Morgunblaðið - 29.07.2010, Qupperneq 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Sudoku
Frumstig
1 7 9 5
9 4
2 3
7 9
5 7 4 9
5 8 3 7
1 3 7
4
3 2 1 9
4 8 2
9 1 7
3 5 2
8 4 3 5
8 5 9
7 2 1
9 8
2 7
7
6 3 5
1 8
7 6 1
8 9
1 3
4 3
2 9 8 7
7 2 9 6
6 7
6 9 7 5 1 2 3 8 4
5 4 2 3 6 8 1 7 9
8 3 1 7 9 4 6 2 5
2 1 5 6 4 9 8 3 7
7 6 4 8 2 3 9 5 1
3 8 9 1 7 5 2 4 6
1 5 3 4 8 6 7 9 2
4 2 6 9 3 7 5 1 8
9 7 8 2 5 1 4 6 3
1 8 9 6 2 4 3 5 7
5 2 7 1 9 3 6 8 4
6 4 3 8 5 7 2 1 9
4 5 2 9 3 6 8 7 1
9 1 6 4 7 8 5 2 3
3 7 8 2 1 5 4 9 6
2 9 4 3 8 1 7 6 5
8 3 5 7 6 9 1 4 2
7 6 1 5 4 2 9 3 8
8 2 6 1 7 5 3 4 9
3 5 9 8 6 4 2 7 1
1 7 4 3 9 2 5 8 6
4 6 2 5 8 3 9 1 7
7 3 8 2 1 9 6 5 4
5 9 1 6 4 7 8 2 3
2 1 7 9 5 6 4 3 8
6 8 3 4 2 1 7 9 5
9 4 5 7 3 8 1 6 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 29. júlí, 210. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: En Jesús hrópaði: “Sá
sem trúir á mig, trúir ekki á mig, held-
ur þann sem sendi mig.“ (Jh.. 12, 44.)
Köttur Víkverja er í essinu sínuyfir hásumartímann. Hann
eyðir löngum stundum flatmagandi
á grindverkinu í garðinum eða í
gluggakistunni í sólbaði. Kisi er
geldur og vel upp alinn og kýs aðeins
að gera stykki sín innandyra í þar til
gerðan kassa. Að því er Víkverji best
veit. Þó kötturinn gjarnan vildi fær
hann ekki að fara út á nóttunni og
hefur með tímanum sæst við hús-
bónda sinn hvað þetta varðar.
Köttur Víkverja á marga góða ná-
granna af sömu tegund sem leika sér
og stundum slást þó í hófi sé, í görð-
unum í götunni. Yfirleitt eru þeir
ekki mikið fyrir strokur ókunnugra
og abbast því varla upp á neinn.
x x x
Nú er hins vegar óróleiki meðallitlu ljónanna í Hlíðunum í
Reykjavík því heyrst hefur að bræð-
ur þeirra og systur handan Hellis-
heiðar verði héðan í frá að hanga í
taumi fari þau undir bert loft.
Og nú spyrja heimiliskettirnir í
Hlíðunum: Getur þetta staðist dýra-
verndunarlög? Eða eins og í tísku er
að segja: Getur þetta staðist anda
dýraverndunarlaga? Getur það yfir
höfuð verið að einhver hafi látið sér
detta þetta í hug?
x x x
Kettirnir í Hlíðunum eru því aðvelta fyrir sér hvort ekki megi
takmarka frelsi barna með svip-
uðum hætti. Í það minnsta ungra
barna, svona fram undir fermingu.
Af börnum stafar töluvert ónæði,
meira en af köttum í það minnsta.
Þau öskra og æpa, sparka boltum í
veg fyrir fólk eða sparka þeim í bíla
og hús og brjóta hluti. Þau gera hróp
og köll að gamalmennum og brjóta
ítrekað reglur um útivistartíma.
x x x
Víkverji hefur fylgst með þróunmálsins hjá Hlíðaköttunum og
getur tekið undir allt sem þeir eru að
hugsa. Víkverja finnst enda ekkert
nema notalegt að mæta ketti á götu
og hefur aldrei, hvorki fyrr né síðar,
orðið fyrir nokkru áreiti ókunnugra
katta. Það sama verður ekki sagt um
nágrannabörnin. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ágengt, 4 snauð,
7 slægjulandið, 8 þröngv-
að til, 9 elska, 11 anga, 13
karlfugl, 14 gösla í vatni,
15 gauragangur, 17 ófög-
ur, 20 fjallsbrún, 22 sela-
hópur, 23 stirðleiki, 24
grassverði, 25 hreinan.
