Fréttablaðið - 01.12.2011, Page 8

Fréttablaðið - 01.12.2011, Page 8
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR8 1. Gunnlaugur Sigmundsson hefur ját- að að hafa sent Teiti Atlasyni óviður- kvæmileg SMS. Fyrir hvaða flokk sat hann á þingi frá 1995 til 1999? 2. Alþjóðaglæpadómstóllinn hefur gefið út handtökuskipun á hendur fyrrverandi forseta Fílabeins- strandarinnar. Hvað heitir hann? 3. Hver er andlit nýja herrailmsins frá Gyðju Collection? SVÖR 1. Framsóknarflokkinn. 2. Laurent Gbagbo. 3. Þorvaldur Davíð Kristjánsson. EFNAHAGSMÁL Seðlabankar Banda- ríkjanna, Evrópusambandsins, Englands, Kanada, Japans og Sviss hafa tekið höndum saman til að auðvelda bönkum að útvega sér fé í kreppunni miklu, sem allt stefndi í að myndi kæfa fjármála- kerfi heimsins að stórum hluta. Seðlabankarnir hafa meðal annars lækkað vexti á neyðar- lánum í dollurum, sem bankar geta notað til að lána áfram til fyrirtækja eða einstaklinga. Þessi neyðarlán verða nú í boði til febrúar 2013 í stað ágúst 2012. Verðbréfamarkaðir tóku mynd- arlega við sér í kjölfarið og hækkuðu vísitölur víðast hvar um þrjú til fjögur prósent. Ótti við hugsanlegt hrun evrunnar hefur valdið því, að bankar í Evrópulöndum eiga erfitt með að útvega sér fé frá öðrum bönkum til daglegra viðskipta. Bankar hika við að lána hverjir öðrum af ótta við að fá lánin ekki endurgreidd. Innspýtingin frá seðlabönkunum sex leysir þetta vandamál í bili. Þetta gerðist sama daginn og ljóst varð að fjármálaráðherrum Evrópusambandsins tókst ekki að tryggja neyðarsjóði evrusvæðis- ins næga fjármuni til að hjálpa skuldugustu evruríkjunum í gegnum kreppuna. Evruríkin ákváðu fyrr í vetur að efla neyðarsjóðinn með því að gera honum kleift að útvega sér fé með öðrum hætti en beinum framlögum frá evruríkjunum. Til stóð að ljúka nánari útfærslu þess á fundi fjármálaráðherranna í Brussel nú í vikunni, en það verk- efni bíður nú næsta leiðtogafundar Evrópusambandsins, sem haldinn verður í næstu viku. Svo virðist sem útfærslan hafi ekki síst strandað á því að Kína og fleiri ríki hafi ekki haft áhuga á að fjárfesta nógu mikið í skuldabréf- um, sem neyðarsjóður evruríkjanna gæti gefið út, þannig að sjóðurinn myndi ekki fá nægilega mikið fé til umráða. Þess í stað eru nú komnar upp hugmyndir um að fá Alþjóðagjald- eyrissjóðinn til liðs við neyðarsjóð- inn og útvega viðbótarfé til hans. Jafnframt þessu bíða leiðtoga- fundarins þær frekari aðgerðir til bjargar evrunni, sem óhjákvæmi- legt þykir að ráðast í. Meðal annars hafa verið nefndar hugmyndir um að sterkustu evruríkin myndi með sér nýtt bandalag kjarnaríkja evru svæðisins, sem fælist í miklu nánara samstarfi í fjármálum en til þessa hefur náðst sátt um. Harðar deilur hafa verið milli evruríkjanna um þessar hugmyndir, sem og um aðrar hugsanlegar lausn- ir á vandanum. gudsteinn@frettabladid.is Helstu seðlabankar koma til bjargar Fjármálaráðherrum Evrópusambandsins tókst ekki að ljúka við útfærslu á því hvernig neyðarsjóður evruríkjanna yrði efldur. Útfærslan bíður nú leiðtoga- fundar ESB í næstu viku. Inngrip seðlabankanna sex hjálpar til á meðan. MARIO MONTI OG MARIO DRAGHI Forsætisráðherra Ítalíu, sem jafnframt er fjár- málaráðherra landsins, ræðir við bankastjóra Seðlabanka Evrópusambandsins á fundi fjármálaráðherra Evrópusambandsríkjanna í Brussel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BRUNI „Við vorum byrjuð að endurnýja allt innbúið hjá okkur með nýjum vörum, húsgögnum og gólfefni. Það er allt í rúst,“ segir Þröstur Johnsen, eigandi Drífanda í miðbæ Vestmannaeyja, sem skemmdist gríðarlega í miklum bruna á aðfaranótt miðvikudags. Þröstur rekur hótel í húsinu, en hann er einungis með almenna brunatryggingu en enga innbús- tryggingu. Hótelið er algjörlega óstarfhæft en var mannlaust þegar bruninn uppgötvaðist. „Þetta var allsjokkerandi að sjá. Það er spurning hvort eitthvað er eftir sem er hægt að bjarga,“ segir Þröstur. Í húsinu var starfrækt verslun Pennans Eymunds- son sem var opnuð nýverið. