Morgunblaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 20
20 Umræðan MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Í framhaldi af dómi
Hæstaréttar um ólög-
lega gengistryggingu
lána hefur fallið nýr
héraðsdómur um mál-
ið.
Lýsing lánaði fólki
peninga til bílakaupa.
Um var að ræða
frjálsan samning um
sölu á vörum og þjón-
ustu Lýsingar til fólks
sem tók lánið og var gengið frá
þessum viðskiptum með stöðluðum
samningi sem Lýsing hafði látið út-
búa.
Hæstiréttur dæmdi gengistrygg-
ingu lána í íslenskum krónum ólög-
lega. Kom í ljós að Lýsing hafði
brotið á fólkinu þar sem einn skil-
málinn í staðlaða samningnum milli
aðila var dæmdur ólöglegur.
Lýsing stefndi fólkinu sem þeir
höfðu brotið á samkvæmt dómi
Hæstaréttar og föstudaginn 23. júlí
2010 kvað héraðsdómur upp dóm
þar sem Lýsing vinnur mál gegn
þeim sem brotið var á. Féllst hér-
aðsdómur á fjórðu varakröfu Lýs-
ingar.
Samningur aðila samkvæmt dómi
Hæstaréttar var að öðru leyti lög-
legur en því að óheimilt var að
binda lánagerninga í íslenskri mynt
við erlenda gjaldmiðla.
Í viðskiptum er það þannig að ef
einhver selur gallaða vöru þá má
hann koma með nýja jafngóða eða
betri vöru fyrir gölluðu vöruna til
að bæta upp tjónið.
Í þessu máli hefur brotaþoli ekki
enn fengið bætur.
Ef maður kaupir t.d. bíl og greið-
ir og fær gallaðan bíl, þá á seljand-
inn að bæta tjónið þannig að sá
sem keypti verði ekki fyrir skaða.
Maður hefur ekki heyrt það áður
að ef sá sem brýtur sannanlega á
öðrum og er óánægður fer í mál þá
vinni hann málið. Venjulega er það
sá sem brotið er á sem fer í mál.
Héraðsdómur er ekki til í að nota
þetta viðurkennda viðmið að sá sem
seldi gallaða vöru, og gerði í þessu
tilfelli lánasamning með ógildu
gengisviðmiði, beri ábyrgðina, held-
ur fer héraðsdómurinn út í að sam-
þykkja kröfur Lýs-
ingar og nánast að
skálda upp nýjan
samning eða skilmála
milli aðila og það þótt
vaxtalög kveði á um að
óheimilt sé að breyta
samningsákvæðum
skuldara, skuldara í
óhag. Ef ákvæðum
lánasamninga er
breytt þá skal það
vera skuldara í hag
samkvæmt lögunum.
Í niðurlagi héraðs-
dómsins segir:
„Að þessu virtu og með hliðsjón
af efni umrædds samnings er ljóst
að aðilar hafa við gerð hans tekið
mið af því að lánið yrði verðtryggt
með ákveðnum hætti og að jafn-
framt yrðu greiddir vextir sem
tækju mið af umsaminni geng-
istryggingu sem dæmd hefur verið
óheimil. Vegna þessara forsenda
sem taldar verða verulegar og
ákvörðunarástæða fyrir lánveiting-
unni og báðum aðilum máttu vera
ljósar, en reyndust vera rangar,
verður að fallast á það með stefn-
anda að samningur aðila bindi hann
ekki að því er vaxtaákvörðunina
varðar. Á stefnandi því rétt á að
stefndi greiði honum þá fjárhæð
sem ætla má að aðilar hefðu ellegar
sammælst um án tillits til villu
þeirra beggja. Þykja hvorki neyt-
endasjónarmið né staða aðila við
samningagerðina breyta þeirri nið-
urstöðu“.
Þetta er auðvitað „setning dauð-
ans“ fyrir héraðsdóm þar sem dóm-
arinn leiðist inn á margar villigötur,
svo sem:
1) Héraðsdómurinn gengur út frá
því að hluti af endurgjaldi fyrir lán-
ið sé í gengistryggingunni og því
séu vextirnir svona lágir en að end-
urgjaldið sé ekki allt í samnings-
vöxtunum og því séu vextirnir
lægri á gengisbundnu láni en öðru-
vísi verðtryggðum lánum. Eru það
ekki svik ef margskonar endurgjald
fyrir peningalán er innifalið og
jafnvel falið í sama lánasamning-
unum, í þessu tilfelli í verð- og
gengisbindingu lánsins sem var
reyndar dæmd ólögleg af Hæsta-
rétti? Ef hluti af endurgjaldi fyrir
lánið var innifalið í gengistrygging-
unni þá hefur sá þáttur verið
dæmdur ólöglegur með dómi
Hæstaréttar þar sem gengisviðmið-
unin var öll dæmd ólögleg og því
engin rök fyrir að dæma Lýsingu
einhverjar bætur fyrir það sem
Hæstiréttur dæmdi ólöglegt.
