Morgunblaðið - 29.07.2010, Side 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
FRÉTTASKÝRING
Andri Karl
andri@mbl.is
Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðar-
maður í Vestmannaeyjum og einn
eigenda Morgunblaðsins, er fyrst
kvenna til að vera hæsti skattgreið-
andi Íslands. Hún er réttnefnd
skattadrottning Íslands árið 2010 og
greiðir tæpar 343 milljónir króna í
opinber gjöld á árinu. Ríkisskatt-
stjóri hefur lokið álagningu opin-
berra gjalda á einstaklinga og voru
nöfn þeirra sextíu sem greiða hæstu
skatta birt sérstaklega.
Um er að ræða fyrstu álagn-
inguna eftir að skattumdæmi voru
sameinuð, en sameiningin átti sér
stað um síðustu áramót. Á undan-
förnum árum lagði hver skattstjóri
– þeir voru níu – fram sína skrá og
voru þeir birtir á sér-lista sem
hæsta skatta greiddu í hverju um-
dæmi. Þar sem landið er nú eitt
skattumdæmi er aðeins um einn
lista að ræða, óháð landshlutum.
Mikið breyttur listi
Á skattgrunnskrá voru ríflega 261
þúsund framteljendur, en af þeim
sættu 13.750 einstaklingar áætlun-
um, eða 5,26% af skattgrunnskrá.
Næstir á eftir Guðbjörgu greiddu
hæsta skatta Ingi Guðjónsson, lyfja-
fræðingur í Kópavogi og einn af
stofnendum Lyfju, sem vermir 2.
sæti og greiðir um 198 milljónir
króna og svo er Þorsteinn Hjalte-
sted Vatnsendabóndi í 3. sæti og
greiðir tæpar 120 milljónir króna. Í
fjórða sæti er önnur kona, Katrín
Þorvaldsdóttir í Reykjavík, og
greiðir tæplega 116 milljónir króna.
Listinn er mikið breyttur frá um-
liðnum árum en menn úr föllnu fjár-
málakerfi landsins röðuðu sér þá yf-
irleitt í efstu sætin. Þó má finna tvo
fyrrverandi bankastjóra Íslands-
banka á listanum, en þeir eru í 17.
og 18. sæti. Greiðir Lárus Welding
57,3 milljónir króna í opinber gjöld
og Bjarni Ármannsson 55,7 millj-
ónir króna.
Rétt fyrir ofan þá Lárus og
Bjarna er Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar, sem
greiðir rúmar 65 milljónir króna. Í
20. sæti er Andri Már Ingólfsson,
aðaleigandi Primera Travel, sem
greiðir rúmar 52 milljónir króna, en
einnig má finna á listanum Hörð
Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar,
sem greiðir tæpar 39 milljónir
króna og Jóhannes Jónsson, kennd-
an við Bónus, sem greiðir tæpa 31
milljón króna, litlu minna en á síð-
asta ári.
Ekki á listanum í fyrra
Ef bornir eru saman listar ársins
í ár og síðasta árs yfir hæstu skatt-
greiðendur kemur ýmislegt forvitni-
legt í ljós. Til að mynda, að skatta-
drottningu ársins var ekki að finna
á listanum í fyrra. Og Þorsteinn
Már Baldvinsson, útgerðarmaður á
Akureyri, sem greiddi hæstu skatta
á síðasta ári, tæplega 170 milljónir
króna, er ekki á meðal sextíu hæstu
í ár.
Í fyrra mátti einnig sjá, að Hreið-
ar Már Sigurðsson, fyrrverandi for-
stjóri Kaupþings, og Sigurjón Þ.
Árnason, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans, voru með hæstu
gjöldin í Reykjavík. Þá er hins veg-
ar ekki að finna á lista ríkisskatt-
stjóra fyrir árið í ár. Hreiðar Már
fluttist reyndar úr landi og heldur
lögheimili í Lúxemborg.
