Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 32
32 1. desember 2011 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Einlæg og ágeng AFVIKNIR STAÐIR Sigmundur Ernir tekst á við dótturmissi en yrkir einnig um dýrðardaga bernskunnar í sveit- inni og fjarlæga staði þar sem tónlistin liðast um loftið. HALLDÓR Gunnlaugur M. Sigmundsson, sá sem stefndi mér vegna skrifa um Kögunar- málið, birti í gær yfirlýsingu í Fréttablaðinu þar sem hann viðurkennir að hafa sent mér nafnlaus SMS sem innihéldu aðdróttanir, furðudylgjur og óra sem vart er hægt að hafa eftir. Málið má rekja til þess að í ágúst var ég nýkominn heim til Gautaborgar eftir frábært frí á Íslandi með fjölskyldu minni. Í því sem ég er eitthvað að nördast á netinu heyri ég dauft píp úr síma sem ég var búinn að pakka ofan í kassa. Ég opna kassann og sé að gamli góði Nokia-hlunkurinn minn er á síðasta strikinu að rembast við að segja mér eitthvað. Jú, tólf ólesin SMS. Ég setti símann á skrifborðið og hlóð tækið. SMS voru frá einhverjum sem sagðist vera í Gautaborg. Íslenska stafi vantaði í skilaboðin og réttritun var ábótavant. Efni skilaboðanna var hins vegar með þeim ólíkindum að ég sá tilefni til að senda þau til lögreglunnar til rannsóknar. Skilaboðin komu frá ja.is en þar eru öll SMS „logguð“ og misnotkun varðar við lög. Nú, þegar rannsókn málsins er vel á veg komin, hefur Gunnlaugur M. Sigmundsson stigið fram og játað að vera sendandi nafn- lausu skilaboðanna. Skýring hans er sú að hann hafi setið undir „holskeflu ærumeiðandi ummæla“ vegna Kögunarmálsins. Umræðan hafi „lagst þungt á hann“. Hér kveður við annan Gunnlaug en þann sem sagði fólki að fara til helvítis í láréttri stöðu og þann sem rak undirmann sinn fyrir einhvern brand- ara. Og þetta er annar Gunnlaugur en sá sem hefur kallað mig opinberlega galinn mann. Gunnlaugur Sigmundsson ber fyrir sig að hafa í einhvers konar örvilnan eða stundar- brjálæði sent þessi nafnlausu SMS. Þess má geta að skilaboðin sem mér bárust voru 12 talsins en ekki 4 eins og hann fer rangt með í yfirlýsingunni í gær. Lögreglan getur staðfest það. Þau voru send skipulega á þriggja daga tímabili, ávallt á sama tíma dags. Lögreglan getur líka staðfest það. Þetta mál er sorgar- saga. Þessi nýjasti kafli er mannlegur harm- leikur. Ég hef ítrekað boðið Gunnlaugi að falla frá málsókninni á hendur mér. Ég hef líka lagt til að við báðir legðum fram ein mánaðarlaun til góðgerðarmála í stað alls þess lögfræði- kostnaðar sem er óhjákvæmilegur. Þessu hefur Gunnlaugur hafnað. Raunar hefur hann bætt við stefnuna og stefnt mér fyrir ummæli þar sem ég segi hann neyta fjárhagslegs afls- munar gegn mér. Eins og Guðmundur Andri Thorsson segir í grein sinni „Kúgun og Kögun“ frá 15. ágúst sl. mun Gunnlaugur „ekki endurheimta æru sína úr klóm Teits Atlasonar. Hún er ekki þar“. En hann gæti látið staðar numið. Sjálfs sín vegna. Yfirlýsing frá Teiti Atlasyni Dómsmál Teitur Atlason Kennari og bloggari Í rafárið vegna vinnubragða Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- ráðherra við endurskoðun kvótafrumvarpsins hefur að mestu yfirskyggt efni málsins. Sé hins vegar rýnt í frumvarpsdrögin sem leynistarfshópur ráðherrans tók saman – eins og gert var í fréttaskýringu hér í blaðinu í fyrradag – kemur í ljós að engar grundvallarbreytingar hafa verið gerðar efnislega frá „stóra kvótafrumvarpinu“. Málið er með öðrum orðum ennþá efnahagslegt stórslys í upp- siglingu. Lesendur muna kannski að hagfræðingar, sem Jón Bjarna- son valdi sjálfur til að gera úttekt á efnahagslegum áhrifum frum- varpsins, rifu það niður og fundu því flest til foráttu. Sama gerðu hagfræðingar Efnahags- og fram- farastofnunarinnar, OECD. Ef eitthvað er hefur byggða- áherzlan í frumvarpsdrögum Jóns Bjarnasonar orðið sterkari; þar er enn grautað í pottum sem ráðherrann vill geta útbýtt kvóta úr. Umbúðalaust heitir það að taka kvóta af fólki sem