Fréttablaðið - 10.11.2011, Blaðsíða 42
2 •
GÍSLI PÁLMI ER EITT HEIT-
ASTA NAFNIÐ Í HIPPHOPP INU
UM ÞESSAR MUNDIR. KAPP-
INN SENDI FRÁ SÉR LAGIÐ
SET MIG Í GANG Í SUMAR.
ÞAÐ VAKTI MIKLA ATHYGLI
OG HANN HEFUR VERIÐ
AÐ SENDA FRÁ SÉR LÖG Á
YOUTUBE SÍÐAN. GÍSLI PÁLMI
KEMUR FRAM Á GAUKNUM Á
LAUGARDAGS KVÖLD.
„Ég er nokkuð góður, í toppmálum,“ segir
rapparinn Gísli Pálmi, nývaknaður þegar Popp
náði í hann.
Gísli kemur fram á Gauki á Stöng annað
kvöld, en tónleikarnir eru þeir fyrstu sem hann
stendur fyrir. Hann kom í fyrsta skipti fram á
Iceland Airwaves-hátíðinni í október og fékk
frábærar viðtökur áhorfenda, sem virtust hafa
legið yfir myndböndum hans, enda röppuðu
þeir með hverju orði.
„Það er ótrúlegt. Fólk kann lögin, orð fyrir
orð,“ segir Gísli. Hann segir tónleikana annað
kvöld verða alvöru og að fólk megi búast
við góðri hipphoppstemningu. „Það er mjög
gaman að fá tækifæri til að gera þetta og ég
er glaður að við kýldum á það. Ég sá að það er
eftirspurn eftir því. Það er búinn að vera mikill
hiti fyrir tónleikum.“
Gísli kom fram á Prikinu um síðustu helgi og
var staðurinn troðfullur. Miklu fleiri komast að
á Gauknum og Gísli er spenntur. Húsið opnar
klukkan 22 og það kostar þúsund kall inn.
Fleiri lög eru væntanleg frá Gísla, sem notar
Youtube til að koma tónlist sinni á framfæri í
formi myndbanda sem hann framleiðir sjálfur
með vinum sínum. Spurður út í framtíðina
segist Gísli ætla að halda áfram að harka út
myndböndum, enda hafa viðtökurnar farið
fram úr vonum hans. „Ég vissi kannski ekki að
fólk myndi taka svona í tónlistina, en ég vissi
af hvaða kaliberi hún er. Ég veit alveg hvað ég
er að gera.“
Rauðhærði
rokkriddarinn
Dave Mus-
taine gefur nú
út þrettándu
hljóðversplötu
sína ásamt
hljómsveit sinni
Megadeth.
Síðustu tvær breiðskífur sveitar-
innar gripu mig ekki en í þetta
sinn hefur Mustaine skorað snerti-
mark. Megadeth er skemmtilegust
þegar hún daðrar við poppið án
þess að ganga of langt. Rokkið
er vissulega ruddalegt á Thirteen
en lögin eru matreidd á svipaðan
máta og á einni af vinsælustu
plötu sveitarinnar, Countdown
to Extinction, með tilheyrandi
stórkarlalegum þungarokksriffum
í bland við grípandi melódíur og
tæran hljóm.
Þungarokk á að vera fjör og
þetta veit Megadeth. Opnunar-
lagið, Sudden Death, setur tóninn
fyrir komandi fjör, en útvarps-
hittari plötunnar er Public Enemy
No. 1. Klassískt Megadeth-lag með
hnitmiðuðum gítar og einföldum
bassa að hætti Dave Ellefson, sem
er genginn aftur í sveitina. Ofsinn
í Never Dead höfðar einkar vel til
mín og flytur mig aftur í tíma, þar
sem unglingabólur og ótímabær
sáðlát réðu ríkjum. Rólegri lögin
eru vel heppnuð og í heild er
platan sterk.
