Fréttablaðið - 10.11.2011, Page 60

Fréttablaðið - 10.11.2011, Page 60
10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR44 Pepsi 2l 139 kr ...opið í 20 ár „Hver einasti Spánverji þekkir eitthvað til Joaquín Sabina, sem er að mínu mati stórkostlegur tónlistar- maður,“ segir spænskukennarinn, leiðsögumaðurinn og gítarleikarinn Júlíus Hjörleifsson, sem ásamt Pétri Valgarði Péturssyni myndar gítardúettinn Los Bíldalayos. Næstu tvö föstudagskvöld munu þeir félagar, ásamt söngkonunni Maríu Björgu Kristjánsdóttur, halda tónleika á Næsta bar. Þau ætla að flytja söng- lög eftir Sabina, auk þess sem Júlíus mun spjalla um tónlistarmanninn og lífshlaup hans. Júlíus hefur lengi verið aðdáandi Sabina, en fór að spila lögin hans fyrir áheyrendur í starfi sínu sem leiðsögumaður. „Ég tek gítarinn yfirleitt með í ferðir og hef gaman af því að taka eina kvöldstund í að syngja og spila á gítar,“ segir Júlíus og bætir við að margir Spánverjar þekki lögin og syngi með, að minnsta kosti í viðlögunum. Oft komi þeim á óvart að heyra Júlíus taka lög eftir Sabina. „Það kemur fólki helst á óvart að maður hafi lagt það á sig að læra textana. Sabina er mjög erfiður, textarnir hans eru svolítið absúrd og í þeim virðist í fyrstu ekkert sjáan- legt samhengi. Þetta er ákveðin áskorun. Ég ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur með þessu.“ Á milli laga ætlar Júlíus að segja sögur af sam- skiptum Íslendinga og Spánverja í gegnum tíðina. Hann segir meðal annars sögur af Böskunum og hinum hrikalegu Spánverjavígum. Þá mun saltfisk- útflutning og rauðvínsinnflutning bera á góma og síðast en ekki síst sólarlandaferðir Íslendinga. Í tilefni af tónleikunum verða framreiddir tapas- réttir á Næsta bar þessi tvö föstudagskvöld. Miða- verð á tónleikana er 1.000 krónur ef borgað er með peningum en 1.500 ef borgað er með korti. Dagskráin hefst klukkan 21. - hhs Spænsk stemning á Næsta bar LOS BÍLDALAYOS Pétur Valgarð Pétursson, Júlíus Hjörleifsson og María Björg Kristjánsdóttir æfa á Næsta bar fyrir tónleikana sem fram undan eru næstu tvö föstudagskvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Guðrún Kristín Magnúsdóttir rit- höfundur ákvað fyrir ári síðan að ráðast í víðtæka bókaútgáfu. Ári síðar eru 130 bækur hennar og sonar hennar aðgengilegar í Amazon-vef- versluninni. Hugsjón réði ferð Guð- rúnar sem vill að sem flestir hafi ráð á því að kaupa bækur. Við fáum ekkert fyrir okkar snúð, fólk greiðir fyrir prentunina og svo sendingar- kostnað,“ segir Guðrún Kristín Magnús- dóttir rithöfundur, sem hefur verið stórtæk í útgáfu barnabóka undanfarið. Guðrún Kristín hefur lengi fengist við ritstörf, gefið út barnabækur og skrifað leikrit og ljóð. Barnabækurnar eru þó langmest áberandi á hennar ritaskrá og nú eru 130 bóka hennar fáanlegar á nýjan leik í gegnum Amazon- netverslunina. Barnabækur Guðrúnar Kristínar er af fjölbreyttum toga, í sumum koma kettir, hestar eða geimverur fyrir. „Þarna eru ýmsar verðlaunasögur. þarna eru til dæmis fjölmargar bækur um köttinn Hannes sem henta börnum frá unga aldri.“ Guðrún Kristín hefur líka ráðist í að koma hinni fornu norrænu speki í búning fyrir börn. „Óðsmálin fjalla um vitundarvísindi for- feðra okkar, sem eru mikil og djúp þó að margir hafi verið tilbúnir til að misskilja þau í gegnum tíðina,“ segir Guðrún Kristín sem hefur skrifað alls 40 bækur um Óðs- málin fyrir krakka. Margir muna einnig eftir bókum sonar hennar um geimveruna Tak sem var lengi fastagestur í Stundinni okkar en þær bækur hafa allar verið gefnar út á nýjan leik. Bækurnar kosta frá 400 krónum en við bætist sendingarkostnaður. „Það er auð vitað hagstæðara að kaupa fleiri en eina bók,“ segir Guðrún Kristín á að lokum. Eins og