Vaxtaviðmið sem tekur mið af
gengistryggingu eins og héraðs-
dómurinn orðar það er því rökleysa
og dómarinn skýtur sig því í fótinn
í þessu atriði. Gengis- eða verð-
trygging er ekki endurgjald fyrir
lán.
2) Ekkert er í samningum milli
aðila sem gefur í skyn hvaða láns-
kjör megi „ætla“ að aðilar hefðu
notað ef lán með gengisviðmið hefði
ekki verið í boði. Ekkert er vitað
um hvort lántakandinn hefði tekið
nokkurt lán ef honum hefði ekki
staðið þetta lán til boða. Hérna eru
því á ferðinni hreinar getgátur hér-
aðsdóms. Að nota orð eins og „ætla
má“ eða „máttu vita“ í dóms-
úrskurði er rökleysa og hreinar
ágiskanir. Eru dómar ekki byggðir
á staðreyndum eða er þetta dómur
byggður á tilfinningum dómarans?
Ýmislegt annað sérkennilegt er í
texta dómsins sem virðist ekki vera
í réttu samræmi við raunveruleik-
ann eða staðreyndir. Til dæmis er
talað um verðtryggða vexti í dómn-
um. Hvaða vextir eru það? Eru það
raunvextir, nafnvextir eða ein-
hverjir aðrir vextir? Hvaða merk-
ingu á að leggja í orðið „verð-
tryggðir vextir“? Þarf ef til vill
sérstakan dóm um það?
Í svona mikilvægu máli er á-
ríðandi að dómstólar tali skýrt og
rugli ekki með staðreyndir málsins
eða hugtök og annað sem málið
varðar, hvað þá að dæma þann sem
brotið var á sekan.
Það verður áhugavert að sjá hvað
Hæstiréttur segir um þennan dóm.
Héraðsdómur
um gengistryggt lán
Eftir Sigurð
Sigurðsson » Ýmislegt er sér-
kennilegt í texta
dómsins sem virðist
ekki vera í samræmi við
eðli málsins
Sigurður Sigurðsson
Höfundur er cand. phil., bygg-
ingaverkfræðingur.
Þegar umræða hefst
um fiskveiðimál snýst
umræðan því miður
nær eingöngu um kvót-
ann. Umræðan um
kvótann tekur á sig
hinar ýmsu myndir,
s.s. um úthlutun kvót-
ans, veðsetningu kvót-
ans, framsal kvótans,
leigu kvótans, sölu
kvótans og innköllun
kvótans.
Ekki er ráðist að rót vandans, þ.e.
hvernig skynsamlegt sé að stjórna
fiskveiðum til hagsældar fyrir þjóð-
ina. Ef aflatölur fyrir daga kvótans
eru bornar saman við aflatölur eftir
að kvótakerfið var sett á, þá sýna
þær að kerfið skilar æ minni afla og
verðmætum á land. Í ofanálag hefur
kvótakerfið getið af sér gríðarlega
umfangsmikið og dýrt eftirlit. Varið
er fleiri krónum í að fylgjast með
duglegum sjómönnum en löggæslu
með innflutningi á ólöglegum fíkni-
efnum. Kvótakerfið hefur sömuleiðis
leitt af sér byggðaröskun og mann-
réttindabrot. Færeyingar sem lán-
uðu Íslendingum stórfé af höfðings-
skap sínum prófuðu að stjórna
fiskveiðum með kvótakerfi, en sáu
fljótlega að það væri alvond aðferð.
Kerfinu fylgdi m.a. brottkast, lönd-
un fram hjá vigt og nið-
urskurður á afla.
Nú berast þær frétt-
ir að stjórnarflokkarnir
segjast ætla að vera
með nýja nálgun og
leiðir við breytingar á
stjórn fiskveiða. Um-
ræddar breytingar sem
Samfylking og VG boða
virðast ekki fela í sér
annað en að festa í
sessi óréttláta og vonda
aðferð við stjórna fisk-
veiðum.
Það blasir við að almannahag er
best borgið með því að gefa hand-
færaveiðar frjálsa og fara síðan leið
Færeyinga og stjórna sókn í fiski-
stofna. Í Færeyjum ganga fiskveiðar
sinn vanagang, stundum veiðist
minna og stundum meira í takt við
náttúruöflin.
Eftir Sigurjón
Þórðarson
» Það blasir við að al-
mannahag er best
borgið með því að gefa
handfæraveiðar frjálsar
og fara síðan leið Fær-
eyinga og stjórna sókn í
fiskistofna.
Sigurjón Þórðarson
Höfundur er formaður
Frjálslynda flokksins.
