Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 4
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 30.11.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,1294
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
119,83 120,41
186,40 187,30
159,10 160,00
21,395 21,521
20,454 20,574
17,312 17,414
1,5330 1,5420
185,56 186,66
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas,
forseti Palestínustjórnar og leið-
togi Fatah-samtakanna á Vestur-
bakkanum, hefur engan áhuga á
að ná samkomulagi við Hamas-
samtökin á Gasasvæðinu.
Þetta fullyrðir Mahmoud
Zahar, einn af leiðtogum Hamas,
í viðtali við dagblaðið Asharq al-
Awsat, sem gefið er út í London.
Hann segir að Abbas láti í
þessu stjórnast af andstöðu
Ísraels og Bandaríkjanna við
Hamas-samtökin, sem hafa
stundum verið öllu herskárri
gegn Ísrael en Fatah.
Ahmed Assaf, talsmaður Fatah-
hreyfingarinnar, segir hins vegar
að ummæli Zahars endurspegli
ágreining innan Hamas. - gb
Ósætti meðal Palestínumanna:
Abbas sagður
áhugalaus
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
8°
9°
8°
12°
10°
7°
7°
24°
11°
18°
10°
20°
7°
11°
16°
7°Á MORGUN
Hvassviðri S-lands
annars hægari.
-8
LAUGARDAGUR
Hvasst allra austast í
fyrstu annars hægari.
-4
-4
-8
-8-2
-3
-7
-7
-3
-1
-1
2
-6
-3
-11
-6
-7-5
-3
-12
7
9
6
8
6
2
4
5
3
11
8
MINNKANDI
FROST verður
vestanlands í dag
og svo austan til á
morgun. Snjókoma
eða éljagangur
verður víða um
landinu næstu
daga. Á morgun
hvessir sunnan-
lands með snjó-
komu og má þá
búast við að færð
geti spillst.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
BANDARÍKIN, AP Lögreglan í Los
Angeles og Philadelphiu réðust á
búðir mótmælendahreyfingarinn-
ar Occupy Wall Street í gær til að
rýma búðirnar, sem voru orðnar
þær stærstu í Bandaríkjunum
eftir að lögreglan í New York
og fleiri borgum hafði fjarlægt
búðir mótmælenda þar.
Aðgerðir lögreglunnar komu
eftir að frestur, sem mótmælend-
um í Los Angeles og Philadelphiu
hafði verið gefinn til að rýma
búðirnar, var runninn út. - gb
Aðgerðir í Bandaríkjunum:
Búðir mótmæl-
enda rýmdar
AÐGERÐIR ÚTSKÝRÐAR Lögreglustjórinn
í Los Angeles svarar blaðamönnum.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL SMS-skilaboðin sem
Gunnlaugur Sigmundsson sendi
Teiti Atlasyni nafnlaust voru 12
en ekki fjögur
eins og kom
fram í yfirlýs-
ingu Gunnlaugs
í Fréttablaðinu
í gær. Teitur
upplýsir þetta
í eigin yfir-
lýsingu í blaði
dagsins.
Teitur segir
ekki hvað kom
fram í skeytunum sem voru send í
gegnum vef ja.is nema að þau hafi
innihaldið „aðdróttanir, furðu-
dylgjur og óra sem vart er hægt að
hafa eftir“. Hann hafi í framhald-
inu sent skilaboðin til lögreglu.
„Þetta mál er sorgarsaga. Þessi
nýjasti kafli er mannlegur harm-
leikur,“ segir Teitur. - þj, sjá síðu 32.
Teitur um deilur við Gunnlaug:
SMS-skilaboðin
voru 12 talsins
TEITUR ATLASON
REYKJAVÍK Engin pólitísk stefnu-
mótun kemur fram í fimm ára
áætlun Reykjavíkurborgar sem
kynnt var í gær að mati borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Forseti borgarstjórnar blæs á
gagnrýni minnihlutans og segir
pólitíska framtíðarsýn meiri-
hlutans skýra.
Þetta er í fyrsta skipti sem
fimm ára áætlun er sett fram
fyrir borgina, en þar má
finna spá um fjárhagsstöðu
borgarinnar til ársins 2016
byggða á hagrænum þáttum.
Samkvæmt áætluninni mun A-
hluti borgarsjóðs skila jákvæðri
rekstrarniðurstöðu öll árin. Gert
er ráð fyrir
því að eignir
a u k i s t u m
12,8 milljarða
en skuldir og
skuldbindingar
um 9 milljarða
króna.
Í yfirlýsingu
frá borga r -
stjórnarflokki
Sjálfstæðis-
flokksins segir að enga pólitíska
framtíðarsýn sé að finna í frum-
varpinu. Það sé í raun aðeins
framreikningur á fyrirliggjandi
fjárhagsáætlun.
Þar er gagnrýnt að áætlunin
hafi að mestu verið unnin af
fjármálastjóra borgarinnar, með
sáralítilli aðkomu kjörinna full-
trúa.
Dagur B. Eggertsson, forseti
borgarstjórnar, segir þessa gagn-
rýni á störf meirihlutans ómak-
lega. Fimm ára áætlunin sé tæki
fyrir pólitíska fulltrúa til að meta
hvernig framtíðin geti þróast og
hvaða svigrúm sé til að breyta
forgangsröðun borgarinnar.