áður sagði er hægt að nálgast bækur Guðrúnar á vef Amazon-bóka- verslunarinnar. Þar fyrir utan þá er hægt að skoða höfundarverk hennar á www.mmedia. is/odmal. sigridur@frettabladid.is 130 bækur útgefnar á einu ári GUÐRÚN KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR Hefur skrifað fjölmargar bækur fyrir börn sem eru nú aðgengilegar á nýjan leik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Margir muna eftir geimver- unni Tak sem var fastagestur í Stundinni okkar undir lok áttunda áratugarins. Tak er hugsmíð sonar Guðrúnar Kristínar, Hjalta Bjarna- sonar, sem teiknaði allar myndirnar í bækurnar og samdi með aðstoð móður sinnar. Hjalti var á aldrinum fimm til tíu ára þegar hann fékkst við sögurnar um Tak. Samnefndar bækur eru líkt og aðrar bækur Freyjukatta fáanlegur í vefbókabúðinni Amazon. GEIMVERAN TAK Á laugardaginn opnar í Gerðubergi ljós- myndasýningin Málshættir í fókus, þar sem 29 áhugaljósmyndarar sýna fjöl- breytileg verk. „Þetta er í raun og veru mjög fjöl- breytileg sýning. Það var engin sía, allir máttu vera með, þannig að myndirnar eru bæði eftir byrjendur og lengra komna. Þetta kemur mjög vel út,“ segir Þorsteinn Narfason, sem situr í sýningarnefnd Fókuss, félags áhugaljósmyndara. Félagið stendur fyrir sýningunni Málshættir í fókus, sem verður opnuð í Menningarmið- stöðinni Gerðubergi á laugardaginn. Alls taka 29 ljósmyndarar þátt í sýningunni, um þriðjungur félagsmanna. Þema sýningarinnar er málshættir, en ljósmyndirnar eiga það sammerkt að túlka íslenska málshætti. Þorsteinn á sjálfur verk á sýningunni, ljósmynd sem tekin var á Gay Pride í sumar af tveimur glað- værum draggdrottningum. Þannig túlkaði hann málsháttinn maður er manns gaman. Aðrir málshættir sem félagsmenn túlka með myndavélum sínum eru meðal annars þeir fiska sem róa, margar hendur vinna létt verk og fold skal við flóði taka. Frá því að Fókus varð til árið 1999 hefur félagið staðið fyrir 22 ljósmyndasýningum. Félagið er opið öllum áhugamönnum um ljósmyndun. Markmið þess er að skapa vettvang fyrir félags- menn til að sinna áhugamálinu. Það er meðal annars gert með því að skipuleggja ljósmyndaferðir, halda samkeppnir og fræðsluerindi um ljósmyndun. Einnig eru reglulegir fundir þar sem félagar hittast og ræða saman um þetta sameiginlega áhugamál. Á heimasíðu félagsins, fokusfelag.is, má skoða úrval ljósmynda eftir félagsmenn. Sýningin stendur til 8. janúar og er opin virka daga frá klukkan 11 til 17 og 13 til 16 um helgar. - hhs Málshættir í mynd KALT ER KATTAR GAMNIÐ Vanir jafnt sem óvanir ljósmyndarar eiga verk á sýningunni Málshættir í fókus, sem verður opnuð í Gerðubergi á laugardaginn. MYND/EYDÍS EYJÓLFSDÓTTIR Soffía Sæmundsdóttir opnar einkasýningu á nýjum verkum í Baksal Gallerí Foldar á laugar- dag klukkan 15. Soffía hélt fyrstu einkasýningu sína í Baksal Gallerí Foldar fyrir fimmtán árum og kallast þessi sýning að ein- hverju leyti á við þau við- fangsefni sem þá lágu henni á hjarta. Í frétta- tilkynningu segir Soffía um sýninguna: „Ég vil vekja tilfinningu fyrir einhverju stór- brotnu en jafnframt ofurlítið brothættu. Manneskjurnar í myndunum sem ég kalla ferða- langa, halda ferð sinni áfram í forundran yfir stærð veraldar- innar og óendanleika og smæð mannsins í því samhengi.“ Myndirnar eru málaðar með olíu á tré og striga og eru frá þessu ári. Soffía hefur verið virk á íslenskum myndlistarvettvangi undanfarinn áratug og haldið fjölmargar einka- og samsýning- ar. Hún hefur hlotið margvíslega viðurkenningar fyrir verk sín sem eru í eigu fjölda opinberra stofnana og einstaklinga. Stórbrotið en brothætt NÝJAR MYNDIR Myndir Soffíu eru frá þessu ári. SOFFÍA SÆMUNDSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.