Fréttablaðið - 01.12.2011, Page 81

Fréttablaðið - 01.12.2011, Page 81
FIMMTUDAGUR 1. desember 2011 69 Opið laugard. kl. 10-14 Raftónlistarhljómsveitin Reptilicus gaf fyrir skömmu út smáskífu í Kanada. Þar spilaði hún einnig á tónleikum og tók upp efni í hljóðverinu Grant Avenue Studio. Það var stofnað af Lanois-bræðrum en annar þeirra, Daniel, er þekktastur fyrir samstarf sitt við írsku rokkarana í U2. Útgáfutónleikar vegna smáskífunnar, sem er fyrsta útgáfa Reptilicus í þrettán ár, verða haldnir 9. desember á skemmtistaðnum Gauki á Stöng. Smáskífa í Kanada Í HLJÓÐVERINU Reptilicus eyddi tveimur dögum í hljóðverinu Grant Avenue Studio. Leikkonan unga Felicity Jones er nýtt andlit tískuhússins Dolce & Gabbana og fetar þar með í fótspor frægra kvenna á borð við Madonnu og Scarlett Johansson. Jones er frekar lítið þekkt nafn í kvikmyndaheim- inum en hlaut mikið lof fyrir leik sinn í myndinni Like Crazy. Bæði myndin og Jones hlutu verðlaun á Sundance-kvik- myndahátíðinni. Í tilkynningu frá tískuhúsinu segir að Jones standi fyrir klassíska fegurð og náttúrulega útgeislun. Jones mátti einnig sjá í nýlegri auglýsingaherferð Burberry-tískuhússins fyrir haust og vetur. Í fótspor Madonnu NÝTT ANDLIT Leikkonan unga Felicity Jones er nýtt andlit Dolce & Gabbana. NORDICPHOTOS/GETTY Kardashian-fjölskyldan fær skot úr óvæntri átt, en leikarinn Daniel Craig fer ekki fögrum orðum um raunveruleikaþáttastjörnurnar í nýju viðtali við tímaritið GQ. Þar segir Craig Kardashian-systurnar gera allt fyrir frægð og frama. „Horfðu á Kardashian-fjölskylduna, þau græða milljónir núna og ég held að þau hafi ekki verið svo illa stödd fyrir. Fólk horfir á þetta og hugsar að það eina sem maður þurfi að gera til öðlast frægð og peninga sé að haga sér eins og hálfviti í sjónvarpinu,“ segir Craig og bætir við að hann mundi aldrei gera þátt um líf sitt því hann vill meina að fjölskyldan hafi afsalað sér rétti á einkalífi. „Það er ekki hægt að kaupa einkalífið sitt aftur. Þær geta ekki sagt almenningi að láta sig vera þegar þær eru búnar að hleypa áhorfendum inn í stofu og fæða barn í beinni útsendingu. Ég er ekki að dæma þær, eða jú, ég er nú eiginlega að gera það.“ Daniel Craig er þekktur fyrir að vilja halda einkalífi sínu utan fjölmiðla, en hann giftist leik- konunni Rachel Weisz í sumar og fréttu fjölmiðlar ekki af brúðkaupinu fyrr en viku seinna. GERA ALLT FYRIR FRÆGÐ OG FRAMA Daniel Craig segir að Kardashian-fjölskyldan hafi afsalað sér rétti til einkalífs með öllum raunveruleikaþáttunum um sig. BLÆS ÚT Daniel Craig talar um Kardashian-fjölskyld- una í nýjasta hefti GQ. Kallar Kardashian-fjölskylduna hálfvita

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.