veiðir fisk með hagkvæmum og arðbærum hætti og afhenda hann fólki sem hefur staðið sig illa í rekstri og misst frá sér veiðiheimildir. Áfram er krukkað í frjálst framsal aflaheimilda og talað óskýrt um veðsetn- ingu þeirra. Þetta er uppskrift að sóun og óhagræði í greininni. Það er óneitanlega þversagnakennt að Jón Bjarnason, sem reynir nú að hanga inni í ríkisstjórninni á þeirri forsendu að hann sé merkis beri baráttunnar gegn hinu vonda Evrópusambandi, skuli þannig hafa gengið enn lengra en í síðustu tilraun til að gera íslenzka sjávarútvegsstefnu líkari misheppnaðri stefnu ESB, sem rekin er á forsendum félags- og byggðasjónarmiða. Á sama tíma ætlar ESB að laga sína stefnu að því sem hefur tíðkazt á Íslandi. Í frumvarpsdrögunum er komið til móts við gagnrýni á stuttan nýtingartíma aflaheimilda, en ekki nándar nærri nóg. Fjárfestingar í sjávarútvegi eru af þeirri stærðargráðu að fyrirtækin verða að njóta rekstraröryggis til langs tíma. Langir nýtingarsamningar eru þar að auki hvatning til að fara vel með auðlindina. Málið hefur verið tekið úr höndum sjávarútvegsráðherrans. Efnislega er hætt við að það breyti litlu, vegna þess að úr báðum stjórnarflokkum heyrast áfram háværar kröfur um að ríkisstjórnin haldi sínu striki og leggi rekstrargrundvöll sjávarútvegsins í rúst til að ná pólitískum markmiðum. Skynsemisraddirnar í stjórnarliðinu eru nú þöglar. Þær ættu þó að leggja til að bæði „stóra kvótafrumvarpinu“ og samsuðu leyni- hóps Jóns Bjarnasonar verði hent. Í staðinn verði byggt á þeirri sátt sem náðist um samningaleiðina svokölluðu; að kveðið verði skýrt á um þjóðareign á kvótanum og nýtingarsamninga sem útgerðin greiði fyrir auðlindagjald. Hins vegar á að fikta sem minnst í fisk- veiðistjórnunarkerfinu að öðru leyti. Með þessu væri mesta ranglætinu í núverandi kerfi útrýmt. Sjávarútvegurinn gæti snúið sér að því sem hann á að gera; fjár- festa og skapa atvinnu, í staðinn fyrir að fylgjast milli vonar og ótta með veruleikafirrtum pólitíkusum leggja á ráðin um hvernig sé hægt að skemma sem mest fyrir einni af undirstöðuatvinnu- greinum landsins. Nú er tímabært að henda bæði kvótafrumvarpinu og nýja plagginu hans Jóns. Hættið að skemma Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Farinn í fýlu Nokkuð blés á milli embætta ríkis- lögreglustjóra og ríkisendurskoðunar fyrir nokkru og þurfti innanríkis- ráðherra að skera úr um deiluna. Eitt- hvað virðast þau skoðanaskipti hafa farið illa í Harald Johannessen ríkis- lögreglustjóra, því þegar ríkisendur- skoðun óskaði upplýsinga til að geta sinnt lögboðinni eftirlitsskyldu sagði hann einfaldlega nei. Það ríkti ekki lengur traust á milli stofnananna tveggja. Aftur þurfti innanríkisráðherra að skakka leikinn, nú til að segja ríkislögreglu- stjóra að hætta í fýlu og afhenda gögnin. Traustið sem hvarf Röksemdir ríkislögreglustjóra vekja hins vegar upp ýmsar spurningar. Geta fleiri beitt þessum röksemdum? Geta einstaklingar neitað að fylgja lögreglu þar sem þeir bera ekki traust til hennar? Eða útrásarvíkingarnir? Efalaust bera þeir lítið traust til sérstaks saksóknara. Ætli þeir fylgi for- dæmi Haralds Johannessen og neiti emb- ættinu um upplýsingar vegna skorts á trausti? Eignarhald og eignarhald Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík (VGR) ályktaði á miðvikudag og vonaði að synjun um sölu á Gríms- stöðum á Fjöllum til kínversks fyrirtækis væri vísir að því sem koma skyldi „að eignarhald á jarðnæði verði úr höndum auðmanna“. Raunar fylgdi með að einkaeignarhald á jarðnæði ætti almennt að heyra sögunni til, en Líf Magneudóttir, formaður félagsins, skýrði síðan að þar væri aðeins um fagra fram- tíðarsýn að ræða. Hvort fyrri hluti ályktunarinnar þýði að VGR er sátt við að Grímsstaðir verði í eigu núverandi eiganda, einkaaðila, skal ósagt látið. Kannski er hann nógu fátækur. kolbeinn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.