Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 10.11.2011, Qupperneq 4
10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR4 FÓLK Ekki má nefna drengi Diego eða Víking, en þeir mega heita André, Tói, Móði og Werner, samkvæmt nýjustu úrskurðum mannanafnanefndar. Nefndin samþykkti þessi fjög- ur eiginnöfn karla og fimm kven- kyns eiginnöfn – nöfnin Ranka, Dallilja, Millý, Rúbý og Blín. Þá var millinafnið Hornfjörð sam- þykkt, sem og kenninöfnin Konst- antínusardóttir og Írenudóttir. Diego var hafnað vegna þess að ritháttur nafnsins er ekki í samræmi við almennar ritregl- ur og ekki telst vera komin hefð fyrir nafninu sem tökunafni. Þó að nafnið Víking megi ekki nota sem eiginnafn var það leyft sem millinafn. - þeb Mannanafnanefnd úrskurðar: Má ekki nefna Víking og Diego GEIMFERÐIR NASA, Geimferða- stofnun Bandaríkjanna, hefur ákveðið að flýta fyrsta reynslu- flugi Orion-geimfarsins. Orion, sem er framtíðarfar Bandaríkjamanna í geimferðum eftir að Apollo-skutlunum var lagt, verður skotið upp á fyrri hluta árs 2014, þremur árum fyrr en áætlað var. Ómönnuðu tilrauna fari verður skotið upp á braut um jörðu þar sem það mun hnita tvo hringi í kringum jörðina áður en það snýr aftur til baka og lendir í Kyrrahafinu. Förunum er ætlað að bera fjóra geimfara til nærliggjandi smástirna, tunglsins og jafnvel Mars. - þj Nýtt geimfar NASA: Prufuskoti flýtt til ársins 2014 GEIMFAR Orion-farinu verður skotið á braut um jörðu í ársbyrjun 2014. NORDICPHOTO/AFP Norska bakaríið á 1 milljón Bæjarráð Ísafjarðarbæjar ætlar að taka einnar milljónar króna tilboði frá Gistingu ehf. í Norska bakaríið svokallaða á Silfurgötu 5. Tilboðinu hafði áður verið hafnað en engin betri tilboð bárust. ÍSAFJÖRÐUR Tvær kindur drápust Ekið var nýverið á tvær kindur við Akrafjallsveg og drápust báðar auk þess sem bifreiðin var talsvert skemmd eftir höggið. Hlið á girðingu hafði fallið niður og höfðu bæði hross og kindur sloppið út. LÖGREGLUFRÉTTIR Vatnslosandi Eykur brennslu Jafnar blóðsykur Dregur úr hungurtilfinningu Örvar losun úrgangsefna Öflug hjálp í baráttunni við aukakílóin EPLAEDIKm/krómi 20% AFSLÁTTUR út Nóvember vi› hlustum! GENGIÐ 09.11.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 213,9484 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,64 116,20 184,92 185,82 158,03 158,91 21,224 21,348 20,383 20,503 17,415 17,517 1,4879 1,4967 181,63 182,71 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 13° 9° 10° 12° 13° 9° 9° 24° 15° 21° 17° 25° 4° 15° 19° 8°Á MORGUN 8-15 m/s S-til, annars yfi rleitt hægari. LAUGARDAGUR 3-10 m/s. 7 8 7 6 6 4 7 9 9 10 10 9 8 8 12 10 6 7 8 13 10 16 02 6 6 8 10 9 7 7 5 SVIPAÐ VEÐUR Litlar breytingar í veðrinu á næst- unni en það lítur út fyrir að suðaust- lægu áttirnar verði ríkjandi með vætu einkum sunnan til en þurrt og bjart með köfl um fyrir norðan. Áfram óvenju milt í veðri en kólnar um tíma norðan til á morgun. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður ÍTALÍA, AP Vextir á ítölskum skuldabréfum ruku upp í gær og voru komnir í sjö prósent, daginn eftir að Silvio Berlusconi for- sætisráðherra boðaði afsögn sína. Svo virðist sem ákvörðun Berlusconis um að segja af sér þegar boð- aðar efnahags- aðgerðir stjórnarinnar yrðu komnar í framkvæmd hafi engan veginn dugað til að róa markaði. Hugsan- lega til þess að róa markaðina áréttaði Giorgio Napolitano, for- seti Ítalíu, í gær að Berlusconi myndi segja af sér innan fárra daga. - gb Markaðir róast ekki: Vextir farnir í hæstu hæðir SILVIO BERLUSCONI ALÞINGI Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra segir að lagning Vestfjarðavegar um Teigsskóg sé ekki á borðinu. Það muni skapa miklar deilur og málssóknir sem líklegt sé að tapist fyrir dómsstól- um. Þá verði svokölluð Hálsaleið ekki farin, enda séu heimamenn mótfallnir henni. Þetta kom fram á Alþingi í gær, en þá fór fram sérstök umræða um málið að undirlagi Eyrúnar Ingibjargar Sigþórsdóttur, vara- þingmanns Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Eyrún sagði láglendisleið einu boðlegu lausnina á