Fréttablaðið - 10.11.2011, Síða 24

Fréttablaðið - 10.11.2011, Síða 24
24 10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is Kremkex 129 kr ...opið í 20 ár ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 HALLDÓR Á landsfundi Samfylkingarinnar helgina 21.-23. október voru kynntar ýmsar nýjungar til að bæta flokkstarfið. Enn fremur var farið yfir glæsilegan árangur í stjórnun landsmálanna og gerð grein fyrir ýmsum erfiðum hindrunum sem hafa verið á leiðinni. Fundurinn sýndi að flokkurinn er samstæður og sterkur, tilbúinn í ný verkefni. Vikuna eftir landsfundinn birtust slá- andi tölur frá Hagstofunni um stöðu íslenskra heimila. Rúmlega helmingur þeirra á erfitt með að ná endum saman um hver mánaðamót og hefur hlutfallið aukist stöðugt frá 2007. Við aldurs greiningu niður staðnanna kom í ljós að aldurs- hópurinn 30-39 ára var í mestum vand- ræðum. Í ljósi þessara niðurstaðna tel ég það skyldu Samfylkingarinnar að skoða mjög gagnrýnið hvers vegna aðgerðir til varnar heimilum landsins hafi ekki skilað betri árangri. Nýlega las ég kanadíska grein sem fjallaði um nútíma stjórnmálaumræðu og áhrif fjármálamarkaðarins á hana (Soederberg, 2010). Niðurstaðan var sú að eftir fjármálahrunið 2008 hafa stjórnmála- menn um allan heim þaggað niður umræðu um raunverulegar orsakir og afleiðingar hrunsins. Stjórnmálamenn hafa talað um hrun fjármálageirans sem eðlilega sam- félagslega afleiðingu án þess að tengja hana við eigin pólitíska sýn eða hugmynda- fræðilegar áherslur. Stjórnmála menn hafa haft tilhneigingu til að miða aðgerðir sínar við að fjármálastofnanir séu fórnarlömb hrunsins en ekki orsakir. Í ræðu á landsfundinum lofaði for maður Samfylkingarinnar okkur samflokks- mönnum sínum raunverulegri sókn til betri lífskjara og manneskjulegra sam- félags. Ég veit að hún er manneskja til að efna þetta loforð og vegna þess styð ég hana til forystu. Í ljósi orða formannsins og einlægri trú á að Samfylkingin sé raunveru legur jafnaðarmannaflokkur vænti ég þess að þingmenn staldri við og miði aðgerðir á seinni hluta kjörtímabils- ins við það 51% landsmanna sem ekki nær endum saman. Opið bréf til þingmanna Samfylkingarinnar A f íslenskri skotgrafaumræðu mætti halda að yfir- standandi efnahagsvandi evrusvæðisins hefði engin bein áhrif á okkur. Andstæðingar Evrópu- sambandsaðildar (ESB) hafa glaðhlakkalega bent á að ástandið sýni að Ísland eigi ekkert erindi inn í þennan félagskap. Fylgjendur hennar segja á móti að samtaka- máttur aðildarríkjanna við að leysa vanda hvert annars sýni að eftirsóknarvert sé að tilheyra sambandinu. Þessi umræða er yfirborðskennd og fangar ekki alvarleika ástandsins. Ísland á gríðarlega mikið undir því að framtíðarlausn finnist á skuldavandræðunum og að evrusamstarfið leysist ekki upp. Þeir hagsmunir eru til staðar alveg óháð því hvort við göngum inn í ESB eða ekki. Nánast öll okkar viðskipti eru enda við Evrópu. Það sem af er ári hafa 81,6% af öllum útflutningi Íslendinga ratað inn á Evrópska efnahagssvæðið (EES). Um 61% af öllum vörum sem við flytjum inn kemur þaðan. Þorri erlendra eigna lífeyris- sjóða okkar er í evrum. Og svo framvegis. Og vandræðin hafa, ótrúlegt en satt, ekki bara áhrif á Ísland, heldur heiminn allan. Tæplega 27% af gjaldeyris- varaforða hans eru í evrum. Veikist gjaldmiðillinn rýrna