„Ég er mjög ósammála því
að það hafi ekki komið fram
skýr stefna um hvert við viljum
stefna,“ segir Dagur. Sú stefna
hafi komið fram í ræðum borgar-
fulltrúa meirihlutans.
Dagur segir að lykillinn að
framtíðarsýn meirihlutans um
atvinnustefnu með öruggan vöxt
til næstu ára sé að borgin auki
áherslu á grænan vöxt og skap-
andi greinar. Þá verði borgin að
laða til sín fólk og fyrirtæki til
fjárfestinga og bregðast hart við
hættu á varanlegu atvinnuleysi.
- bj
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gagnrýna skort á pólitískri framtíðarsýn í fimm ára áætlun borgarinnar:
Framtíðarsýnin er skýr segir forseti borgarstjórnar
DAGUR B.
EGGERTSSON
BRETLAND Tvær áður óþekktar
gryfjur sem fundist hafa við
Stonehenge í Englandi benda til
að staðurinn hafi verið helgistað-
ur sóldýrkenda áður en hin dular-
fulla steinhvelfing var reist þar.
Fjallað er um málið á vef
breska ríkisútvarpsins en þar
segir að gryfjur þessar séu stað-
settar þannig að auðvelt var
að fylgjast með gangi sólar-
innar á mismunandi árstíðum.
Í gryfjunum gætu hafa verið
steinar, trjábolir eða eldstæði sem
sýndu upphaf sólarupprásar og
sólseturs á hverjum degi.
Vísindamenn í Stonehenge:
Fundu áður
óþekktar gryfjur
LÖGREGLUMÁL Sérstakur saksókn-
ari yfirheyrði á annan tug manna
í gær vegna rannsóknar tíu mála
tengdum lánveitingum Glitnis og
viðskiptum með hlutabréf. Við-
skiptin sem til rannsóknar eru
nema tugmilljörðum.
Þrír voru úrskurðaðir í varð-
hald vegna málsins, Lárus
Welding, fyrrverandi forstjóri,
Jóhannes Baldursson, sem var
framkvæmdastjóri á markaðs-
viðskiptasviði, og Ingi Rafnar
Júlíusson, sem starfaði á verð-
bréfasviði.
Meðal málanna sem eru undir
rannsókninni er eitt hið fyrsta
sem komst í hámæli eftir banka-
hrun, kennt við eignarhalds-
félagið Stím. Áður hafa menn
verið handteknir og yfirheyrðir
vegna þess.
Gerð er nokkur grein fyrir
hinum málunum níu í fjórum
liðum í tilkynningu frá embætti
sérstaks saksóknara í gær.
Í fyrsta lagi er um að ræða stór-
felld kaup deildar eigin viðskipta
hjá Glitni á bréfum sem bankinn
gaf út á markaði. Þetta er talin
vera umfangsmikil markaðsmis-
notkun. Þá rannsakar saksóknari
einnig kaup bankans á bréfum í
FL Group og ráðstöfun þeirra.
Viðskiptin sem þarna eru undir
nema samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins tugum milljarða.
Í öðru lagi eru til rannsóknar
lánveitingar til ýmissa félaga
vegna kaupa á hlutabréfum í
bankanum í lok árs 2007 og árið
2008. Lánin námu 37 milljörðum
króna.
Rannsaka viðskipti
upp á tugi milljarða
Sérstakur saksóknari rannsakar viðskipti Glitnis og FL Group fyrir fleiri tugi
milljarða. Grunur er um brot gegn fjölda lagabálka. Meðal annars er talið að
Glitnir hafi skapað umframeftirspurn eftir bréfum í FL Group í desember 2007.
Í þriðja lagi rannsakar
embættið milljarðaviðskipti með
framvirka samninga í hluta-
bréfum í bankanum.
Í fjórða lagi er til rannsóknar
sölutrygging Glitnis á fimmtán
milljarða hlutafjárútboði FL
Group í desember 2007. Þá var
ráðist í tíu milljarða hlutafjár-
útboð, sem gæti hækkað í fimm-
tán milljarða ef eftirspurn yrði
næg. Eftirspurnin nam í heild
ríflega tuttugu milljörðum, og
komu boðin ekki síst frá aðilum
sem Glitnir lánaði sjálfur fyrir
kaupunum með sölutryggingu.
Stór hluti af því var keyptur af
félaginu BG Capital í eigu Baugs.
Málin bárust til sérstaks sak-
sóknara með kærum frá Fjár-
málaeftirlitinu og tilkynningum
frá slitastjórn Glitnis fyrr á árinu.
Grunur er um auðgunarbrot,
brot á lögum um verðbréfavið-
skipti, lögum um fjármálafyrir-
tæki, lögum um ársreikninga og
lögum um bókhald.
Alls tóku sextíu starfsmenn
embættisins þátt í aðgerðunum
og munu yfirheyrslur halda áfram
næstu daga.
stigur@frettabladid.is
Þrír í gæsluvarðhaldi
Á LEIÐ Í VARÐHALD Þessar myndir voru
teknar af Inga Rafnari Júlíussyni (til vinstri) og
Jóhannesi Baldurssyni á leið úr Héraðsdómi
Reykjavíkur í gærkvöldi í lögreglufylgd eftir
að þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÁRUS
WELDING