vegavanda svæðisins. Hún benti á að þéttbýlisstaðirnir á sunnan- verðum Vestfjörðum væru þeir einu á landinu þar sem þjóðvegir til þeirra væru ekki lagðir bundnu slitlagi. Hún spurði ráðherra að því hvort hann mundi beita sér fyrir því að láglendisleið yrði valin. Ögmundur sagði alla kosti lág- lendisleiðar vera til skoðunar hjá Vegagerðinni, utan vegar um Teigs- skóg. Ráðherra nefndi þrjár leið- ir; að bora göng í gegnum Hjalla- háls, þverun Þorskafjarðar og veg úr Reykhólasveit í Skálanes. Síðastnefnda leiðin kostar um 13 milljarða samkvæmt ráðherra, en hann vill halda öllum möguleikum opnum. - kóp Allar láglendisleiðir fyrir Vestfjarðaveg eru til skoðunar hjá Vegagerðinni: Teigsskógur og Hálsaleið ekki gerleg INNANRÍKISRÁÐHERRA Þrír milljarðar króna fara á næstu þremur árum í fram- kvæmdir við hluta Vestfjarðavegar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ALÞINGI Fresta þurfti fundi fjár- laganefndar í gær vegna andstöðu fulltrúa Samfylkingarinnar við fjárheimild vegna Vaðlaheiðar- ganga. Málið var tekið fyrir á þingflokksfundi flokksins í gær og loks náðist sátt um það seinni- partinn. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eru nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar verulega ósátt- ir við heimildina til ráðherra. Þeir bera brigður á forsendur Vaðla- heiðarganga ehf. um hagkvæmni ganganna. Vilji er til þess að óháð- ir aðilar fari yfir forsendurnar og meti framkvæmdina upp á nýtt. Það er í takt við afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar sem samþykkti á fundi sínum í gær að fela Ríkisendurskoðun að fara yfir forsendur ganga- gerðarinnar. Ekki náðist sátt um slíka málsmeðferð innan fjárlaganefndar. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var málið komið í harðan hnút og um hríð var ein faldlega neitað að afgreiða fjáraukalagafrumvarpið fyrr en afdrif heimildarinnar kæmust á hreint. Þrátt fyrir langan fund um málið á þriðjudag þurfti að fresta fundi nefndarinnar í gær til að ná fram niðurstöðu. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, lofsamaði samþykkt umhverfis- og sam- göngunefndar á þingi í gær. Hún sagðist ekki skilja að nokkur setti sig á móti því að fá óháðan aðila til að meta framkvæmdina og grundvöll hennar. Framkvæmdin væri afar dýr og mikilvægt að standa rétt að málum. Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjármálaráðherra verði veitt heimild til að lána allt að einum milljarði króna til Vaðlaheiðarganga ehf. Sú forsenda að framkvæmdin standi undir sér að öllu leyti er enn óbreytt. Meirihlutinn leggur hins vegar áherslu á að áður en stofnað er til skuldbindinga ríkisins komi málið aftur til fjárlaganefndar og verði kynnt henni með fullnægjandi hætti. Einar K. Guðfinnsson, vara- formaður þingflokks Sjálf- stæðisflokksins, og Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, kvörtuðu á þingi í gær yfir meðferð máls- ins. Það hve seint fjárlaganefnd afgreiddi fjáraukafrumvarpið gerði það að verkum að þingmönnum gæfist knappur tími til að kynna sér það fyrir umræðuna sem hefst á Alþingi í dag. kolbeinn@frettabladid.is Stjórnarflokkarnir deila um gangagerð Erfiðlega gekk að koma fjáraukalögum úr fjárlaganefnd vegna ágreinings um Vaðlaheiðargöng. Samfylkingin setti sig á móti fjárheimild til ráðherra vegna ganganna. Heimildin fékkst í gegn og fjáraukalög verða til umræðu í dag. VEGURINN UPP Á VAÐLAHEIÐI Fjáraukalög verða til umræðu á þingi í dag. Stjórnar- þingmenn hafa undanfarið deilt um fjárheimild vegna Vaðlaheiðarganga. BANDARÍKIN, AP Kjósendur í Ohio og Mississippi höfnuðu tveimur helstu baráttumálum Repúblikana flokksins í kosning- um á þriðjudag, ári fyrir næstu forseta- og þingkosningar. Í Ohio höfnuðu kjósendur lögum sem hefðu takmarkað samningsrétt opinberra starfs- manna, en í Mississippi höfnuðu kjósendur hörðum reglum um fóstureyðingar, sem hefðu falið í sér að líf væri skilgreint þannig að það hæfist strax við getnað. - gb Kjósendur í Bandaríkjunum: Hafna málum repúblikana
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.