Fréttablaðið - 01.12.2011, Page 62

Fréttablaðið - 01.12.2011, Page 62
1. desember 2011 FIMMTUDAGUR50 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1 METSÖLULISTI EYMUNDSSON 23.11.11 - 29.11.11 Jólamatur Nönnu - Nanna Rögnvaldsdóttir Sómamenn og fleira fólk - Bragi Kristjánsson Málverkið - Ólafur Jóhann Ólafsson Holl ráð Hugos - Hugo Þórisson Húshjálpin - kilja - Kathryn Stockett Sagan sem varð að segja - Þorfinnur Ómarsson Glósubók Ævars vísindamanns - Ævar Þór Benediktsson Gamlinginn sem skreið út um gluggann - Jonas Jonasson Brakið - Yrsa Sigurðardóttir Einvígið - Arnaldur Indriðason SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT „Arnaldur kann þá list að vefa glæpasögu … Staðsetning sögunnar í tíma er snilldarlega unnin … Spennandi og heilsteypt saga …“ Friðrika Benónýs / Fréttablaðið 50 menning@frettabladid.is SPENNUSAGNAHÖFUNDARNIR Óttar M. Norðfjörð, Ragnar Jónasson, Sigurjón Pálsson, Yrsa Sigurðardóttir og Þorlákur Már Árnason munu lesa upp úr verkum sínum á árlegu glæpakvöldi Hins íslenska glæpafélags sem verður haldið á Gallery-bar 46, Hverfisgötu 46, í kvöld. Glæpatríó Edda Lár leikur glæpadjass. Dagskráin hefst klukkan 20.30. Hátíðartónleikar verða í Salnum í kvöld klukkan átta þar sem flutt verða verk eftir Sveinbjörn Svein- björnsson, höfund þjóðsöngs Íslend- inga. Þann dag eru liðin 85 ár frá síð- asta opinbera tónlistarflutningi Sveinbjörns. Hinn 1. desember 1926 tók tónskáldið þátt í samkomu Félags íslenskra stúdenta og Íslend- ingafélagsins í Kaupmannahöfn og lék verk sín Ó Guð vors lands og Íslenska rapsódíu nr. 2, en Svein- björn lést 23. febrúar 1927. Auk þess að flutt verður úrval söng- laga tónskáldsins verða einleiks- og kammer verk frumflutt. Fram koma Þóra Einarsdóttir sópran, Giss- ur Páll Gissurarson tenór, Pálína Árna dóttir fiðluleikari, Hildi gunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari, Sig- urgeir Agnarsson,sellóleikari og dr. Nína Margrét Grímsdóttir, píanó- leikari og listrænn stjórnandi dag- skrárinnar. Flytja verk Sveinbjörns Tókýó er risavaxin borg en mjög vinaleg,“ segir Bjargey Ólafsdóttir, sem er stödd í höfuðborg Jap- ans um þessar mundir. Ástæðan er sýning hennar í galleríi sem ber heitið XYZ og er fyrsta listamanns- rekna galleríið í borginni. „Ég er að sýna hér bæði gömul verk og ný, teikningar, ljósmyndir og kvik- mynd. Einnig var að koma út bók með teikningum mínum frá Síle. Þar að auki er ég í samstarfi við japanskan listamann, Cobra, sem sýnir með mér í galleríinu,“ segir Bjargey, sem fyrir ári vakti athygli um heim allan fyrir mynd af ísbirni sem hún málaði á Langjökul. Sýning Bjargeyjar var opnuð um helgina og var mjög vel tekið, segir Bjargey. „Það var mikið af fólki og mikið stuð.“ Risavaxin en vinaleg BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR Sýnir í Tokýó um þessar mundir. Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona heldur á laugardaginn fyrirlestur í Galleríi Ágúst og sýnir myndir frá vinnslu verksins Múrinn sem hún vann í Pek- ing nýverið. Einnig fjallar hún um innsetningar sínar á tveimur kínverskum lista- hátíðum á síðasta ári. Nýlega vann Guðrún Kristjáns- dóttir myndlistarkona útilistaverk í miðborg Peking, rétt sunnan við Torg hins himneska friðar, ásamt sex listnemum úr List akademíu Pekingborgar. Verkið nefnist Múr- inn og er gert úr íslenskri eld- fjallaösku og kínverskum gler- salla. Verkið er hluti af NOTCH11 listahátíðinni í Peking sem er sam- norræn-kínversk menningarhátíð á sviði lista og hönnunar. „Þema sýningarinnar var skapandi endur vinnsla,“ segir Guðrún. „Ég nota ösku úr báðum eldgosunum, í Eyjafjallajökli og Gríms vötnum, og kínverskt postulín frá verk- smiðju í hverfinu sem við muldum í fínan salla eins og öskuna. Postu- línið er aðallega hvítt en ég vildi líka hafa svolítið glært og svolítið blátt með. Síðan málaði ég öskuna á vegginn með rúllu og pensli með aðstoð verkamanna, en krakkarn- ir máluðu hvíta postulínið og fengu dálítið frjálsar hendur við það. Ég útskýrði fyrir þeim að grunnhug- myndin væri jökull þakinn ösku sem byrjaður er að brjóta af sér og hvítu línurnar komnar í gegn. Verkið er dekkst neðst vinstra megin en lýsist til hægri þegar ofar dregur og það er hugsað sem yin- yang jafnvægið.“ Guðrúnu var boðið að taka þátt í hátíðinni í kjölfar vel heppnaðr- ar innsetningar hennar í lista- og hönnunarhverfi Pekingborgar á síðasta ári. „Já, þetta átti sér töluverðan aðdraganda. Þannig var að í sept- ember 2010 var þremur íslensk- um sýningum boðið á sýningu sem tengdist Expo í Sjanghæ. Þangað komu forsvarsmenn listahátíðar- innar NOTCH, sem er samnor- ræn-kínversk menningarhátíð á sviði lista og hönnunar í Peking, og buðu öllum þessum sýningum til Peking að sýna á NOTCH í nóvem- ber í fyrra. Þar fengum við stórt og mikið pláss í nýju hverfi sem iðar af listastarfsemi og ég setti þar upp innsetningu á hundruðum fermetra. Þá voru komnir nýir list- rænir stjórnendur fyrir hátíðina í ár og þeir spurðu mig hvort ég væri tilbúin að vinna útilistaverk. Fyrst var meiningin að ég yrði með vídeóinnsetningu eins og í fyrra skiptið, en svo bárust eldgosin á Íslandi í tal og ég sagði þeim, bara svona í bríaríi, að ég væri einmitt að nota fíngerðustu öskuna sem lita- duft. Það spannst svo þannig að þau báðu mig að vinna þetta útilista- verk sem byggir á endur nýtingu. Svo þegar þau fundu „rétta“ vegg- inn, sem er gafl gamallar verk- smiðjubyggingar sem NOTCH11 var haldin í, fór allt í fullan gang og ég fékk þessa yndislegu nema úr List akademíunni mér til aðstoðar. Verkið er nú komið upp og verður þarna á meðan veggurinn stendur.“ Í fyrirlestrinum á laugar daginn, 3. desember klukkan 16.00, ætlar Guðrún að segja frá aðdrag- anda, undirbúningi og vinnu við uppsetningu listaverksins, sýna myndir og koma með sýnishorn af efninu sem notað var í verkið. Allir eru hjartanlega velkomnir í Gallerí Ágúst á Baldursgötu 12 að heyra af þessu ævintýralega verk- efni í Kína. fridrikab@frettabladid.is Íslensk aska og kínverskt postulín í útilistaverki LÝSIR FERLINU Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona lýsir vinnslu útilistaverksins Múrinn í Galleríi Ágúst á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MÚRINN EFTIR GUÐRÚNU KRISTJÁNSDÓTTUR Sex kínverskir listnemar aðstoðuðu hana við verkið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.