Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 76
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR64 folk@frettabladid.is 1.428.360.000 Bresku tískuverðlaunin voru afhent á mánudagskvöldið í London þar sem gestir á rauða dreglinum voru hver öðrum glæsilegri. Viðburðurinn er eins konar uppskeruhátið breskra fatahönnuða og verðlaun voru veitt í ýmsum flokkum. Sarah Burton, yfirhönnuður Alexander McQueen, hreppti aðal- verðlaun kvöldsins sem hönnuður ársins en Burton þykir hafa átt þátt í tískuaugnabliki ársins þegar hún hannaði fallegan brúðarkjól Katrínar, hertogaynju af Cambridge, í vor. Victoria Beckham tárfelldi er henni var opinberlega tekið opnum örmum af tískuheiminum og merki hennar valið fatamerki ársins. SJÓNVARPSTJARNAN Alexa Chung tók á móti verðlaunum fyrir góðan fatasmekk, eða British Style Awards. FYRIRMYND- IN Poppy Delevigne var í skósíðum ljósum kjól. FJAÐRIR Olivia Palermo var í skemmtilegum kjól með munstri og fjöðrum. BROSANDI Kelly Brooks var í hvítum síðkjól með klauf. NÝBAKAÐIR FORELDRAR Bandaríska leikkonan Kate Hudson var klædd í kjól eftir vinkonu sína Stellu McCartney og er hér ásamt kærasta sínum, barns- föður og söngvara Muse, Matt Bellamy. NORDICPHOTOS/GETTY „Ég er með margt skemmtilegt í pípunum varðandi músík,“ segir tónlistarmaðurinn Einar Ágúst Víðis- son, sem sent hefur frá sér sitt fyrsta lag í rúm fjögur ár. Einar Ágúst, sem er best þekktur úr hljóm- sveitinni Skítamóral, hefur ávallt verið iðinn við lagasmíðar og samdi mörg vinsælustu lög hljóm- sveitarinnar á sínum tíma. Í þetta sinn sá hann þó ekki um lagasmíðina, en nýja lagið heitir The Lights In Your Eyes og er samið af ungum og efnilegum tónlistarmanni, Andra Ramirez, sem gengur undir nafninu Prostarz. Andri stundar nám í hljóðtæknifræði í Bretlandi og hefur verið iðinn við að semja tónlist og koma sér á framfæri ytra. Aðspurður útilokar Einar Ágúst ekki frekara samstarf þeirra á milli. „Við Andri erum að skoða ýmislegt. Ég er að velta fyrir mér texta við eitt lag eftir hann í augnablikinu. Þessi drengur lofar virkilega góðu.“ Einar Ágúst gaf út sína fyrstu sólóplötu árið 2007 og fylgdi henni á eftir með mikilli spila- mennsku. Eftir útgáfuna dró hann svo mikið úr afskiptum sínum af tónlist, þótt hann héldi áfram lagasmíðum. Inntur eftir því hvort hann hafi ekki saknað tónlistarinnar og þess að koma fram segir hann hléið hafa verið kærkomið. „Stundum þarf maður bara frí frá þessu eins og öðru. Það var mjög gaman að byrja að vinna við útvarp aftur þegar ég byrjaði á Kananum vorið 2010 en það er ákveðið „performance“ í því líka. Ég held að ég hafi mögulega „spilað yfir mig“ á árunum 2006- 2010. En ég er og mun alltaf verða tónlistarmaður og gera músík.“ - bb Nýtt lag frá Einari Ágústi EINAR ÁGÚST Söngvarinn vinnur nú að eigin útgáfu af SúEllen smellinum Svo blind. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Leikarinn Bradley Cooper sást nýverið á stefnumóti í París með frönsku leikkonunni Melanie Laurent. Þau fóru saman í bíó á Champs-Ély- sées og út að borða á Hotel Costas. Leikarinn var nýlega valinn kynþokkafyllsti karlmaður í heimi af tímaritinu People og hefur verið orðaður við frægar konur á borð við Jennifer Lopez og Renée Zellweger að undanförnu. Laurent skaust upp á stjörnu- himininn eftir hlut- verk sitt í kvikmyndinni Inglourious Basterds. BAUÐ Í BÍÓ Bradley Cooper fór á stefnumót með frönsku leikkonunni Melanie Laurent í París. LEIKKONAN Melanie Laurent lék í myndinni Inglorious Basterds. NORDICPHOTOS/GETTY KRÓNUR er áætlað virði villunnar sem Jay-Z og Beyoncé Knowles hafa hug á að kaupa á Miami. Sjö svefnherbergi eru í villunni og fyrir utan er bæði sundlaug og heitur pottur. Á stefnumóti í París Í SKÝJUNUM Victoria Beckham var í skýjunum með verðlaunin sín fyrir fatamerki ársins. VICTORIA BECKHAM Á MEÐAL VERÐLAUNAHAFA STAL SENUNNI Fyrirsætan og tískufyrirmyndin Kate Moss lét sig ekki vanta og stal senunni í svörtum síðum netkjól með rauðan varalit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.