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Ingþór Ásgeirsson, telur allar vörur í búðinni ónýtar. „Þetta er töluvert tjón. Við ráðgerum að allar vörur og tækjabúnaður séu nánast ónýt,“ segir hann. Brugðist var fljótt við brunanum og er búist við því að nýjar vörur komi til Vestmannaeyja í dag, en unnið er af kappi við að finna versluninni nýtt hús- næði sem verði opnað á allra næstu dögum. Talið er að eldurinn hafi átt upptök sín í þvottahúsi hótelsins, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum voru þurrkari og þvottavél í gangi þegar tilkynnt var um eldinn klukkan þrjú á þriðju- dagsnótt. Eins og áður sagði var húsið mannlaust. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn og gekk í fyrstu greiðlega að slökkva eldinn. Hann blossaði þó upp á ný og var verið að berjast við hann þar til undir morgun. - sv Mikið tjón hjá Pennanum í Vestmannaeyjum í eldsvoða: Ótryggt innbú eyðilagðist í bruna MIKIÐ TJÓN Byggingin sem hýsti Pennann og hótelið skemmd- ist mikið í brunanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON DÓMSMÁL Bloggari hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykja- víkur til að greiða konu þrjú hundruð þúsund krónur í miska- bætur fyrir meiðyrði, sem hann viðhafði um hana á bloggsíðu sinni. Þá voru ummæli sem birtust á síð- unni dæmd dauð og ómerk. Dómari telur það vera „tilefnislaust og óviðurkvæmilegt“ að rifja upp tutt- ugu ára gamlan dóm yfir konunni og þrjátíu ára gamla dómssátt kon- unnar. Sú fullyrðing bloggarans að hún eigi langan brotaferil að baki sé úr lausu lofti gripin og ekki sannleikanum samkvæmt. Tilefni þessa máls er nágranna- erjur í Aratúni í Garðabæ sem staðið hafa yfir um árabil. Tvær nágrannafjölskyldur höfðu eldað grátt silfur og er bloggarinn vinur annarrar fjölskyldunnar. Hann taldi sig vera að taka upp hansk- ann fyrir hana og birti á vefsvæði sínu grein með fyrirsögninni „Sið- blint ofbeldisfólk og ráðalaus lög- regla“ síðasta sumar. Þar ritaði hann um „hrottalegar ofsóknir“ sem vinafólk hans átti að hafa sætt af hálfu nágranna sína. Í dómsniður stöðu segir að þótt ætla verði bloggurum svigrúm til þess að fjalla um málefni sem eigi erindi til almennings og séu hluti af þjóðfélagsumræðu verði „að gera þær kröfur til þeirra að umfjöllunarefni þeirra séu sett fram með málefnalegum hætti“. Jafnframt að þó að konan hafi sýnt af sér ólíðandi hegðun í garð nágranna sinna þyki ekki hafa verið sýnt fram á að hún hafi sýnt af sér ofbeldi í garð þeirra. Auk þess að greiða konunni þrjú hundruð þúsund krónur í miska- bætur þarf hann að greiða allan málskostnað, sem er sex hundruð og fimmtíu þúsund krónur. - jss Bloggari dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir meiðyrði og ummæli hans dauð og ómerk: Bloggið kostaði samtals 950 þúsund krónur HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Kvað upp bloggdóminn. alla sunnudaga klukkan 16. Njótið vel Hemmi Gunn – og svaraðu nú! Fjölbreyttur og fjörugur þáttur VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.