of Sound, eða hljóðveggurinn. Í nýja Philles-pakkanum eru sex plötur sem Philles gaf út þegar Spector var að þróa hljóðvegginn, en að auki er disk- ur með ósungnum b-hliðarlögum. Á meðal flytjenda eru The Crystals, The Ronettes, Darlene Love, Bob B. Sox og The Alley Cats. Auðvitað eru ekki öll lögin á þessum sjö plötum snilldarverk, en það er samt fullt af góðgæti þarna. Sum þessara laga eru á meðal skærustu eðal- steina poppsögunnar, hvorki meira né minna … Hljóðveggurinn verður til Franska dúóið Justice sló í gegn með fyrstu plötunni sinni, Cross, árið 2007. Nú er plata númer tvö komin út. Hún heitir Audio Video Disco og Trausti Júlíusson fær ekki nóg af henni. Hvað gera hljómsveitir sem slá í gegn með fyrstu plötunni sinni næst? Oftast byggja þær á sama grunni, en reyna að þróa tónlist- ina áfram. Franska hljómsveitin Justice valdi aðra leið. Nýja plat- an þeirra Audio Video Disco er allt öðruvísi en frumburðurinn, Cross. Á fyrstu plötunni var danstónlist, á þeirri nýju er popp. Justice er skipuð þeim Gaspard Augé og Xavier de Rosnay. Þeir vöktu fyrst athygli árið 2003 þegar þeir sendu endurgerð af laginu Never Be Alone með ensku hljóm- sveitinni Simian í samkeppni á vegum franskrar háskólaútvarps- stöðvar. Í framhaldi af því gerði Ed Banger-útgáfan í París samn- ing við þá og gaf út fyrstu smáskíf- una þeirra, Waters of Nazareth, í septem ber 2005. Fyrsta stóra plat- an, Cross, kom svo út í júní 2007 og var meðal annars tilnefnd til Grammy og Mercury-verðlaunanna. Eftir útkomu plötunnar bjuggu þeir Gaspard og Xavier til öflugt tón- leikaprógramm sem þeir spiluðu víða á árunum 2007 og 2008. Þeir fóru til að mynda í vel heppnaða tónleikaferð um Bandaríkin og spiluðu á nokkrum af stærstu tón- listarhátíðum heims. Krossinn er tákn Justice á plötu- umslögum, auglýsingaefni og tón- leikum. Gaspard og Xavier vilja ekkert gefa upp um það hvort það sé einhver sérstök hugmynd eða boðskapur á bak við hann, vilja láta fólk brjóta heilann um það. Eins og áður segir var tónlistin á Cross danstónlist, með smá rokk- áhrifum. Hljómurinn á henni var hrár og kraftmikill. Nýja platan er allt öðruvísi. Á henni er popp- rokk með mjög sterkum tilvísunum í gamlar spandex-klæddar gítar- hetjusveitir, hvort sem við tölum um Van Halen, The Who, Toto eða Yes. Hljómurinn er mýkri heldur en á fyrri plötunni og tónlistin á betur við heima í stofu heldur en á dans- gólfinu. Þó að áhrifin frá rokki áttunda og níunda áratugarins séu augljós á Audio Video Disco gera Frakkarn- ir þetta samt á nýjan hátt. Þeir bæta inn í blönduna smá ítaló diskó áhrif- um og franskri fágun og útkoman verður algerlega ómótstæðileg. Að sumu leyti minnir nálgun Justice á Audio Video Disco á nálgun sam- landa þeirra í Daft Punk þegar sú sveit gerði hina frábæru Disco- very. Það endurspeglast í tónlistinni ósvikin aðdáun á gömlu hetjunum, en líka húmor fyrir þeim. Og svo matreiða þeir þetta á sinn hátt. Þeir Gaspard og Xavier segja í nýlegu viðtali í franska blaðinu Les Inrockuptibles að plötunni hafi verið misvel tekið af vinum þeirra: „Sumir þeirra þola hana ekki og skilja ekkert hvað við erum að fara.“ Þeir segja líka að það hafi aldrei verið aðalatriðið fyrir þá að búa til tónlist fyrir dansgólfið. Og þeir segjast ekki kunna það: „Það spilar enginn klúbbur lögin okkar, bara endurhljóðblandaðar dans- útgáfur af þeim.“ Þeir dvelja núna í London þar sem þeir eru að undir- búa tónleikaferð sem hefst í janúar. Audio Video Disco hefur víðast fengið fína dóma. Flestir gagnrýn- endur virðast vera með á nótunum. Pitchforkmedia er að vísu undan- tekning, en það er svo sem ekkert nýtt. Mér finnst platan ótrúlega skemmtileg, næ henni ekki úr spil- aranum … Justice skiptir um gír JUSTICE Nýja platan er stórt stökk frá fyrstu plötunni. Frakkarnir Xavier de Rosnay og Gaspard Augé eru Justice. > PLATA VIKUNNAR Quarashi - Anthology ★★★★ „Flottur pakki frá hljómsveit sem enn er sárt saknað.“ -afb > Í SPILARANUM Ingó - Ingó The Fall - Ersatz G.B. GRM - Þrjár stjörnur David Lynch - Crazy Clown Time Toggi - Wonderful Secrets Rapparinn Heavy D er látinn, 44 ára að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Los Angeles á þriðju- dag. Heavy D hét réttu nafni Dwight Arrington Myers og sló í gegn með hljómsveitinni Heavy D & The Boyz sem gaf út fimm plötur. Sú fyrsta kom út 1987 en síðasta platan kom út 1994. Heavy D gaf í kjölfarið út fjórar sólóplötur. Sú síðasta, Love Opus, kom út í september síðast- liðnum. Rapparinn söng í laginu Jam með Michael Jackson árið 1991 og kom fram á minningartónleikum um Jackson fyrr á árinu. Hann söng einnig dúett með listamönnum á borð við Notorious BIG og Janet Jackson. Eitt kunnasta lag Heavy D var tökulagið Now That We Found Love sem hann söng árið 1991. Á undanförnum árum hafði Heavy D einnig fært sig út í leiklist. Hann lék í kvik- myndinni The Cider House Rules og í sjónvarpsþáttum á borð við Boston Public og Law & Order: SVU. Heavy D dáinn LÁTINN FYRIR ALDUR FRAM Rapparinn Heavy D var einungis 44 ára þegar hann kvaddi á þriðjudag. BÓKIÐ AUGLÝSINGAR TÍMANLEGA: ÍVAR ÖRN HANSEN S: 512 5429, GSM: 615 4349 ivarorn@365.is ALLT UPPI Á BORÐUM Sérblað um borðbúnað kemur út þann 16. nóvember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.