Fyrsta skattadrottningin krýnd
Guðbjörg Matthíasdóttir útgerðarmaður í Vestmannaeyjum er skattadrottning landsins árið 2010
Bankamönnum hefur fækkað ört en tveir fyrrum bankastjórar Íslandsbanka eru í 17. og 18. sæti
!"
# $
% &'
$
( (
) *
+ (
"+
, $
+ -
%
.
&+
(
( ( ",
(
$
/
+ "
012345621
738174287
773438965
779575873
33905198
32989644
82081341
59130815
56364611
45050189
49164832
49074501
46967704
95023605
99560100
99238964
91136918
91711724
90158189
92985925
7335
7338
7333
2666
2667
2662
2660
2661
2669
2664
2665
2668
2663
2676
50930433
36280733
58864539
36147119
798573466
782381728
792738569
199564377
787339531
204372559
928473786
923568852
758774156
:
+
; < (
$ =
> < (
+
"
>
/ $
+ (
+
!
"
04484583
19593097
17063815
13535778
30266666
772469475
39442237
239923551
722823611
756863133
166749326
196874647
743317321
012345621
Morgunblaðið/Ómar
Icesave Frá mótmælum á Austurvelli gegn því að Íslendingar þurfi að axla ábyrgð á Icesave-innlánsreikningunum.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins (ESB) segir að engin rík-
isábyrgð sé á bankainnistæðum á
Evrópska efnahagssvæðinu. Þetta
kemur fram í svari frá skrifstofu
Michel Barnier, yfirmanns innri-
markaðsmála í framkvæmdastjórn-
inni, við fyrirspurn frá norska
fréttavefnum ABC Nyheter.
Þar segir að það komi mjög skýrt
fram í tilskipuninni um innistæðu-
tryggingar að ábyrgðin á innistæð-
um sé fyrst og fremst hjá fjármála-
stofnunum sem beri að fjármagna
viðkomandi innistæðutrygginga-
kerfi með inngreiðslum sem nemi
ákveðnu hlutfalli af öllum innistæð-
um sem lagðar hafi verið í þær. Dugi
það ekki til þurfi að liggja fyrir áætl-
un um það hvernig útvega eigi nauð-
synlegt viðbótarfjármagn, t.a.m.
með útgáfu skuldabréfa.
Opinber aðkoma valkvæð
Fram kemur í svari framkvæmda-
stjórnarinnar að þegar hér sé komið
sögu sé hægt að grípa til opinberrar
fjármögnunar en að tilskipunin geri
hins vegar með engum hætti kröfu
til þess. Það sé á valdi viðkomandi
ríkis hvort það sé gert, svo framar-
lega sem farið sé að reglum Evrópu-
sambandsins um ríkisstyrki.
Þá kemur fram í svarinu að engu
breyti þó ríki standi þegar frammi
fyrir efnahagserfiðleikum. Þær fjár-
mögnunarráðstafanir sem gert sé
ráð fyrir í tilskipuninni hafi það að
markmiði að komast hjá því að grípa
þurfti til skattfjár til þess að fjár-
magna innistæðutryggingakerfi.
Þar af leiði að slík skuldbinding sé
ekki lögð á einstök ríki.
Röng innleiðing
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins segir síðan í svari sínu að
hún taki að öðru leyti undir það sjón-
armið Eftirlitsstofnunar EFTA
(ESA) frá því í lok maí að Íslend-
ingum beri að endurgreiða inni-
stæðueigendum innan sambandsins,
þ.e. í Bretlandi og Hollandi, vegna
skuldbindinga íslenska innistæðu-
tryggingasjóðsins. Þetta byggir
framkvæmdastjórnin á þeirri stað-
hæfingu að innistæðutrygginga-
kerfið hafi ekki verið innleitt með
viðunandi hætti. Kerfið hafi ekki
verið nægilega umfangsmikið með
tilliti til stærðar íslenska fjár-
málageirans og þeirrar áhættu sem í
því fólst.
