Fréttablaðið - 10.11.2011, Síða 44

Fréttablaðið - 10.11.2011, Síða 44
4 • Heyrnarskerðing er varanleg. Verndaðu heyrnina á meðan þú hefur hana. Tónlistarfólk notar heyrnarsíur sem dempa hávaða án þess að valda bjögun á hljómgæðum. Bjóðum fjölbreytt úrval af heyrnarsíum. Allt frá stöðluðum upp í sérsmíðaðar. Hávaði skaðar heyrnina Hlíðasmára 11 - Kópavogi - 534-9600www.heyrn.is POPPSKÚRINN Horfðu á Lay Low flytja lög af nýju plötunni í Poppskúrnum á Vísi.is. „Ég held það sé hægt að heyra hvar ég er stödd á ferlinum með því að hlusta á plöturnar mínar í röð. Ég hef þróast mikið sem tónlistarmaður. Kannski er hægt að tala um þroska en ég held að þetta sé líka reynslan af þessum heimi. Þegar ég gerði fyrstu plötuna mína vissi ég ekkert hvað ég var að gera og var í raun að gera allt í fyrsta sinn. Þá snerist þetta um að ná einhverjum fíling og við tókum flest lögin í einni töku til að fanga hann. Á annarri plötunni var ég með tónlistarmenn sem mættu í stúdíóið og spiluðu inn á plötuna með mér. Nýja platan var einhvern veginn allt öðruvísi ferli, því ég var bara að dunda mér og liggja yfir lögunum. Ég spilaði allan gítarinn sjálf og tók miklu meiri þátt í allri pródúseringunni, sem var ótrúlega skemmtilegt.“ Á Brostnum streng er aðeins einn texti eftir Lovísu sjálfa en hinir eru allir ljóð eftir íslensk kvenskáld. Lovísa lagðist í mikla rannsóknar- vinnu og las í gegnum ótal ljóða- bækur til að finna réttu ljóðin, þau sem hún gat tengt við. „Þetta var allt mjög nýtt fyrir mér, ég vissi ekki mikið hvað ég var að fara út í og var ekki mikill ljóðagrúskari. Upphaflega lagði ég ekkert upp með að velja bara ljóð eftir konur, en það vildi svo til að ég byrjaði á því að lesa kvenskáldin og svo fannst mér ég ná rosalega góðri tengingu við þau. Öll ljóðin sem ég valdi áttu það sameiginlegt að mér fannst þau snerta við einhverju hjá mér og mér fannst ég get notað þau til að tjá mínar tilfinningar með orðum annarra kvenna.“ Lovísa segir þessa leið líka hafa verið tilvalda, því hana hafi langað til að gera plötu á íslensku en alltaf átt í basli með að skrifa íslenska texta. „Það var líka svolítil áskorun að fara þessa leið. Þegar ég geri mín eigin lög og texta þarf ég aldrei að vinna í því að ná tengingu við textann af því að að þá er þetta eitthvað sem ég hef að segja. Þarna þurfti ég aðeins meira að leggjast yfir það og pæla þannig að þetta væri ekki bara þannig að ég væri að syngja texta eftir einhvern annan og það væri engin tilfinning á bak við það.“ Lovísa er búin að vera afkastamikil á síðustu árum og hefur alls ekki í hyggju að slaka á. Hún er í þann veginn að leggja upp í tónleika- hringferð um landið til að fylgja plötunni eftir, fyrstu tónleikarnir verða í Vestmannaeyjum á laugar- daginn. Hún segist hlakka mikið til að ferðast um landið og spila á stöðum sem hún hefur ekki heimsótt áður. „Ég bjó til dæmis á Selfossi og ég held ég hafi aldrei spilað þar, ég gæti samt verið að ljúga. Maður veit ekkert hvort fólk mætir en við erum allavega sex í bandinu þannig að það er ágætis hópur. Við getum þá verið bara ein á sviðinu.“ Lovísa eyddi stórum hluta síðustu þriggja ára á tónleikaferðalagi með Emilíönu Torrini og þekkir því orðið allar gerðir af tónleikahaldi. „Þetta var ótrúleg reynsla. Við fórum í tvo Evróputúra og spiluðum í Banda- ríkjunum, Ástralíu og Japan. Fyrir mig sem var búin að spila eitt og eitt gigg hér og þar var þetta alveg massíft. Við fengum líka mjög góðar viðtökur, ég held að aðdáendur Emilíönu séu rosalega almennilegt fólk. Þau voru öll mjög indæl við mig sem þau þekktu ekki neitt og var eitthvað að gaula þarna á undan henni.“ Þó svo að Lovísa hafi viljað gera alíslenska plötu útilokar hún alls ekki að hún muni halda áfram að reyna fyrir sér erlendis. Hugurinn er nefnilega strax farinn að leita til næstu plötu, sem hún vonast til að geta byrjað að taka upp strax eftir áramót. „Mér finnst algjör forréttindi að fá að gera það sem ég geri, þetta er svo ótrúlega gaman. Ég hugsa að mig langi bara að nota tækifærið á meðan ég kemst upp með það að vera í þessum heimi.“ FORRÉTTINDI AÐ BÚA TIL TÓNLIST Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir vann hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar í fyrsta sinn sem hún plokkaði gítarinn og opnaði munninn undir nafninu Lay Low. Síðan eru liðin fimm ár og mikið vatn hefur runnið til sjávar. Lovísa hefur gefið út þrjár sólóplötur, farið í tónleikaferð um heiminn, leikið í kvikmynd og samið tónlist fyrir bæði leikrit og kvik- myndir. Reynslan leynir sér ekki á nýrri plötu hennar, Brostnum streng, sem er mun marg- slungnari en forverar hennar. ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Í FRÍKIRKJUNNI „ÉG VERÐ MEÐ ÚTGÁFUTÓNLEIKA 18. NÓVEMBER Í FRÍKIRKJUNNI. ÞETTA ER Í ÞRIÐJA SINN SEM ÉG HELD ÚTGÁFUTÓNLEIKANA ÞAR EN ÉG MAN EKKERT EFTIR SÍÐUSTU TVEIMUR. Í FYRRA SKIPTIÐ STAFAÐI MINNISLEYSIÐ AF STRESSI OG Í SEINNA SKIPTIÐ VAR ÉG FÁRVEIK.” MIÐASALA FER FRAM Á MIDI.IS. Lay Low ætlar að ferðast um Ísland og spila eins lengi og veður og færð leyfa. Hér er hún ásamt hljómsveitinni sinni glæsilegu. LAY LOW FLYTUR PLEASE DON'T HATE ME OG FLEIRI LÖG Í POPPSKÚRNUM Á VÍSI.IS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.