Fréttablaðið - 10.11.2011, Síða 39

Fréttablaðið - 10.11.2011, Síða 39
FIMMTUDAGUR 10. nóvember 2011 3 Loðtreflar - tilvalin jólagjöf Einnig mikil úrval af hringtreflum, klútum og slæðum. Ný sending af loðtreflum Það heitasta í tískuheiminum í dag www.belladonna.is Flott föt fyrir flottar konur, Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Stærðir 40-60. Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is Að hennar sögn hefur mikil vinna verið lögð í að gera sýn- inguna sem allra veglegasta. „Ari Magg ljósmyndari sér um allt kynningarefni og síðan er ég svo vel gift að maðurinn minn Jóel Pálsson hefur smalað saman góðum hópi tónlistarmanna sem munu leika ljúfa tóna.“ Innt eftir því hvort til standi að fara í meiri háttar kynningar- herferð til Bandaríkjanna tekur Bergþóra fyrir það. „Alls ekki. Hingað til höfum við einblínt á Evrópu og Asíu þar sem við höfum verið að gera góða hluti og Amer- íka er í raun bara eðlilegt framhald á því. Enda hefst þetta allt saman með seiglunni.“ roald@frettabladid.is Framhald af forsíðu Farmers Market sækir innblástur í íslenska arfleifð. Tvö hundruð hárgreiðslumenn og konur fylgdust spennt með fimm hárgreiðslufagmönnum klippa og greiða tuttugu fyrirsætum á hár- greiðslunámskeiði sem fram fór á Reykjavík Natura á dögunum. Námskeiðið var á vegum Wella, Sebastian og Sassoon og þar var sýnd hártískan sem heitust verð- ur á landinu í haust og vetur. „Ég vil breyta til í toppunum og brjóta þá upp,“ segir Anna S. Páls- dóttir á Barber Theater. Hún sýndi margvíslegar gerðir toppa á nám- skeiðinu en tekur fram að taka þurfi mið af andlitsfalli og sveip- um fólks þegar klippa eigi topp. Hún nefnir að fallega rauðir og koparlitir séu að koma sterkir inn. „Þá kælast litirnir auðvitað þegar haustar og vetrar.“ Anna segir að náttúrulegt hár eigi að fá að njóta sín sem mest. „Fólk á ekki að slétta krullur eða krulla slétt hár, heldur fá góða klippingu í sitt náttúrulega hár,“ segir Anna sem sýndi sína bestu takta á námskeiðinu ásamt þeim Ingólfi Grímssyni á Hárbeitt, Sigurlaugu Ingvarsdóttur, Sillu, á Galtará, Jóhönnu Stefnisdóttur á Fagfólki og Huldu Hafsteinsdóttur á Medullu. Hulda segir hártískuna í dag tímalausa og er sammála Önnu um að toppurinn komi sterkur inn. „Hann getur verið í boga, beinn, í vaff og jafnvel styttri öðru megin,“ lýsir hún en tekur fram að hár- greiðslufólk meti alltaf hvað muni klæða viðskiptavininn. „Áhrif- in eru mikil á formið í hárinu og kemur þar sterk inn mikil tækni í skæravinnunni,“ segir Hulda og lýsir að skæratækninni hafi fleygt fram hin síðari ár. Hulda segist fá hugmyndir sínar frá fræga fólk- inu, tískublöðum og tískusýning- um. „Svo mótar maður sitt eigið út frá því.“ Litina segir hún einn- ig sérstaka nú. „Ég móta mér hug- myndir um litina þegar ég er búin að klippa. Þá vil ég heldur setja skugga og birtu í hárið, en rönd- ótt er alls ekki málið í dag. Litirnir verða blæbrigðatengdir, fara stundum frá dökku upp í ljósara og öfugt,“ segir Hulda. Hún segir einn- ig mikilvægt að minn- ast á öll þau góðu efni sem séu í boði í dag. „Góð klipping helst ekki þannig nema henni sé viðhaldið. Til eru mjög góð efni sem bæði gefa hárinu heil- brigðan gljáa eða kemur lyftingu í hárið.“ solveig@frettabladid.is Toppurinn er sterkur Fimm íslenskir hárgreiðslufagmenn sýndu það sem nýjast er í stofu- og götutísku fyrir haustið og veturinn á námskeiði sem haldið var á vegum Wella, Sebastian og Sassoon. Topparnir koma sterkir inn eins og sést í klippingum Önnu á Barber Theater. Ljoshærða stúlkan er með greiðslu á rauða dregilinn eftir Jóhönnu á Fagfólk og stúlkan til hægri með klipp- ingu frá Sillu. Þegar hárkollur urðu nauðsynlegur hluti af búningi karla af betri stéttum varð til öflug stétt hárkollu- gerðarmanna. Gildi hárkollugerðar manna var stofnað í Frakk- landi árið 1665. Um 1780 varð tíska hjá ungum mönnnum að púðra og lýsa upp eigið hár. wikipedia.org
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.