Þá er einnig ítrekað það sjónar-
mið að íslensk stjórnvöld hafi mis-
munað innistæðueigendum með því
að ábyrgjast innistæður „íslenskra
innistæðueigenda“ en ekki innistæð-
ur íbúa Evrópusambandslanda í ís-
lenskum bönkum.
Loksins viðurkennt
„Þetta eru talsverð tíðindi. Því
hefur verið haldið endalaust fram að
það væru einhver séríslensk sjónar-
mið að engin ríkisábyrgð væri á inni-
stæðutryggingakerfinu. Þannig að
það er jákvætt að fá loksins við-
urkenningu á því að svo sé ekki,“
segir Stefán Már Stefánsson,
lagaprófessor við Háskóla Íslands.
Stefán segir að með þessu sé því
komin upp ný staða í málinu. Fram-
kvæmdastjórnin sé með skírskot-
uninni til innleiðingar tilskipunar-
innar að leggja áherslu á nokkuð
sem ekki hafi verið í umræðunni áð-
ur. Ekki sé vitað til þess að neinar
athugasemdir hafi komið frá ESA
eða öðrum vegna innleiðingar til-
skipunarinnar á sínum tíma.
„En þá verður að fara þá leið að
setja fram skaðabótakröfu á hendur
íslenska ríkinu vegna innleiðing-
arinnar og færa sönnur á vanrækslu
og ennfremur að hún hafi leitt til
tjóns sem sé skaðabótaskylt. Þá eru
menn komnir út í allt aðra sálma,“
segir Stefán.
Engin ríkisábyrgð á innistæðum
Framkvæmdastjórn ESB segir enga ríkisábyrgð vera á bankainnistæðum Segir að tilskipun um
innistæðutryggingar hafi ekki verið innleidd rétt Ný staða komin upp í málinu, segir lagaprófessor
Fjórir ein-
staklingar
greiða yfir
hundrað
milljónir
króna í skatt
á þessu ári
og óhætt að
segja að
mikið hafi
breyst á ör-
fáum árum.
Árið 2007 er enn Íslendingum
í fersku minni, margra hluta
vegna en helst af þeim sökum
að velmegunin er talin hafa náð
hámarki. Árið 2007 sló Hreiðar
Már Sigurðsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings, öll met í
skattgreiðslum en hann þurfti
að greiða rúmar fjögur hundruð
milljónir króna í skatt. Sama ár
greiddu sjö einstaklingar yfir
hundrað milljónir króna. Þar ber
að hafa í huga að um er að ræða
gjaldárið 2006.
Umbylting varð ári síðar,
gjaldárið 2007. Skattakóngur
var Kristinn Gunnarsson, sem
seldi stóran hluta í Actavis, og
greiddi rúmar 450 milljónir í
skatt. Og árið var sérstakt. Þá
greiddu fjórtán einstaklingar yf-
ir 200 milljónir króna í opinber
gjöld og nokkrir tugir yfir 100
milljónir kr.
Umfangið allt
saman minna
SKATTAKÓNGAR FYRRI ÁRA
Hreiðar Már
Sigurðsson
„Framkvæmdastjórnin telur að í
tilfelli Íslands komi ábyrgð ís-
lenska ríkisins á endurgreiðslu
vegna Tryggingasjóðs innstæðu-
eigenda og fjárfesta til innistæðu-
eigenda í Evrópusambandinu til
vegna ófullnægjandi innleiðingar
tilskipunarinnar [um innistæðu-
tryggingar] á Íslandi. Umfang kerf-
isins var ekki hlutfallslega í sam-
ræmi við stærð íslenska banka-
geirans og þá áhættu sem hann
skapaði. Því til viðbótar leiddi það
af sér mismunun að bæta ekki
innistæðueigendum innan sam-
bandsins tap sitt eins og íslensk-
um innistæðueigendum sem fengu
fulla vernd og urðu þar af leiðandi
ekki fyrir neinu tjóni vegna banka-
hrunsins.“
Ófullnægjandi innleiðing
ÚR SVARI FRAMKVÆMDASTJÓRNAR ESB TIL ABC NYHETER