Morgunblaðið - 29.07.2010, Síða 8
8 FréttirINNLWENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn-arinnar segir að ríkisstjórnin
muni beita sér fyrir „opinni stjórn-
sýslu“ og „auknu gagnsæi“.
Ennfremur að „settar verði siða-reglur fyrir ríkisstjórn og
stjórnsýsluna“. Þá er því lofað að
„aðgengi almennings og fjölmiðla
að upplýsingum [verði] aukið“.
Framkvæmdstefnu ríkis-
stjórnarinnar
hefur verið mjög
á einn veg. Nýj-
asta dæmið er
dæmalaus spuna-
tölvupóstur Elías-
ar Jóns Guðjóns-
sonar, núverandi
aðstoðarmanns
Katrínar Jakobsdóttur, mennta-
málaráðherra og varaformanns VG.
Áður var Elías fjölmiðlafulltrúi
Steingríms J. Sigfússonar, fjármála-
ráðherra og formanns VG.
Öllu innar í búri ríkisstjórn-arinnar getur koppur tæpast
verið. Þó setti Steingrímur í gang
spuna þegar hann var spurður út í
tölvupóstinn, lét hann sem hann
kannaðist ekki við höfundinn og af-
greiddi málið með því að kalla að-
stoðarmanninn ýmist strák eða
strákling.
Tölvupósturinn afhjúpaði hinsvegar vinnubrögð ríkisstjórn-
arinnar. Aukið gagnsæi og opin
stjórnsýsla eru framkvæmd þannig
að reynt er að mata fjölmiðla á þeim
upplýsingum sem henta stjórnvöld-
um í stað þess að veita almennar og
réttar upplýsingar.
Um leið afhjúpaði tölvupósturinn,þar með talið orðbragðið í hon-
um, siðferði sem unnið er eftir.
Setning siðareglna verður aldrei
annað en hluti af spunaverkinu þeg-
ar viðhorfið innan ríkisstjórn-
arinnar er með þessum hætti.
Elías Jón
Guðjónsson
Spuni ríkisstjórnar afhjúpast
Veður víða um heim 28.7., kl. 18.00
Reykjavík 17 léttskýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 14 skýjað
Egilsstaðir 13 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 16 skýjað
Nuuk 11 skýjað
Þórshöfn 12 alskýjað
Ósló 22 heiðskírt
Kaupmannahöfn 22 skýjað
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 28 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 21 léttskýjað
Dublin 16 skúrir
Glasgow 17 skýjað
London 22 heiðskírt
París 27 heiðskírt
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 20 léttskýjað
Berlín 21 skúrir
Vín 23 skýjað
Moskva 32 heiðskírt
Algarve 31 heiðskírt
Madríd 37 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 27 heiðskírt
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 22 léttskýjað
Montreal 27 skýjað
New York 28 skýjað
Chicago 30 skýjað
Orlando 34 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:26 22:44
ÍSAFJÖRÐUR 4:07 23:13
SIGLUFJÖRÐUR 3:49 22:57
DJÚPIVOGUR 3:49 22:19
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Þetta er bara gríðarlega gaman og
afskaplega gott fólk sem tekur þátt í
því að gera þetta að veruleika og sem
veglegast,“ segir Ómar Bjarki Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri Unglinga-
landsmóts Ungmennafélags Íslands
(UMFÍ) sem hefst í dag og stendur
fram á sunnudag.
Ómar segir að unglingalandsmótið
fari fram að mestu með hefðbundnu
sniði eins og áður. Þó séu einhverjar
nýjungar og þannig verði keppt í
dansi í fyrsta skipti í ár. Mikil þátttaka
sé í honum. „Á næsta ári t.d. verður
mótið á Egilsstöðum og þá stendur til
að keppt verði í fimleikum. Þannig að
það er alltaf verið að bæta við ein-
hverju.“
Stærsta mótið
Að sögn Ómars stefnir í að mótið í
Borgarnesi verði það stærsta frá upp-
hafi og mun stærra en það var í fyrra
þegar það fór fram á Sauðárkróki.
Þannig séu nú um 1.700 þátttakendur
skráðir til leiks í ár á aldrinum 11 til 18
ára.
„Það hafa verið á þessum mótum á
undanförnum árum um 1.000 til 1.200
þátttakendur og í heildina hefur þetta
verið um 10 þúsund manns sem hafa
mætt á staðinn. Í fyrra fór hins vegar
þátttakan upp í 1.500 manns og í
heildina tóku um 13 þúsund manns
þátt í dagskránni á svæðinu,“ segir
Ómar. Það stefni því í að mótið í ár
verði það stærsta frá upphafi. Að-
spurður tekur hann undir það að mið-
að við fyrri mót gæti heildarfjöldi
gesta orðið um 15 þúsund manns.
Jákvæð áhrif
„Það er afar jákvætt að fá unglinga-
landsmótið hingað í Borgarnes að
þessu sinni. Það er mikill hugur í fólki
hér í Borgarfirðinum að standa vel að
þessu og við erum búin að leggja mik-
inn kraft í allan undirbúning,“ segir
Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri
Borgarbyggðar. Hann segir að útlitið
sé almennt gott, skráning á mótið sé
vonum framar og þá sé veðurspáin
góð.
Aðspurður segir Páll ljóst að sú
staðreynd að unglingalandsmótið
fari fram í Borgarnesi hafi gríð-
arlega jákvæð áhrif á efnahagslífið
á staðnum. Vafalítið verði nóg að
gera hjá þeim aðilum sem eru í þjón-
ustu- og veitingarekstri á svæðinu.
„Síðan hafa svona stórar íþrótta-
hátíðir alltaf jákvæð áhrif almennt,
þetta er jákvæð kynning fyrir sveitar-
félagið. Þannig að það er mjög gott að
taka þátt í þessu. Og hér hafa allir
miklar væntingar og eru áhugasamir
um að gera þetta eins vel og hægt er,“
segir Páll.
Stefnir í að verða lang-
stærsta unglingalandsmótið
Morgunblaðið/Eggert
Landsmót Starfsmenn unglingalandsmóts UMFÍ voru í óða önn að ljúka undirbúningi fyrir mótið í gær.
Um 1.700 skráðir til keppni Heildarfjöldinn gæti orðið um 15 þúsund manns
Unglingalandsmót Ungmenna-
félags Íslands (UMFÍ) var fyrst
haldið á Dalvík árið 1992. Fyrst í
stað voru þau haldin á fárra ára
fresti en síðan árið 2002 hafa þau
verið árlegur viðburður. Und-
anfarin ár hefur þátttaka aukist
hröðum skrefum og stefnir nú í
stærsta mótið til þessa.
Unglingalandsmótin eru vímu-
efnalaus fjölskylduhátíð þar sem
börn og unglingar á aldr-
inum 11 til 18 ára reyna
með sér í fjölmörgum
íþróttagreinum. Samhliða er
boðið upp á fjölbreytta af-
þreyingu, leiki og skemmtun
fyrir alla fjölskylduna eins og
segir á heimasíðu UMFÍ.
UNGLINGALANDSMÓT UMFÍ
Unglingalandsmót
UMFÍ
Vímuefnalaus fjölskylduhátíð