Það tók mig nokkrar hlustanir
að aðlagast plötunni. Megadeth
hefur ekki verið frumleg í 20 ár
en er alltaf samkvæm sjálfri sér
og stundum er það einfaldlega
nóg. Á meðan riffabanki Mustaine
tæmist ekki mega þeir kumpánar
alveg halda áfram að vera ófrum-
legir. Allavega mín vegna, því ég
elska Megadeth.
Sem sagt: Þrælskemmtileg plata frá
gamla Rauð. Spilist hátt. - hva
TÓNLEIKAR
„ÉG FÆ MÉR
ÞREFALDAN
JACK Í KÓK OG
LÆT JÚDAS
SKYRPA OFAN Í
ÞAÐ.“
SÍÐA 6
MEGADETH
THIRTEEN ★★★★
ÍSLENSK / ERLEND
Í kvöld: Hljómsveitin Reykjavík!
heldur útgáfutónleika á KEX
hosteli klukkan 21. Miðasala fer
fram á Midi.is. FM Belfast kemur
fram eftir Reykjavík!
Á morgun: Hljómsveitin Kiriyama
Family kemur fram á Faktorý.
Húsið opnar klukkan 21.30 og
einn heppinn gestur vinnur allan
aðgangseyri tónleikanna.
Ekki á morgun heldur hinn:
Meistari Mugison kemur fram
í Sjóræningjahúsinu á Patró
klukkan 21. Kappinn kannast við
sig fyrir vestan, en eins og alþjóð
veit bjó hann um árabil á Flateyri.
Hann gaf út plötuna Haglél á dög-
unum og hefur hreinlega mokað
út eintökum. Miðar á tónleikana
fást á Midi.is.
POPP er tónlistarblað og kemur
út annan hvern fimmtudag.
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf.
Umsjón: Atli Fannar Bjarkason
Forsíðumynd: Valli
Auglýsingar: Benedikt Freyr
Jónsson benediktj@365.is
Popp, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík,
sími 512 500
Með síðustu
hljóðversskífu
sinni treystu
Hjálmar sig í
sessi sem ein
albesta hljóm-
sveit landsins hin
síðustu ár. Og,
það sem meira er, ekki einungis
sem eitthvert illskilgreinanlegt
lopapeysuafbrigði heldur alvöru,
dúndurfín reggísveit. Væntingar
voru því miklar fyrir þessa nýju
plötu, Óra, en svekkelsið að sama
skapi töluvert. Krafturinn sem
einkennt hefur Hjálma er víðsfjarri
og svo virðist sem sköpunargleðin
hafi lent í hremmingum.
Á ýmsan og afmarkaðan hátt
tekst sveitinni ágætlega til á
plötunni. Söngtextar eru venju
samkvæmt í betra lagi og bandið
þétt, en þó á of löngum köflum
dálítið þunglamalegt, líkt og keyrt
sé áfram af skyldurækni fremur
en spilagleði. Þá má hafa gaman
af tíðum rafkenndum hljóð-
blöndunaræfingum, til dæmis í
lögunum Í gegnum móðuna miklu
og Áttu vinur augnablik. Hjálmar
í toppformi hefðu nýtt slík trix
sem punktinn yfir i-ið. Hér gegna
þau heldur því hlutverki að beina
athyglinni frá aðalatriðinu, sem eru
rýrar lagasmíðar. Örfá laganna eru
nánast hlægilega langt frá þeim
gæðastaðli sem ætti með réttu
að ríkja á Hjálmaplötu (dæmi eru
hin átakanlega tilþrifalitlu Borð
fyrir tvo og Haust) á meðan fleiri
sigla lygnan sjó í andleysi. Undan-
tekningar líta dagsins ljós, meðal
annars í stuðsmellinum Ég teikna
stjörnu og hinu snotra Eilíf auðn,
en í heildina virðist lítil innistæða
fyrir umlykjandi trega textanna og
útkoman of oft innantóm og mátt-
leysisleg.
Sem sagt: Heldur máttlaus plata frá
Hjálmum, sem geta miklu betur. - kg
HJÁLMAR
ÓRAR ★★
UPP Á YFIRBORÐIÐ
Gísli Pálmi heldur
fyrstu tónleikana
sína á Gauknum
annað kvöld.