Morgunblaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 9. J Ú L Í 2 0 1 0  Stofnað 1913  175. tölublað  98. árgangur  –– Meira fyrir lesendur fylgir með Morgu nblaði nu í da g gerir grillmat að hreinu lostæti! E N N E M M / S ÍA / N M 38 33 8 FRUMSAMIÐ VERK FLUTT Í HALLGRÍMSKIRKJU VÍSITALAN LÆKKAR VEIÐIPRÓF OG DEILDARSÝNING Á AFMÆLISÁRI BOTNINUM NÁÐ 14 RETRIEVERHUNDAR 10RÓMANTÍK 31 Fréttaskýring eftir Guðna Einarsson  Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, segir það jákvætt að fá loksins við- urkenningu á því að það sé ekki séríslenskt sjón- armið að engin ríkisábyrgð sé á innistæðutrygg- ingakerfinu. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins segir að engin ríkisábyrgð sé á bankainnistæðum á Evrópska efnahagssvæðinu. Stefán Már tekur fram, vegna þeirrar skoðunar fram- kvæmdastjórnarinnar að Íslend- ingum beri eigi að síður að greiða Icesave-trygginguna, að ekki sé vit- að til þess að neinar athugasemdir hafi komi frá Eftirlitsstofnun EFTA eða öðrum vegna innleiðingar til- skipunar um innistæðutrygg- ingakerfið hér á landi. »16 Ekki voru gerðar at- hugasemdir við inn- leiðingu kerfisins Stefán Már Stefánsson  Sú stund er runnin upp hjá RÚV að ekki verður frekar skorið niður í rekstri stofn- unarinnar án þess að fækka dagskrárliðum. Þetta segir Páll Magnússon útvarpsstjóri en hann tekur fram að óvíst sé hvort niðurskurðarkrafan verði 9-10% eins og stjórnvöld hafa boðað. Núverandi og fyrrverandi frétta- maður hjá RÚV segja stofnunina ekki lengur hafa bolmagn til að sinna rannsóknarblaðamennsku og telur sá síðarnefndi hana ekki sinna lögbundnu hlutverki sínu. »2 RÚV kemst ekki hjá því að forgangsraða Páll Magnússon  „Þetta er auðvitað mikilvægt eftir gengishrunið og þá miklu verðbólgu sem fylgdi í kjölfarið. Það er ástæð- an fyrir því að við höfum lagt svo mikla áherslu á að ná tökum á okkar gjaldmiðli og ná fram styrkingu krón- unnar svo að verðlag geti gengið til baka til þess að bæði höfuðstóll og greiðslubyrðin geti það líka,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Ís- lands, spurður um þau tíð- indi að lækkun á vísitölu neysluverðs í júní og júlí um nær eitt prósentustig hafi áhrif til lækkunar höfuðstóls verð- tryggðra lána. „Þess vegna er þetta ákaflega mikilvægt þótt þetta hafi að því leytinu til ekki verið stórt skref. Ef svo heldur fram sem horfir, eins og við hjá ASÍ teljum forsendur til, að gengisstyrkingin skili sér þá mun sú mikla hækkun sem varð á vísitölunni að ein- hverju leyti ganga til baka og skila sér í auknum kaup- mætti og lækkun lána,“ segir Gylfi sem telur brýnt að örva hagvöxt, enda byggist gjaldmið- illinn á efnahagslegum væntingum. »14 Forseti ASÍ telur forsendur til frekari lækkunar höfuðstóls verðtryggðra lána Fara verður allt aftur til Kötlugossins 1918 eða Heklugossins 1947 til að finna eldgos sem losuðu gjósku í sambærilegu magni og það sem kom upp í eldgosinu í Eyjafjallajökli í vor. Gjóska sem féll hér á landi úr Eyjafjallajökli er áætluð um 140 milljónir rúmmetra eða 0,14 rúmkílómetrar. Þá er ótalin öll gjóskan sem féll í hafið og í öðrum löndum. Eldgosin í Heklu 1947 og Kötlu 1918 voru þó stærri en gosið í Eyjafjallajökli og eins eldgosin í Gjálp í Vatnajökli 1996 og í Surtsey 1963-67. Heildarmagn gosefna, hrauna og gjósku í þeim eldgosum var meira en í Eyjafjallajökli. 140 milljón rúmmetrar Gjóskan úr Eyja- fjallajökli barst víða. Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Í lok júnímánaðar sl. átti Íbúðalána- sjóður 739 íbúðir sem hann hafði leyst til sín vegna vanskila lántak- enda. Slíkum íbúðum í bókum sjóðs- ins hefur fjölgað hratt frá áramótum, aukningin nemur meira en 53%. Yf- irtaka íbúða hefur aukist talsvert það sem af er ári. Á öllu árinu 2009 leysti sjóðurinn til sín 254 íbúðir, en á fyrstu sex mánuðum ársins í ár hafa 428 íbúðir staflast upp í bókum sjóðsins. Langmestur var fjöldinn í mars, en þá leysti Íbúðalánasjóður til sín heilar 190 íbúðir. Mest munaði þar um 120 íbúðir á Austurlandi, en sjóðurinn leysti til sín fjórar blokkir á Reyðarfirði og þrjár á Egilsstöðum í kjölfar gjaldþrots leigufélags þar í héraði. Samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði er tæpur helmingur íbúða í bókum félagsins tilkominn þar vegna gjaldþrots leigufélaga. Um það bil fjórðungur íbúða í bók- um sjóðsins er nú í útleigu. Hingað til hefur viðskiptavinum leigufélaga sem fara í þrot boðist að leigja íbúðir áfram af sjóðnum. Jafnframt geta þeir einstaklingar sem fara í þrot fengið að leigja áfram, samkvæmt verði sem sýslumaður ákvarðar. Eft- ir því sem næst verður komist hefur einn einstaklingur nýtt sér það úr- ræði. »Viðskipti Íbúðum fjölg- aði um helming frá áramótum  Um það bil fjórðungur íbúða í eigu Íbúðalánasjóðs er nú leigður út Þeir hlusta íbyggnir, liðsmenn hljómsveitarinnar Retro Stefson, þar sem Ragnar Bjarnason stórsöngvari leggur línurnar á æfingu. Listamennirnir koma saman á Innipúkanum í Reykjavík um helgina en þar hyggjast þeir meðal annars taka gamla rokkslagara. Morgunblaðið/Árni Sæberg Börn tónlistargyðjunnar stilla saman strengi sína 739 íbúðir voru í bókum Íbúðalánasjóðs undir lok júnímánaðar Helmingur íbúðanna lenti þar vegna gjaldþrots leigufélaga víða um land ‹ BIRGÐASTAÐA ÍLS › »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.