Kvótinn
Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga
aðsendar umræðugreinar frá lesend-
um. Blaðið áskilur sér rétt til að
hafna greinum, stytta texta í sam-
ráði við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni, í bréfum
til blaðsins eða á vefnum mbl.is.
Blaðið birtir ekki greinar, sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að kynna
starfsemi einstakra stofnana, fyrir-
tækja eða samtaka eða til að kynna
viðburði, svo sem fundi og ráðstefn-
ur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið er undir liðnum „Senda
inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is.
Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein.
Ekki er lengur tekið við greinum
sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið, en næst þegar kerfið er notað
er nóg að slá inn netfang og lykilorð
og er þá notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt en boðið er upp á birtingu
lengri greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur starfs-
fólk greinadeildar.
Móttaka að-
sendra greina
Mín elskulega mág-
kona, Erla, hefur yfir-
gefið jarðneska tilvist
en minning hennar
verður alltaf með okkur hinum sem
eftir lifum. Hún var ljós sem skein
eins og skærasta stjarna á himninum.
Erla elskaði Guð og gerði allt sem hún
gat til að þóknast honum í huga sem
starfi. Ást hennar kom frá hjartanu
og alltaf var hún boðin og búin ef leit-
að var til hennar. Eigingirni var ekki
til í hennar huga og alltaf sá Erla það
jákvæða og fallega í öllum.
Ung að árum kynntist Erla Ágústi
bróður mínum og stóð við hlið hans
sem klettur alla tíð. Um það leyti sem
þau kynntust starfaði hún í Búnaðar-
bankanum, en Ágúst var þá í námi.
Fljótlega fór hann í frekara nám til
Þýskalands. Erla fór fljótlega þangað
og var þar hluta af námstímanum, þá
með dóttur þeirra. Í þá daga sem nú
var varhugavert að treysta íslenskum
gjaldmiðli og fór svo að Erla dvaldi
því heilmikið hérlendis til að afla fjár
svo að náms- og heimilisáætlanir
næðust.
Fljótlega eftir að Ágúst lauk námi
hófst lífsbaráttan eins og gengur.
Byggðu þau sér einbýlishús í Garða-
bæ með dugnaði og eljusemi. Lögðust
þau bæði á eitt svo að allt gæti farið á
sem bestan veg, bæði úti sem inni.
Erla var snyrtimenni í alla staði. Allt
átti að vera pressað og pússað og allt
átti sinn afmarkaða stað á heimilinu
sem var til mikillar prýði.
Allra seinustu árin gat hún ekki
lengur sinnt heimilisstörfum á þann
sem að hún sjálf hefði kosið því að ill-
vígur sjúkdómur gerði vart við sig. Í
tvö ár barðist hún við þennan vágest
og gekkst undir stórar skurðaðgerðir
og erfiðar lyfjameðferðir. Þar kom að
því að hún gerði sér grein fyrir að
þrátt fyrir hetjulega baráttu var við
ofurefli að etja. Börn þeirra hjóna
urðu alls þrjú talsins og barnabörnin
eru þrjú. Erla gaf þeim mikla ást og
umhyggju. Undir það síðasta er þrek-
ið fór að minnka fannst henni óþægi-
legt að geta ekki tekið litlu augastein-
ana og faðmað að sér eins og hún
gerði jafnan áður.
Þau Erla og Ágúst voru mjög sam-
rýnd hjón og þeirra ást lifði frá fyrstu
kynnum og allt til síðustu stundar. Ég
veit, elsku Erla mín, að Guð og engl-
arnir taka á móti þér brosandi og
bjóða þig velkomna til heimkynna
sinna. Við hittumst þar síðar. Takk
fyrir allt, elsku Erla mín.
Þín mágkona,
Valgerður Karlsdóttir.
Á sólríkum degi hinn 19. júlí sl.
kvaddi elsku Erla systir okkar þenn-
an heim. Hún barðist hetjulega gegn
sínum sjúkdómi, sem hafði að lokum
yfirhöndina. Það sem kom henni og
okkur í gegnum þennan erfiða tíma
var fyrst og fremst hennar ótakmark-
aða kímnigáfa og jákvæðni. Hún sá
hið spaugilega í ótrúlegustu hlutum,
var skjót til svars og einstaklega orð-
heppin. Það er svo ótal margt sem má
minnast á, en okkur langar að nefna
helst þá miklu samheldni sem ein-
kenndi okkar samband. Það var okk-
ur ómetanlegt. Þó svo að ein okkar sé
búsett erlendis, skipti fjarlægðin
engu máli, heldur virtist tengja okkur
sterkari böndum.
