Fréttablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 10
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR10
FRÉTTASKÝRING
Hvers vegna átti að leggja á kolefnisgjöld?
Fjármálaráðherra féll frá fyrirhuguðu
kolefnis gjaldi á rafskaut, koks og kol, en
gjaldið var að finna í bandormi um ráð-
stafanir í ríkis fjármálum. Ætlunin var
að gjaldið skilaði 1,5 milljörðum króna í
tekjur árið 2013.
Árið 2009 var settur á sérstakur raforku-
skattur með samkomulagi við orkufrekan
iðnað. Hann hefur skilað um tveimur
milljörðum króna árlega í ríkissjóð, en
rennur sitt skeið á enda í árslok 2012.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
var það ætlun ráðuneytisins að kolefnis-
gjaldið kæmi í stað raforkuskattsins. Nú,
þegar fallið hefur verið frá gjaldinu, liggur
fyrir að semja um skattaumhverfið. Í ráðu-
neytinu er talið að ríkissjóður hafi ekki
efni á að missa þann spón úr aski sínum.
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka álframleiðanda, segir að
ekki hafi verið falast eftir samkomulagi
um framlengingu raforkuskattsins. Sam-
komulagið frá 2009 hafi verið nokkuð skýrt
með það að um tímabundna ráðstöfun væri
að ræða, síðan yrði farið í ETS-umhverfið,
sem þýði gjaldtöku og tekjur fyrir ríkis-
sjóð.
ETS stendur fyrir alþjóðlegt viðskipta-
kerfi með losun gróðurhúsalofttegunda.
Það kemst á í áföngum og að fullu árið
2013. Með því þurfa fyrirtæki að kaupa
sér kvóta fyrir útblástur gróðurhúsa-
lofttegunda. Það skapar ríkissjóði tekjur
og hvetur um leið fyrirtæki til að draga úr
losuninni.
Forsvarsmenn stóriðjunnar töldu kolefn-
isgjaldið brot á viðauka við fjárfestinga-
samninga fyrirtækjanna sem gerðir voru
í janúar 2010, þar sem fyrirtækin sam-
þykktu að greiða fyrirfram greiddan
tekjuskatt næstu þrjú ár. Gegn þessu telja
stóriðju fyrirtækin sig hafa fengið loforð
um að ekki yrði lögð á þau auknir skattar.
Í viðaukanum segir að skattheimta „feli
almennt ekki í sér lakari starfsskilyrði
fyrir fyrirtæki sem reka starfsemi sína
hér á landi samanborið við önnur Evrópu-
ríki og erlenda samkeppnisaðila á sama
markaði.“
Stóriðjan telur að með kolefnisgjaldinu sé
starfsumhverfi fyrirtækjanna gert lakara
hér en í viðmiðunarlöndum, þar sem fyrir-
tæki þurfa ekki að greiða umrætt gjald.
Í fjármálaráðuneytinu er sú skoðun
hins vegar uppi að ekki sé hægt að horfa
einungis á kolefnisgjaldið þegar starfsskil-
yrði stóriðjunnar eru metin. Horfa verði til
þess að skattar á fyrirtæki eru lágir hér,
í Evrópu séu þeir aðeins lægri á Írlandi.
Þá þurfi fyrirtækin ekki að borga tolla af
aðföngum, ólíkt því sem gerist í Evrópu-
sambandinu, og þar til viðbótar sé orkuverð
lágt hér á landi. Að öllu samanlögðu séu
starfsskilyrðin því mun hagstæðari hér en
í öðrum Evrópuríkjum, jafnvel þó kolefnis-
gjaldið verði lagt á. kolbeinn@frettabladid.is
Semja um skattamál stóriðjunnar
Álagningu kolefnisgjalds á rafskaut hefur verið frestað. Samið verður um skattaumhverfi orkufreks iðnaðar. Raforkuskattur sem
skilað hefur tveimur milljörðum árlega leggst af í árslok 2012. Stjórnvöld leita leiða til að missa ekki þá upphæð.
ÞORSTEINN
VÍGLUNDSSON
ELKEM Einar Þorsteinsson, forstjóri Elkem á Íslandi, hefur sagt að samkeppnishæfni Íslands í járnblendi
hverfi með verði kolefnisgjald lagt á fyrirtækin.
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
ALÞINGI Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur ásamt átta öðrum þing-
mönnum flokks-
ins farið fram
á að Ögmundur
Jónasson innan-
ríkisráðherra
flytji Alþingi
skýrslu um
Schengen-sam-
starfið.
Í greinargerð
með beiðni þing-
mannanna segir
að nauðsynlegt
sé að meta þátttöku Íslands í
samstarfinu sem nú hafi verið í
gangi í tíu ár. Gera þurfi úttekt á
kostum og göllum við samstarfið,
og hvort meiri ávinningur væri
af því að standa utan við það.
Þá vilja þingmennirnir upp-
lýsingar um hvort dýrara sé fyrir
Ísland að taka þátt í samstarfinu
en að standa utan þess. - bj
Þingmenn Sjálfstæðisflokks:
Vilja fá skýrslu
um Schengen
BJARNI
BENEDIKTSSON
EVRÓPUMÁL Birna Þórarinsdóttir
stjórnmálafræðingur hefur verið
ráðin framkvæmdastýra Evrópu-
stofu. Evrópustofa verður opnuð
eftir áramót og verður upplýs-
ingamiðstöð Evrópusambandsins.
Birna var yfirmaður verkefna-
skrifstofu UNIFEM í Serbíu og
Svartfjallalandi 2008 til 2010 og
áður framkvæmdastýra lands-
nefndar stofnunarinnar árin 2004
til 2006. Hún hefur starfað fyrir
utanríkisráðuneytið og Öryggis-
og samvinnustofnun Evrópu í
jafnréttismálum. Þá hefur hún
kennt við Háskóla Íslands og
Háskólann á Bifröst. - þeb
Opnar eftir áramótin:
Birna stýrir
Evrópustofu
Ölvaður ökuþór dæmdur
Karlmaður hefur verið dæmdur í átta
mánaða fangelsi, þar af fimm á skil-
orði fyrir þjófnað, nytjastuld, ölvunar-
og hraðakstur og fyrir að aka sviptur
ökurétti. Með brotum sínum rauf
hann skilorð og var skilorðs dómurinn
tekinn upp og hann dæmdur fyrir
bæði málin.
DÓMSMÁL