þær eignir. Kínverjar eiga stærsta gjaldeyrisvaraforða allra. Hann er þrefalt stærri en varaforði Japana, sem er næststærstur. Af þeim tíu löndum sem eiga mestu umframeignirnar eru sjö í Asíu, eitt í Suður-Ameríku (Brasilía) og tvö í Evrópu (Rúss- land og Sviss). Ekkert Evrópusambandsland er á topp tíu. Bandaríski seðlabankinn hefur sagt að vandræði Grikk- lands og Ítalíu hafi ekki mikil áhrif á banka þar í landi. Þeir eigi mest undir bönkum í Frakklandi og Þýskalandi. Kröfu- hafar Grikkja, sem hafa samþykkt að gefa eftir helming krafna sinna, eru að hluta til franskir stórbankar á borð við Société General og BNP Parisbas. Þeir eru líka að hluta til þýskir bankar á borð við Deutsche Bank og Commerzbank. Tæpur helmingur skulda Ítalíu við banka er við franskar fjár- málastofnanir. Stór hluti hins helmingsins er við þýskar. Því hafa vandræði Grikkja og Ítala áhrif á franska og þýska banka, sem hafa áhrif á bandaríska banka, sem hafa áhrif á bandaríska hagkerfið. Um 60% af öllum gjaldeyrisvaraforða heimsins eru í dollurum og veiking þess gjaldmiðils hefur því áhrif víða. Og svo koll af kolli. Þau vandamál sem evrusvæðið glímir við í dag eru ekki bara vandamál þeirra ríkja sem nota evru sem mynt. Þau eru heldur ekki bara vandamál Evrópu. Þau eru sameigin- leg vandamál alþjóðafjármálakerfisins og þurfa að leysast sem slík. Í þeim fasa þurfa öll ríki að taka til í sínum ríkis- fjármálum og gera samrekstur íbúa sinna sjálfbæran. Ef það tekst ekki þarf allur heimurinn að glíma við afleiðingarnar. Líka Ísland. Efnahagsvandi Evrópu er vandi allra. Allt er undir Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is SKOÐUN Stjórnmál Inga Sigrún Atladóttir formaður Samfylkingar- félagsins í Vogum Fólksflóttinn mikli Mikið hefur verið rætt um að fólks- flótti hafi brostið á í kjölfar hrunsins. Andstæðingar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur kenna aðgerðum og aðgerðaleysi hennar um. Það að fólk flýi bágt ástand er vissulega vandamál og ber að sporna við því. Það er hins vegar ágætt, í þessu sem öðru, að líta á tölur. Samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar fluttu af landi brott 12.485 íslenskir ríkisborgarar árin 2008, 2009 og 2010. Árin 2005, 2006 og 2007 fluttu 9.412 íslenskir ríkisborgarar af landi brott. Aukningin eftir hrun nemur rúmlega 3.000 manns, 1.000 á hverju ári. Þungbært en ekki flótti Vissulega er slæmt að þeim fjölgi sem flytja af landi brott. En trauðla er hægt að tala um fólksflótta þegar 3.000 fleiri fara af landi brott á þremur verstu árum í sögu landsins en á þremur mestu uppgangs- árum þjóðarinnar, eða hvað? Þungbært er það, en ekki massívur fólksflótti. Ekki enn þá sáttur Umræða var á Alþingi í gær um Vestfjarðaveg. Margir höfðu skoðun á málinu, enda hefur lengi verið beðið eftir vegabótum á svæðinu. Einn þeirra sem tóku til máls var Kristján L. Möller, fyrrverandi samgönguráð- herra. Hann fór yfir það að hann hefði sent bréf til Vegagerðarinnar um málið, nokkrum dögum áður en hann hætti sem ráðherra. „En ég vil líka taka fram að ég vissi ekki af því fyrr en deginum áður en sú gjörð var gerð, en það er annar handleggur.“ Líklega er Kristján ekki enn sáttur við skyndilegt brotthvarf sitt af ráðherrastóli. kolbeinn@frettabladid.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.