Morgunblaðið - 29.07.2010, Qupperneq 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Hann notaði fyrirtækið sem hann
vann hjá sem sinn einkabanka og
borgaði meðal annars þannig rapp-
aranum 50 Cent fyrir að koma fram í
fermingarveislu dóttur sinnar.
Hér er ekki verið að lýsa glæsi-
lífi íslenskra útrásarvíkinga, þó stefið
sé að vissu leyti kunnuglegt, heldur
hvernig Bandaríkjamaðurinn David
H. Brooks, fyrrverandi yfirmaður og
stofnandi DHB Industries, sem fram-
leiðir m.a. herklæði, t.d. skotheld
vesti, blóðmjólkaði fyrirtækið til að
kosta lífsstíl sem fól til dæmis í sér
kaup á vændiskonum og veð-
hlaupahestum. Mál Brooks er nú fyr-
ir dómstólum vestanhafs og reiknast
saksóknaranum til að kauði hafi tekið
185 milljónir dala, eða 22,5 milljarða
íslenskra króna, ófrjálsri hendi út úr
fyrirtækinu. Í fermingarveislu dóttur
sinnar eyddi hann t.d. rúmlega einum
milljarði króna, m.a. nokkrum millj-
ónum í boðskortin sem voru inn-
bundin í leður.
Gjafmildur með eindæmum
Í réttarsalnum hefur komið fram
að Brooks var gjafmildur maður ef
svo má að orði komast. Hann eyddi
peningunum ekki eingöngu í sjálfan
sig, ef undan er t.d. talin tólf milljóna
króna beltissylgja skreytt demönt-
um. Brooks notaði peningana einnig í
þágu vina, samstarfsmanna og fjöl-
skyldu. Hann keypti klámmyndir fyr-
ir son sinn, lýtaaðgerðir fyrir eigin-
konuna og þjónustu vændiskvenna
fyrir samstarfsmennina. Þá fékk
fermingarbarnið dóttir hans afnot af
einkaþotu fyrirtækisins til að komast
í hrekkjavökupartí. Brooks er líka
talinn hafa eytt um 42 milljónum í
penna. Úr gulli.
Brooks er sakaður um að hafa
falsað heimildir stjórnar fyrirtæk-
isins til persónulegra útgjalda sinna.
Þetta bliknar þó allt saman í
samanburði við það fé sem Brooks og
samstarfskona hans urðu sér úti um
með því að falsa afkomutölur fyrir-
tækisins, áður en þau seldu hlutabréf
sín á uppsprengdu verði. Brooks neit-
ar sök en saksóknarinn fer fram á
þrjátíu ára fangelsisdóm yfir honum.
Réttarhöldunum er ekki lokið.
Gullpennar,
vændiskonur
og rokktónlist
Notaði fyrirtækið sem sinn
einkabanka og falsaði afkomutölur
Dýrð Brooks með beltissylgjuna
góðu sem er prýdd demöntum.
Hvaða áhrif hefur góður leikskóla-
kennari á framtíð barna? Heilmikil
á námsárangur fyrstu árin í grunn-
skóla en svo hafa þau fjarað út er í
menntaskóla er komið. Á þennan
veg hafa niðurstöður rannsókna
hingað til verið. Nú hafa bandarísk-
ir vísindamenn tekið málið upp að
nýju og kannað afdrif barna sem
tóku þátt í stórri rannsókn á náms-
árangri á 9. áratugnum.
Ef marka má niðurstöðurnar
koma áhrif góðrar leikskóla-
kennslu aftur fram á fullorðins-
árum. Fólk sem hafði notið góðrar
leiðsagnar í leikskóla var mun lík-
legra til að fara í háskóla.
Þá var það ólíklegra til að verða
einstætt foreldri en líklegra til að
leggja reglulega fé inn á spari-
reikning.
Byggt á víðtækri tilraun
Fjallað er um málið á vef New
York Times en þar segir að Raj
Chetty, prófessor í hagfræði við
Harvard-háskóla, hafi farið fyrir
rannsókninni sem fimm aðrir rann-
sakendur komu að.
Rannsakaði hópurinn æviferil um
12.000 Bandaríkjamanna sem tóku
þátt í tilraun í menntamálum í
Tennessee á 9. áratugnum en þeir
hafa nú vaxið úr grasi og því er
hægt að draga lærdóma af náminu.
Umrædd tilraun (skammstöfuð
STAR á ensku) fól í sér athugun á
því hvaða áhrif stærð bekkja hefði á
frammistöðu nemenda í leikskólum.
Benti hún eindregið til að smærri
bekkir þýddu betri árangur.
Svo hvað? Með góðri leikskóla-
kennslu er lagður grunnur til framtíðar.
Sannað að lengi býr
að fyrstu gerð
BANDARÍKIN
Ættingi farþega Airbus-þotu
Airblue-flugfélagsins bíður á milli
vonar og ótta eftir tíðindum af ást-
vini sínum á alþjóðaflugvellinum í
Islamabad, eftir að ljóst varð að
eitthvað hefði farið úrskeiðis.
Allir farþegarnir, eða 146, og sex
manna áhöfn fórust er vélin skall á
skógi vaxinni hæð í rigningarveðri í
útjaðri höfuðborgarinnar.
Vélin var á leið frá pakistönsku
borginni Karachi en slysið er eitt
hið mannskæðasta í sögu landsins.
Sjónarvottar segja vélina hafa
flogið óvenjulágt miðað við stað-
hætti. Þá hefur AFP-fréttastofan
eftir flugmanni hjá pakistanska
flugfélaginu PIA að annarri vél frá
Karachi hefði verið snúið frá
Islamabad aðeins um hálfri klukku-
stund áður og henni gert að lenda í
nágrannaborginni Lahore.
Ekkert þykir benda til að hryðju-
verkasamtök hafi komið við sögu
en þau láta ósjaldan til skarar
skríða í þessu fjölmenna ríki.
Flugöryggismál þykja í prýði-
legum farvegi í Pakistan en stjórn-
völd hyggjast greiða 700.000 króna
bætur með hverjum hinna látnu.
Reuters
Angist í Islamabad
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei
það er að koma 17. Júní!
Á morgun fögnum við
því að íslenska lýðveldið var
stofnað á Þingvöllum á því herrans
ári 1944. Við það tækifæri var stjórnarskrá
Íslands einnig staðfest og Sveinn Björnsson
var kjörinn fyrsti forseti lýðveldisins. Fyrir alla
Íslendinga er 17. júní dýrðardagur sem ber að
fagna. Skrúðgöngur, helíumblöðrur, kandífloss
og tónleikar í tilefni dagsins er það sem koma
skal. Vertu tilbúin fyrir lýðveldisdaginn og
skemmtu þér með vinum og vandamönnum.
Fagnaðu frelsinu!
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Undirbúðu þig fyrir lýðveldisdaginn og helltu upp á
hressandi BKI kaffi. Fáðu þér lýðveldiskaffi og
njóttu dagsins.
Gríptu tækifærið, fáðu þér BKI kaffi.
17. júní er á morgun
Fagnaðu
lýðveldisdeginum
meðBKIkaffi
Lýðveldisdagurinn er á morgun
Kauptu BKI fyrir
17. júní
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir.