Fréttablaðið - 10.11.2011, Page 64

Fréttablaðið - 10.11.2011, Page 64
10. nóvember 2011 FIMMTUDAGUR48 Súkkulaði Póló 119 kr ...opið í 20 ár HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Fimmtudagur 10. nóvember ➜ Tónleikar 19.30 Hljómsveitin Reykjavík! fagnar útgáfu breiðskífunnar Locust Sounds með matar- og tónlistarveislu á Kexi Hosteli. Fiskihlaðborð frá Tjöruhúsinu. Trúaborinn Markús Bjarnason leikur ljúf lög áður en Reykjavík! stígur á svið og FM Belfast endar tónleikana á diskó- dansi. Miðaverð fyrir mat og tónleika er kr. 5.500 og á staka tónleika er það kr. 2.000. 19.30 Tónleikar í Hörpu með Sinfón- íuhljómsveit Íslands. Hljómsveitin spilar undir stjórn Petri Sakari Sinfónía nr. 9 eftir Gustav Mahler. Einleikari er Jósef Ognibene. Á tónleikunum mun hljóma í fyrsta sinn nýr hornkonsert Áskels Mássonar. Miðaverð er frá kr. 2.000 til kr. 6.500. 20.00 Íslenska óperan heimsækir Hof á Akureyri og flytur tónlist úr óperum á borð við Carmen, Gianni Schicchi, La traviata, Kátu ekkjuna, Rakarann í Sevilla og Perlukafarana, sem öðlast nýtt líf í þessari stórskemmtilegu sviðs- settu söngdagskrá úr smiðju Ágústu Skúladóttur. Miðaverð er kr. 3.200. 20.30 Jón Ólafsson fær til sín Pál Óskar sem gest á einstökum spjall- tónleikum í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum í Kópavogi. Miðaverð er kr. 3.300. 21.00 Mezzó bandalagið kemur fram á tónleikum á Café Rosenberg og spila vel valin dans- og vangalög frá árunum 1987-1992. Miðaverð er kr. 1.500. 21.00 Hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar verður haldin í göngugötunni á Garðatorgi. Bubbi Morthens stígur á svið með kassagítarinn og skemmtir gestum. Á sama tíma verður opið hús í sal Grósku á Garðatorgi þar sem gestir geta skoðað myndlist. Aðgangur er ókeypis. 22.00 Strákarnir í hljómsveitinni 1860 halda útgáfutónleika í Þjóðleikhús- kjallaranum. Miðaverð er kr. 1.860. 22.30 Kreppukvöldin vinsælu halda áfram á Bar 11. Hljómsveitin Sak- timóðigur spilar og mun hljómsveitin Norn sjá um upphitun. Fyrir og eftir tónleikana heldur Ómar á X-inu uppi rífandi stemningu. Aðgangur er ókeypis. ➜ Leiklist 20.00 Leikritið Endalok alheimsins í leikstjórn er sýnt í Kvikunni í Grindavík. Miðaverð er kr. 2.900. ➜ Fundir 20.00 Fyrirlestraröð félagsins Matur - saga - menning hefst í vetur á fundi um Norræna eldhúsið, nýtt fyrirbæri í matarmenningu. Fundurinn fer fram í Norræna húsinu. ➜ Hátíðir 20.00 Afmælistónleikar Unglistar í Austurbæ. Margar af þeim ungsveitum sem leikið hafa á Unglist síðustu áratugi hafa getið sér gott orð í gegnum tíðina, heima og erlendis. Hljómsveitir sem koma fram eru meðal annars Dikta, Agent Fresco, Búdrýgindi, We Made God og Synir Raspútíns. Aðgangur er ókeypis. ➜ Heimildarmyndir 17.00 Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir heimildarmyndina Óráðin fram- tíð í Odda 101 í Háskóla Íslands. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. 20.00 Heimildar- myndin Silent Snow verður sýnd á (Ó) sýnileg, kvikmynda- dögum Amnesty International í Bíói Paradís. Myndin segir frá ungum inúíta sem ferðast til þriggja heims- álfa í þeim til- gangi að rannsaka áhrif mengunar á menn og umhverfi. Aðgangs- eyrir er kr. 750. ➜ Kvikmyndir 20.00 Hryllingssófabíó svokallað verð- ur haldið í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Kvikmyndin Dr. Jekyll and Mr. Hyde verður sýnd. Aðgangseyrir er kr. 500. ➜ Uppákomur 20.30 Undanúrslit í keppninni um Fyndnasta mann Íslands fer fram á Spot. Miðaverð er kr. 2.000 í forsölu en kr. 2.500 við hurð. 20 ára aldurs- takmark. ➜ Bókmenntir 17.00 Útgáfuteiti verður haldið í Bóka- búð Máls og menningar á Laugavegi 18 í tilefni af útgáfu bókarinnar Af heilum hug þar sem Björg Árnadóttir ræðir við eldhugana Jónu Hrönn Bolladóttur og Bjarna Karlsson. Gerður Bolladóttir sópran og Victoria Tarevskaia sellóleikari flytja tónlist. Allir velkomnir. ➜ Tónlist 21.00 Dj Klebstoff þeytir skífum á Faktorý. 22.00 Djezus sér um að halda uppi stuðinu á HúsDjús kvöldi á Kaffi- barnum. 22.00 Dj Jónas stýrir tónlistinni á Vegamótum. 22.00 Dj Einar Sonic spilar tónlist á Bakkusi. Upplýsingar um við- burði sendist á hvar@frettabladid.is. Tríóið 1860 tók til starfa fyrir réttu ári en hefur þegar látið frá sér sína fyrstu breiðskífu, sem kall- ast Sagan. Hljómsveitin spilar þjóðlagaskotið popp sem fengið hefur góðar viðtökur hjá landanum. Útgáfutónleikar verða haldnir í Þjóðleikhúskjall- aranum í kvöld klukkan 22. „Við Óttar erum æskuvinir og höfum spilað í hinum ýmsu hljóm- sveitum saman. Við vorum farn- ir að prófa okkur eitthvað áfram tveir saman, en Óttar sá svo Kidda spila á harmonikku eitt- hvert kvöldið fyrir rúmu ári og sá að þarna var komið hljóðfær- ið sem vantaði til að fullkomna okkar hljóm. Þetta byrjaði svo að blómstra um leið og við vorum komnir þrír saman,“ segir Hlynur Júní Hallgrímsson, söngvari sveit- arinnar. Auk Hlyns skipa 1860 þeir Óttar Birgisson gítarleikari og Kristján Hrannar Pálsson píanó- leikari. 1860 vakti athygli strax frá upp- hafi því hljómsveitarmeðlimir not- uðu sér nútímatækni til að koma sér á framfæri. Þeir byrjuðu strax á því að deila lögunum sínum á samskiptavefnum Youtube. „Við gerðum þetta aðallega fyrir vini okkar til að byrja með en allt í einu hafði einhver linkað á myndband með okkur á einhverjum vinsæl- um heimasíðum og við komnir með einhver þúsund áhorf á myndband sem var aðallega hugsað fyrir litlu systur, mömmu og ömmu. Það er auðvitað skemmtilegt að geta deilt þessu en þetta vatt upp á sig og við fengum svona smá meðbyr.“ Aðdáendahópur sveitar innar er því ekki eingöngu bundinn við Ísland og nú þegar hefur fólk hvaðanæva að úr heiminum deilt myndböndum á vefnum þar sem það syngur og spilar sínar útgáfu af lögum sveitarinnar. „Tónlistin okkar á sér eiginlega sjálfstætt líf á Youtube, því oft settum við fyrstu útgáfur af lögum á vefinn, en breyttum síðar hljómagangi eða öðru. Svo sjáum við samt einhvern frá Bandaríkjunum flytja lag með okkur eins og það var bara eftir fyrstu æfingu.“ Bandarískir aðdáendur sveit- arinnar munu fá tækifæri til að kynnast sveitinni betur strax eftir áramót því í næstu viku lýkur upptökum á EP-plötu sem sveitin gefur út vestanhafs. Það er fyrir- tækið sem sér um sænska lista- manninn Tallest Man on Earth sem sér um útgáfuna, en eig- andi fyrirtækisins komst einmitt í kynni við bandið þegar hann rakst á myndband sveitarinnar á Youtube. Tónlist 1860 hefur verið mikið spiluð í útvarpi og fyrsta smáskífa plötunnar, Snæfellsnes, sat meðal annars í öðru sæti vinsældar lista Rásar 2 í sumar. Hlynur segir þá félaga hæstánægða með hversu breiður áheyrendahópurinn er. „Maður gerði ráð fyrir því að tónlistin myndi höfða til fólks á sama aldri og maður sjálfur er, en það kom okkur aðeins á óvart að krakkar sem eru talsvert yngri en við eru að fíla þetta og svo eru vinkonur ömmu minnar heitustu aðdáendur okkar.“ Hlynur hvetur fólk til að leggja leið sína í Þjóðleikhúskjallarann í kvöld. „Ef fólk ætlar að mæta á eina tónleika með okkur á lífs- leiðinni þá held ég að þetta verði að vera þeir. Við verðum þarna með heilan her af fagfólki með okkur, þetta verður eitthvað alveg sérstakt.“ bergthora@frettabladid.is Mömmuvænt alþýðupopp í Þjóðleikhúskjallaranum ALÞÝÐUPOPPARAR Meðlimir 1860 eru þrír en hljóðfærin sem þeir spila á eru töluvert fleiri. Þeir hafa vakið athygli á tónleikum fyrir snerpu í hljóðfæraskiptum í miðjum lögum. Frá vinstri eru þeir Kristján, Hlynur og Óttar. FRETTABLAÐIÐ/ANTON Hollenski kvikmyndagerðamaðurinn Tom Six er væntanlegur hingað til lands í dag ásamt systur sinni en hann verður með spurt og svarað-sýningu í Háskólabíói í kvöld þegar kvikmynd hans, The Human Centipede 2, verður forsýnd. Myndin er stranglega bönnuð innan átján ára og verða dyraverðir til taks á sýningunni. Þeir verða ekki eina varúðarráðstöfunin því Ísleifur B. Þórhallsson, sem hefur veg og vanda af komu Six hingað til lands, hefur þegar tryggt að þrjú hundruð ælupokar verði til taks. „Og svo verða alvöru sjúkraliðar með súrefni og börur á reiðum höndum ef einhverjum fer að líða verulega illa.“ Myndin er feikilega umdeild, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Breska kvikmyndaeftirlitið ákvað meðal annars að banna hana alfarið í Bretlandi og varð sú ákvörðun tilefni mikilla ritdeilna. Að endingu ákváðu bresk yfirvöld að hleypa henni í gegn. Myndin hefur fengið misjafna dóma en kvik- myndatímaritið Empire gaf henni meðal annars þrjár stjörnur og fína dóma og Entertainment Weekly gaf henni lofsamlega umsögn. Ísleifur segir að Six og systir hans séu ákaflega viðkunnanlegt fólk sem hlakki mikið til heimsóknar- innar til Íslands. „Six er alveg hrikalega flughrædd- ur og hann leggur ekkert á sig svona ferðalög nema hann sé mjög spenntur,“ segir Ísleifur en þau verða hérna yfir helgina og ætla sér að kíkja út á lífið. „Og kannski kíkja á Kevin Smith,“ segir Ísleifur, en bandaríski kvikmyndaleikstjórinn verður með uppi- stand í Hörpunni á föstudagskvöld. - fgg Sjúkraliðar og ælupokar í boði VENJULEGUR NÁUNGI Tom Six verður með spurt og svarað- sýningu í Háskólabíói í kvöld en þá verður kvikmynd hans, The Human Centipede 2, forsýnd.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.