Morgunblaðið - 29.07.2010, Blaðsíða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Str. 38-56
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Nýjar gallabuxur frá
Svartar og dökkbláar
Útsalan í fullum gangi
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Póstsendum
Stórútsala
Síðustu dagar
Lokað um
Verslunarmannahelgina
Útsala
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími 568 2870 – www.friendtex.is
Opið mánudaga – föstudaga
11.00-18.00
Lokað á laugardögum
Þú kaupir 2 flíkur
og færð þriðju
flíkina FRÍTT með
Sú ódýrasta fylgir frítt með
Lokað vegna sumarleyfa 3. og 4. ágúst
hjá Praxis og Friendtex
50% 40%
Flottar vörur
á útsölunni.
Gerið góð kaup.
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Komnir aftur
Síðasta sending
sumarsins af bolunum á
1.190 kr.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
STÓRÚTSALA
NÚ ENN MEIRI AFSLÁTTUR
30%-70%
Á mánudag
sl. sendi
Blóðbankinn
frá sér ákall
vegna blóð-
skorts í
bankanum.
Ekki létu við-
brögðin á sér
standa og
hefur síðan
þá verið stöðugt flæði fólks að gefa
blóð. Á tveim dögum söfnuðust 200
einingar af heilblóði. Að sögn
Sveins Guðmundssonar yfirlæknis
eru dæmi um að blóðgjafar hafi
gert hlé á sumarfríum sínum og
komið bæði af Suðurlandi og úr
Borgarfirðinum til að gefa blóð.
Straumur fólks
að gefa blóð
Í fyrradag gekk Ketill G. Jósefsson
leiðsögumaður um Hafnir ásamt
hátt í hundrað manns og sagði frá
liðinni tíð auk þess sem hann bætti
við frásögnum úr æsku sinni. Gang-
an var liður í Náttúruviku Reykja-
ness sem nú stendur yfir. Fram-
undan eru fleiri dagskrárliðir í
öllum sveitarfélögum á Suður-
nesjum, s.s. grasaferð, fuglaskoðun
o.fl.
Sjáðu! Margt er að sjá og fræðast
um á Reykjanesskaganum.
Hundrað manns
fræddust í Höfnum
STUTT
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Á þjóðhátíð í Eyjum er búist við
um 18.000 gestum og eru móts-
haldarar ásamt öðrum að und-
irbúa komu þeirra. Kaupmenn
þurfa að kaupa mikið meira inn en
ella, veitingamenn skera niður
matseðil sinn og margt fleira sem
þarf að huga að áður en hátíð-
argestir mæta í Vestmannaeyjum.
Biðraðir myndast oft fyrir utan
verslanirnar og er oft þröngt þar
inni.
„Við reynum að taka mið af
þessum fjölda,“ segir Ingimar
Georgsson, eigandi matvöruversl-
unarinnar Vöruvals í Vestmanna-
eyjum. „Ég er nú búinn að vera í
þessum bransa í kringum 30 ár.
Maður nýtir upplýsingar frá því í
fyrra og við reynum að hafa meira
af vörum, þá grillmat, samlokur,
hamborgara, svo er fólk líka dug-
legt í mjólkurvörunum“. Ingimar
segir það hafa komið fyrir að sitt-
hvað klárist í búðinni en það hafi
aldrei verið áberandi slæmt, enda
er hann búinn að vera með búðina
í 17 ár. „Það er misjafnt hvernig
menn undirbúa sig. Ég hef aldrei
verið neitt illa haldinn þó eitt og
eitt klárist,“ segir Ingimar, en
matvöruverslanirnar fyllast yfir-
leitt upp úr hádegi. „Þetta eru nú
kannski ekki hefðbundnar versl-
unarferðir fólks,“ segir Ingimar
og hlær. „Venjulega opnum við
hálf-átta á morgnana, en á þjóðhá-
tíð opnum við upp úr hádegi.
Þetta er þjóðhátíð okkar heima-
manna og við tökum að sjálfsögðu
fullan þátt í henni eins og aðrir.
Við reynum bara að vera aðeins
lengur á nóttinni í dalnum og
fersk upp úr hádegi“.
Helena Árnadóttir, eigandi veit-
ingastaðarins Café Maria, segist
vera vel sjóuð í þessum málum og
er mjög róleg. „Það er öllu flagg-
að, svo það fari vel um alla. Það
eru allir rólegir þó það sé bið, það
vita allir að þetta eru annartímar,“
segir Helena. Skera þarf niður
matseðilinn á staðnum og er það
eflaust gert annarsstaðar líka.
„Við verðum að gera það, við ráð-
um ekki við annað,“ segir hún.
Þrátt fyrir miklar annir eru allir
spenntir fyrir þjóðhátíð.
Enginn á að
svelta á þjóð-
hátíð í Eyjum
Von er á 18.000 gestum sem kaup-
menn og veitingamenn þurfa að fæða
Stemning Gríðarlegur fjöldi leggur leið sína á
Þjóðhátíð í ár og það er ljóst að nóg verður af
mat í Vestmannaeyjum. Vinsælt er að borða
Lunda en aðrir kjósa þó hamborgara eða sam-
lokur. Enginn þarf að hafa áhyggjur.
Fjörið í Vestmannaeyjum byrjar
snemma í ár, en ætla má að ný
Landeyjahöfn eigi þar m.a. hlut
að máli. Margt hefur verið í eyj-
unni að undanförnu og segir Hel-
ena Árnadóttir, eigandi Café
María, að ávallt sé nóg að gera
og fullsetið. „Fólk er svo ánægt.
Það er að koma hérna kannski í
tíu tíma, að skoða eyj-
una og skreppa í
sund, borða og fara
svo eftir kvöldmat-
arleytið“. Hún segir
þetta hafa breyst mik-
ið eftir að ný höfn
var opnuð og
verðlag í Herj-
ólfi breyttist.
Þjóðhátíðin
byrjar fyrr
MIKIL UMFERÐ Í EYJUM