Lóðrétt | 1 frosin jörð, 2
dýrum, 3 nöldra, 4 snjór,
5 sloka í sig, 6 rándýri,
10 ekki gömul, 12 ílát, 13
mann, 15 helmingur, 16
fuglar, 18 húðpoki, 19
ljósfærið, 20 á jakka, 21
syrgi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1skapnaður, 8 mítur, 9 dotta, 10 rýr, 11 nurla,
13 áfram, 15 friðs, 18 samur, 21 tóm, 22 leifi, 23 eflum,
24 andkaldur.
Lóðrétt: 2 kýtir, 3 púrra, 4 andrá, 5 urtur, 6 smán, 7
garm, 12 lið, 14 fúa, 15 fólk, 16 iðinn, 17 stilk, 18 smell,
19 muldu, 20 rúmt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. f3 dxe4 4. fxe4
e5 5. Rf3 Bg4 6. Bc4 Bxf3 7. Dxf3
Rf6 8. dxe5 Da5+ 9. Rc3 Dxe5 10.
Bf4 Dd4 11. e5 g5 12. Bg3 Dxc4
13. Dxf6 Hg8 14. O-O-O Rd7
Staðan kom upp í grísku
deildarkeppninni sem lauk fyrir
skömmu. Panteleimon Tzoug-
anakis (2095) hafði hvítt gegn
Hristos Gkikas (1889). 15. Hxd7!
Kxd7 16. e6+! Dxe6 17. Hd1+
Ke8 18. He1 hvítur vinnur nú
drottningu svarts og nokkru síðar
skákina. 18…Dxe1+ 19. Bxe1
Hg6 20. Df5 Bg7 21. Re4 Hd8 22.
Bc3 Bxc3 23. bxc3 h6 24. Rf6+
Ke7 25. De5+ Kf8 26. Dc7 Hxf6
27. Dxd8+ Kg7 28. De7 Hf2 29.
g4 Hf4 30. Dxb7 Hxg4 31. Dxc6
f5 32. Dd7+ Kf6 33. Dd6+ Kf7
34. c4 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Einn, tveir og þrír.
Norður
♠83
♥Á9754
♦K1065
♣K4
Vestur Austur
♠Á104 ♠KD75
♥K632 ♥G
♦-- ♦D743
♣G108653 ♣D972
Suður
♠G962
♥D108
♦ÁG982
♣Á
Suður spilar 5♦ doblaða.
Stephen Landen spilaði eins og alsjá-
andi maður, en það verður að segjast
eins og er að sagnir höfðu verið hjálp-
legar. Spilið er frá landsliðskeppni
Bandaríkjamanna í Chicago. Mótherjar
Landens voru Zia Mahmood og Bob
Hamman.
Landen vakti í fjórðu hendi á 1♥ og
Zia – passaður maðurinn – kom inn á
2♣. Dan Gerstman í norður sagði 2♥ og
Hamman í austur stökk í 4♣. Enginn á
hættu. Landen stakk upp á 4♥, en Zia
var í fórnarham og kom við í 4G á leið í
5♣. Norður hundsaði þá hræringssögn,
sagði 5♦, sem Zia doblaði. Laufgosi út.
Fyrsta verk Landens var að spila ♥D
– lítið, lítið og gosi. Næsta verk var að
ná trompinu af Hamman með svíningu.
Þriðja og síðasta verkið var svo að skrá
650 í plúsdálkinn fyrir unnið spil með yf-
irslag.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ekki liggja á liði þínu, heldur
kastaðu þínum málum fram til umræðu.
Láttu ekki aðra stjórna lífi þínu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þér finnst einhvern veginn eins og
þú sért að missa tökin á hlutunum, en já-
kvæðni þín og bjartsýni geta áorkað
miklu. Hristu af þér slenið, þér er að
takast ætlunarverkið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Menn geta haft skiptar skoð-
anir á málum þótt þeir stefni allir að
sama marki. Brettu því upp ermarnar og
gakktu til verks áður en þú drukknar í
verkefnaflóðinu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þeir verða margir sem vilja hjálp
þína í dag. Sýndu bara innri styrk.
Mundu að líkt laðast að líku og þú átt
skilið aðeins það besta.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Búðu þig undir að grípa þau tæki-
færi sem þér bjóðast til ferðalaga og
framhaldsmenntunar. Eitthvað er ofvax-
ið þínum skilningi en það breytist.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Stundum dregst fólk að þér án
þess að þú gerir nokkuð til þess. Varastu
að vera of eftirlát/ur við fjölskylduna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er engin ástæða til þess að setja
sig á háan hest, þótt þú hafir rétt fyrir
þér. Leitaðu hjálpar ef með þarf.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ekki opna munninn nema
vita hvað þú ætlar að segja. Einhver sem
er óvelkominn skýtur upp kollinum.