Saman áttum við margar ógleym-
anlegar stundir. Flestar af þeim
skemmtilegustu og eftirminnilegustu
áttum við í Englakoti, sumarhúsi
Önnu Siggu. Við fórum á þennan
töfrastað og áttum okkar „heilögu“
systrastundir. Þar fengum við að
njóta okkar til fulls. Við hlógum okkur
gjörsamlega máttlausar, spiluðum
fram á morgun, sáum sólina setjast og
koma upp aftur, sátum í heita pott-
Erla Garðarsdóttir
✝ Erla KristbjörgGarðarsdóttir
fæddist í Reykjavík
26. júlí 1939.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspítalans
í Kópavogi 19. júlí sl.
Jarðarför Erlu fór
fram frá Vídal-
ínskirkju í Garðabæ
27. júlí 2010.
inum, töldum stjörnur
og horfðum á norður-
ljósin dansa fyrir ofan
okkur.
Einhvern tímann
fórum við að kalla okk-
ur Íni, Míni, Mæni, Mó.
Nefndar eftir aldri.
Þessu höfum við haldið
og þykir vænt um.
Fjölskyldur okkar hafa
einnig haft gaman af.
Einn minningarfjár-
sjóð eigum við saman,
en það er myndabók af
okkur systrum. Minn-
ingarbók sem aðeins er til í fjórum
eintökum, unnin af syni og tengda-
dóttur Erlu. Í dag gefur þessi bók
okkur ómetanlegar og hlýjar minn-
ingar.
Íni – okkar elsku, elsku systir, það
mun enginn geta fyllt það stóra skarð
sem komið er í okkar litla hóp. Við vit-
um þó að þú verður búin að gefa í
„Queens“ þegar við verðum allar
saman komnar á nýjan leik. Þakka
þér „ drottningin“ okkar, elsku Erla
fyrir allar þínar uppákomur, lífsgleði
og fyrir þína ríkulegu kímnigáfu.
Þakka þér fyrir allt og allt. Við mun-
um sakna þín sárt. Megi Guð varð-
veita þig á nýjum dvalarstað. Sjáumst
aftur.
Elsku Ágúst, Kristín, Ásta Karen,
Ágúst Karl og fjölskyldur, missir
ykkar er mikill. Megi góður Guð
styrkja ykkur og styðja.
Silvía, Sigrún og Anna Sigríður.
Elsku Erla, móðursystir mín,
þakka þér fyrir samveruna. Ég
mun ekki gleyma þér með þína frá-
bæru kímnigáfu. Það var alltaf gaman
að koma til þín á Sunnuflötina því að
þú varst svo fyndin og skemmtileg,
hver heimsókn fyllti mig gleðineista.
Þakka þér fyrir alla þessa fjölmörgu
neista sem ég mun varðveita með
kærleik.
Elsku Ágúst og fjölskylda,
Leó, Sunna og ég vottum ykkur öll-
um samúð okkar á þessum erfiðu
stundum.
Sif.
Nú þegar vinkona mín, Erla Garð-
arsdóttir, er látin finnst mér heimur-
inn vera fátækari. Í tvö ár er hún búin
að berjast við erfiðan sjúkdóm með
einstökum dugnaði og æðruleysi.
Hún var einstök kona og ótrúlegt að
fylgjast með baráttu hennar og
hvernig hún skipulagði hlutina fram í
tímann, já Erla var mjög sterk kona.
Vinátta okkar og Sylvíu tvíburasystur
hennar er búin að standa í tæp sextíu
ár.
Á svona stundum reikar hugurinn
aftur og þá á Karfavoginn þar sem við
áttum heima. Foreldrar þeirra sem
voru mér einstaklega góðir, Kristín
móðir hennar sem alltaf var gott að
leita til hvort sem var að hjálpa við
ensku fyrir próf eða fara með mér
upp á sjúkrahús þegar átti að leggja
mig óvænt inn.
Þegar ég fletti gömlum myndaal-
búmum er margs að minnast, þar sé
ég myndir af hjólaferð að Hafravatni
með nesti sem við borðuðum í gömlu
réttinni, ferð með strætó upp að
Lækjarbotnum þar sem við tjölduð-
um við ána og ekki síst ferð sem
Guðni í Sunnu skipulagði fyrir banka-
menn árið 1957. Þá vorum við aðeins
17. ára og skemmtum okkur stórkost-
lega.
Í öll þessi ár erum við búnar að
halda sambandi. Erla átti mjög fallegt
heimili, góðan mann, elskuleg börn og
barnabörn. Nú eru erfiðir tímar en
þegar frá líður verður gott að eiga all-
ar frábæru minningarnar og hennar
fallega bros sem lýsti upp andlitið.
Ég kveð með söknuði kæra vin-
konu og þakka samfylgdina.
Elsku Ágúst, Kristín, Ásta Karen,
Ágúst yngri, Sylvia og fjölskylda,
missir ykkar er mikill og votta ég
ykkur samúð mína.
Alda Dagmar Jónsdóttir.
Fleiri minningargreinar um Erlu
Garðarsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.