Fréttablaðið - 01.12.2011, Side 46

Fréttablaðið - 01.12.2011, Side 46
EGG OG REYKTUR MAKRÍLL Á KARRÝBEÐI: 5 harðsoðin egg 1 flak reyktur makríll Karrýsósa: 1 msk. gott karrý, ristað á pönnu og kælt. 100 g majones og 100 g sýrður rjómi, hrært vel saman. Karrýinu blandað saman við ásamt 1 tsk. HP sósu og 1 tsk. Worchester sósu, salti og pipar eftir smekk. Þynnt með 1 msk. eplaediki eða síldarlegi. Einnig má setja ½ tsk. turmerik saman við til þess að fá fallegan gulan lit á sósuna. Sósan er sett á fat, harðsoðnu eggin eru skorin langsum til helminga og þeim raðað ofan á sósuna. Lítill biti af makríl er lagður ofan á hvern eggjahelming. Skreytt með fersku dilli. JÓLASMURBRAUÐ: 1 maltbrauðsneið, smurð með smjöri 4 sneiðar af kaldri purusteik eða svínasteik, grænt salatblað 1 msk. rauðkál 5 lauf ferskt spínat nokkrar sneiðar súrar agúrkur 1 tómatbátur 1 lauf ferskja, niðursoðin 1 sveskja 2 appelsínusneiðar 2 agúrkusneiðar 1 grein steinselja, til skrauts Setjið salatblaðið ofan á smurða brauðsneiðina og raðið steikinni þar næst. Blandið saman rauðkáli og spínati og setjið á miðja brauð- sneiðina. Þá er restinni raðað fallega á brauðsneiðina (sjá mynd). RAUÐKÁL: 1 og ½ kg ferskt rauðkál 1 og ½ dl rauðvínsedik 2 dl Ribena-saft 150 g sykur 1 dl vatn 2 kanilstangir 2 stjörnuanís Rauðkálið er skorið í fína strimla og sett í pott ásamt öllu hráefninu og látið sjóða í u.þ.b. hálftíma, hrærið í af og til. Lækkið hitann og látið malla áfram í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til rauðkálið er mátulega mjúkt. Grænn djús á dag kemur heilsunni í lag. Það er um að gera að skella í sig grænum djús í jólamánuðinum til að vinna á móti feitmeti og sætindum sem leita í auknum mæli á diskana í desember. Djús úr grænum eplum, agúrku, spínati, límónu, hunangi og engifer er afbragð. „Aðventan er mjög skemmtilegur og annasamur tími,“ segir Mar- entza Poulsen þar sem hún er í miðju kafi að undirbúa jólahlað- borð fyrir Hótel Natura. Hún hefur haldið utan um það jóla- hlaðborð allt frá 1994 enda ber það öll hennar einkennismerki en Marentza er þekkt smurbrauðs- jómfrú. „Við leggjum áherslu á að fólk gefi sér góðan tíma og fari allt upp í sex ferðir til að geta smakkað allt,“ segir Marentza og tekur fram að ekki sé tvísetið á Hótel Natura og því geti fólk slak- að vel á. Marentza hefur í nógu að snú- ast því um síðustu helgi opnaði hún Kaffi Flóru í Grasagarðin- um. „Þar verður opið allar helg- ar í desember frá 12 til 18,“ segir hún og lofar sannkölluðu jóla- ævintýri. „Húsið er allt skreytt ljósum og sumir líkja því við að koma í Tívolí,“ segir hún glað- lega en í Flóru getur fólk meðal annars gætt sér á volgri lifrar- kæfu með beikoni og heimabök- uðu brauði ásamt öðru jólalegu smurðu brauði. „Síðan brennum við möndlur sem gefur afar jóla- legan ilm.“ Marentza útbjó fyrir lesend- ur nokkra rétti sem gaman er að gæða sér á um jólin. solveig@frettabladid.is Skemmtilegur og annasamur tími Marentza Poulsen hefur um margt að hugsa á aðventunni. Hún skipuleggur jólahlaðborð á Hótel Natura og hefur opnað Kaffi Flóru í Grasagarðinum þar sem mun ríkja jólaævintýri allar helgar í desember. Hún gaf sér þó tíma til að útbúa nokkra jólalega rétti fyrir lesendur Fréttablaðsins. Marentza segir tilvalið að útbúa skemmtilegt smurbrauð fyrir veislugesti um jólin. Þá megi einnig nýta afganga frá jólunum til að útbúa afar girnilegar smurbrauðsneiðar. FRÉTTALBAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.