Fréttablaðið - 10.11.2011, Page 8

Fréttablaðið - 10.11.2011, Page 8
10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Ragna Sara Jónsdóttir, yfirmaður samskiptasviðs Árið 2010 markaði Landsvirkjun nýja stefnu sem leggur áherslu á að hámarka arðsemi fyrirtækisins. Á fundinum verða dregin fram áhrif nýrrar stefnu á rekstur fyrirtækisins. HAUSTFUNDUR LANDSVIRKJUNAR 2011 www.landsvirkjun.is Finndu okkur á Facebook Fundarstjóri er Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Landsvirkjunar Skráning á: www.landsvirkjun.is/skraning Markmið opinna funda Landsvirkjunar er að stuðla að gagnsærri og faglegri umræðu um málefni tengd starfsemi fyrirtækisins. Að klífa fjallið Hvernig getur Landsvirkjun orðið leiðandi fyrirtæki á sviði endurnýjanlegra orkugjafa? Útsetning ar Guðna Þ. Guðm undssona r, organis ta Útgefand i Bústað akirkja Í tilefni af útkomu bókar með útsetningum Guðna Sunnudaginn 13. nóv. kl. 20 í Bústaðakirkju Kór Bústaðakirkju syngur við undirleik Jónasar Þóris, organista. BÚSTAÐAKIRKJA SAMGÖNGUR Breska flugfélagið EasyJet hyggst fljúga til Íslands frá og með næsta vori. Fyrstu far- miðarnir fara í sölu í dag og þeir ódýrustu kosta ekki nema rúmar sex þúsund krónur íslenskar aðra leið og ellefu þúsund krónur báðar leiðir, með öllum sköttum og gjöld- um. Fulltrúar flugfélagsins kynntu þessi áform sín á blaðamanna- fundi í Hörpu í gær. Þar kom fram að jómfrúrflugið yrði þriðjudaginn 27. mars 2012. Flogið verður þrisvar í viku, þriðjudaga, fimmtudaga og sunnu- daga, frá Keflavíkurflugvelli til Luton-flugvallar nærri London. Að sögn Hugh Aitken, markaðs- stjóra EasyJet í Bretlandi, tekur ekki nema 23 mínútur að ferðast frá flugvellinum inn í miðborg London. Stefnt er að því að fljúga allt árið um kring til Íslands en í fyrstu verður þó einungis hægt að panta farmiða út næsta sumar, enda hefur áætlun flugfélagsins ekki verið gerð lengra fram í tímann. Aitken segir að EasyJet búist við 50.000 farþegum á sínu fyrsta ári. Fyrst og fremst verði einblínt á markaðssetningu í Bretlandi og líklega verði „mikill meirihluti“ farþega Bretar sem ferðast til Íslands, frekar en öfugt. Félagið hafi enda sterka stöðu á Bretlands- markaði. Að sögn Aitkens stefnir EasyJet á að bjóða Íslendingum upp á fleiri áfangastaði en Luton-flugvöll ef fyrsta árið heppnast vel. EasyJet er lággjaldaflugfélag og Aitken dregur ekki dul á að því fylgi enginn lúxus, enda sé helsta markmiðið að halda verðinu á far- seðlum lágu. Nú um stundir hagn- ist félagið um þrjú pund á hvert sæti, en stefnt sé að því að hækka það í fimm pund á næstu misser- um. EasyJet er eitt stærsta flugfélag í Evrópu, flýgur til þrjátíu landa og gerir út ríflega 200 flugvéla flota. Vélarnar sem EasyJet mun fljúga til Íslands eru af gerðinni Airbus A319. Í þeim rúmast 156 farþegar. Veruleg samkeppni er nú komin í flugsamgöngur frá Íslandi. Þegar fljúga Icelandair og Iceland Express til London og þá hefur Skúli Mogensen boðað stofnun flugfélagsins WOW Air. Ekki ligg- ur þó fyrir hvort það muni fljúga til Bretlands. stigur@frettabladid.is Ætla að ferja 50.000 manns á fyrsta árinu Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur flugferðir milli Keflavíkur og Luton í vor. Stefnt að því að fjölga áfangastöðum frá Íslandi ef vel gengur. Ódýr- asta farið á 11.000 krónur báðar leiðir, með sköttum. SAMKEPPNIN HARÐNAR Markaðsstjórinn Hugh Aitken kynnti áformin fyrir blaða- mönnum í Hörpu í gær. Hann kvaðst mjög spenntur fyrir verkefninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FL Group átti um skeið tæplega 17 prósenta hlut í EasyJet. Árið 2006 var hávær orðrómur um að FL Group hygðist taka félagið yfir, en í staðinn var hluturinn seldur í apríl 2006 fyrir um 227 milljónir punda, eða jafnvirði um 28 milljarða. Með því hagnaðist FL Group um 98 milljón pund, sem á þeim tíma jafngilti um 12 milljörðum íslenskra króna. FL Group græddi 12 milljarða á EasyJet GARÐUR Brotist var inn í félags- miðstöð unglinga í Garði um síð- ustu helgi og þaðan stolið þremur leikjatölvum ásamt fylgihlutum og leikjum. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins. Þar segir að tölvurnar, sem eru af tegundunum Playstation 1 og 2 og Nintendo Wii, og aukahlutirnir hafi verið geymdar á tveimur stöðum í húsinu. Ekkert bendi til þess að rótað hafi verið til og af því megi ráða að gerningsmenn hafi verið kunnugir innanhúss. Borðtölvur og tölvuskjáir voru einnig látin vera. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við forstöðumann og er fundarlaun- um heitið. - þj Brotist inn í félagsmiðstöðina í Garði á Reykjanesi: Leikjatölvum stolið STOLIÐ Innbrotsþjófar höfðu á brott með sér þrjár leikjatölvur en skildu borðtölvur og skjái eftir. MYND/SVGARDUR.IS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.