Gættu þín í umferðinni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hrapaðu ekki að ályktunum
og allra síst í viðkvæmum einkamálum.
Nú sannast það að þolinmæðin þrautir
vinnur allar. Þú ert nógu góð/ur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er ekki nóg að vita hvað er
manni fyrir bestu heldur er nauðsynlegt
að tileinka sér það. Notaðu tækifærið og
komdu þér á framfæri því sveltur sitj-
andi kráka en fljúgandi fær.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Myndirnar í huganum á þér
eru gæddar mætti. Gefðu þér líka tíma
til þess að staldra við og vega og meta
stöðu þína. Þú ert fullkomin/n eins og þú
ert.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú gengur fram af miklum krafti
og undrast umburðarlyndi annarra í
þinn garð. Umfaðmaðu þessar hræddu,
ófullkomnu mannverur sem þú hefur val-
ið inn í veröld þína.
Stjörnuspá
29. júlí 1928
Ekið var á bifreið frá Borgar-
nesi og yfir Kerlingarskarð. Í
Stykkishólmi var ökumanni og
farþegum „tekið með kostum
og kynjum sem eðlilegt er, því
þangað hefur bíll aldrei kom-
ist áður,“ sagði í Morgun-
blaðinu.
29. júlí 1934
Ríkisstjórn Hermanns Jón-
assonar, sú fyrsta undir for-
sæti hans, tók við völdum. Ey-
steinn Jónsson varð fjármála-
ráðherra, 27 ára að aldri,
yngstur allra sem tekið höfðu
við ráðherraembætti hér á
landi. Stjórnin sat í tæp fimm
ár.
29. júlí 1977
Þýskur bankaræningi var
handtekinn í Reykjavík með
277 þúsund mörk. Hann hafði
verið eftirlýstur erlendis.
29. júlí 1979
Afhjúpaður var minnisvarði
innst í Þorskafirði um Kolla-
búðafundi en þeir voru haldn-
ir árlega frá 1849 til 1895. Þar
ræddu Vestfirðingar helstu
framfaramál þjóðarinnar og
íþróttir voru í hávegum hafð-
ar.
29. júlí 2000
Snorrastofa í Reykholti var
opnuð formlega, að við-
stöddum norsku konungshjón-
unum og forseta Íslands. Kon-
ungur sagði að án Snorra
Sturlusonar hefðu Norðmenn
vitað minna um sögu sína.
29. júlí 2005
Vörubifreiðarstjórar mót-
mæltu olíugjaldi og óku hægt
um götur Reykjavíkur. Sami
hópur stóð fyrir kröftugum
mótmælum tæpum þremur ár-
um síðar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
„Ég er ánægð með að ná þessum áfanga,“ sagði
Anna G. Sverrisdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
í ferðaþjónustu og fyrrverandi framkvæmdastjóri
Bláa lónsins. Hún fagnar 60 ára afmæli í dag.
„Ég er stödd í okkar gömlu höfuðborg, Kaup-
mannahöfn, og ætla að verja afmælisdeginum hér
með stórfjölskyldunni, börnum og barnabörnum,“
sagði Anna. Þau voru búin að fara í Tívolí og ætl-
uðu í siglingu um sundin blá í dag.
Anna hefur haldið upp á afmælið sitt víða um
heim, enda ber það upp á hásumartímann. Hún
kvaðst m.a. hafa haldið upp á afmælið sitt í Berlín
og Svissnesku ölpunum. Einu sinni hélt hún upp á afmælið úti í Flatey
á Breiðafirði, enda fædd í Stykkishólmi.
En hvað telur Anna vera dýrmætasta vegarnestið í lífinu? „Ég tel
að heiðarleiki sé eitt það mikilvægasta sem maður getur lagt af mörk-
um. Ég starfaði mikið í skátunum sem unglingur og fram eftir öllum
aldri. Ég tel að þau gildi sem þar eru hafi mótað líf mitt mjög mikið.
Eitt það síðasta sem Baden Powell, stofnandi Skátahreyfingarinnar,
skrifaði var maður ætti að stefna að því að yfirgefa heiminn örlítið
betri en hann hefði verið hefði maður ekki verið til.“ gudni@mbl.is
Anna G. Sverrisdóttir ráðgjafi 60 ára
Heiðarleiki er mikilvægur
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is