Morgunblaðið - 29.07.2010, Qupperneq 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MÉR FINNST EINS OG
EITTHVAÐ SÉ Í GANGI
EINS OG PARTÍ SEM MÉR
VAR EKKI BOÐIÐ Í
ÞAÐ ER SATT... FRUMURNAR MÍNAR
VINNA ANSI MIKIÐ
SVEFN GEFUR FRUMUNUM
ÞÍNUM TÆKIFÆRI TIL AÐ
HVÍLA SIG EFTIR DAGINN
SVEFN
ER MJÖG
MIKIL-
VÆGUR
HELGA,
ÉG ER
KOMINN
HEIM!
GOTT!
HVERNIG VAR
DAGURINN
HJÁ ÞÉR?
FRÁBÆR! ÉG FÉKK VERÐLAUN FYRIR
AÐ FÁ Í MIG FLESTAR ÖRVAR Í EINUM BARDAGA!
HELDUR GRÍMUR ENNÞÁ AÐ
HANN SÉ AÐ VERÐA SKÖLLÓTTUR?
JÁ, HANN ER MEIRA
AÐ SEGJA BÚINN AÐ
KAUPA SÉR HÁRKOLLU.
PASSAÐU ÞIG AÐ
SEGJA EKKI NEITT
HÆ,
STRÁKAR! HÆ!
HVAÐ
FINNST
ÞÉR UM
HANA?
ÉG VEIT ÞAÐ EKKI...
MÉR FINNST
EINS OG ÉG HAFI
SÉÐ ÞESSA
HÁRGREIÐSLU ÁÐUR
ANDREA?
ÞETTA ER ADDA
BÍLLINN OKKAR VAR
DREGINN, ÞANNIG AÐ
ÉG ÆTLAÐI AÐ ATHUGA
HVORT ÞÚ VÆRIR TIL Í
AÐ VERA KLUKKUTÍMA
LENGUR HJÁ KRÖKKUNUM?
JÁ, AUÐVITAÐ BORGUM
VIÐ ÞÉR YFIRVINNU
FARÐU MEÐ OKKUR Á
NÆSTU LÖGREGLUSTÖÐ
UNGLINGAR
NÚ TIL DAGS
UNNH! LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ÞÚHAFIR KLÚÐRAÐ ÞESSU!
ENGINN GETUR
SIGRAÐ ELECTRO!
SJÁUMST SEINNA!
Málóðir
flugstjórar
Veit einhver hvers
vegna það er, sem
íslenskir flugstjórar
kveðja sér jafnan
hljóðs, þegar nægi-
lega langt er liðið á
hefðbundna flugferð
til að þeir farþegar
séu sofnaðir, sem
það ætla að gera, og
flytja þá ávarp? Ég
þarf af og til að
taka mér far með ís-
lenskum flug-
félögum og þá
bregst varla að þeg-
ar ég er loksins
sofnaður er ég vakinn með
skruðningum sem gefa til kynna
að flugstjórinn þurfi að halda
ræðu. Góðan dag, góðir farþeg-
ar, segir hann hraðmæltur og
byrjar svo að þylja flugáætl-
unina í smáatriðum. Við byrjum
í þessum og þessum fetum og
stefnum svo á Orkneyjar sem
við munum að vísu ekki sjá og
svo munum við beygja og vind-
urinn er af suðsuðvestri sem
skiptir okkur ekki máli en á
ákvörðunarstað er hægur and-
vari, en það gæti hafa breyst
þegar við lendum og bla bla og
vonandi njótið þið þjónustunnar
um borð. Þegar þessi romsa er
úti þá er hún endurtekin á er-
lendu máli, ekki óskyldu ensku
en með framburði sem hvergi
hefur áður heyrst í
enskumælandi heimi
og sjálfsagt ekki öðr-
um heimum heldur.
Eftir þetta tekur óra-
tíma að sofna aftur
og varla næst nema
mínútublundur áður
en maður vaknar við
það að þéttvaxin
kona í aftari sætaröð
þarf að skoða ilmvatn
í tollfrjálsu búðinni,
sem auðvitað er rekin
í háloftunum því
menn geta ekki verið
ókaupandi nokkra
stund í fríinu.
Flugfélög reyna
eitt og annað til að lokka til sín
viðskiptavini. Hvernig væri að
bjóða upp á flugferðir þar sem
flugstjórinn stillir sig um að
vekja farþegana til þess að segja
þeim flughæðina?
Langþreyttur
farþegi.
Gleraugu fundust
Gleraugu, brún að lit, fundust á
golfvellinum austur í Sogi, þau
eru með spöng aftur fyrir
hnakka og segulstál á nefhlíf sem
festir umgjörðina saman. Upp-
lýsingar í síma 695-4097.
Ást er…
… að vita að dagurinn
ykkar mun koma.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Opið kl. 9-16, vinnu-
stofa opin, hádegismatur.
Dalbraut 18-20 | Vídeóstund kl.
13.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Skrifstofa félagsins er lokuð vegna
sumarleyfa. Opnað aftur mánudaginn
9. ágúst.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin og heitt á könnunni
alla virka daga til kl. 16.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin
er opin kl. 8-16. Boccia kl. 10, fé-
lagsvist kl. 13.30, kaffisala í hléi. Böð-
un fyrir hádegi, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl.
8.50, Stefánsganga kl. 9, listasmiðjan
er opin, gáfumannakaffi kl. 15. Matur
og kaffi alla virka daga. Sími 411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Boccia
kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, tekið í spil. Stólad-
ans kl. 13.15, matur og kaffi.
Og enn er gripið niður í greinTheódóru Thoroddsen um
nokkrar stökur kveðnar af sveita-
konum fyrir vestan, en um frekari
deili á þeim er Vísnahorni ekki
kunnugt. Árstíðirnar hafa áhrif á
þann streng, sem sleginn er. Unga
fólkið leitar út í „syngjandi vorið“
með sólina og blæinn þar sem
lyngið blómgast og lundurinn
grær; má vera að þá verði stund-
um tveir og tveir í hóp, að minnsta
kosti er svo að skilja á vísunni,
stendur þar:
Leiðast tvö og lundurinn
laufgaður til sín dregur,
frá munni sveins að meyjar kinn
mun þó skammur vegur.
Og Theódóra heldur áfram:
Slíkt er nú þeirra ungu. Hinir, sem
troðið hafa barnsskóna og komnir
eru til ára, taka vorinu með þakk-
látari hug. Birtan og hlýjan bætir
úr svo mörgu eins og konan kveð-
ur:
Eru það þeldökk þrautaský,
sem þoka ei spöl úr vegi,
er baðar sólin blómin ný
bæði á nótt og degi.
Þeim sem engin eiga skjól
úti á grýttum vegi
verður ljúft að sjá þig, sól,
svona snemma á degi.
En hvað vorið vermir mig,
víst er heimur fagur,
með lífi og sálu lofa ég þig
ljóss og sólar dagur.
Og nú er að gæta þess að ná í
hvern geisla, missa ekki af neinu
sem vermt geti og glatt:
Settu upp á glennta gátt
gluggana alla sem þú átt
og láttu streyma ljósið inn,
það léttir undir baggann þinn.
Og frá Theódóru Thoroddsen og
sveitakonum fyrir vestan hverfum
við austur og norður í Þingeyj-
arsýslur. Þar mætum við fyrst
Bergljótu Benediktsdóttur í Garði
í Aðaldal, systur Huldu skáldkonu.
Hér yrkir hún um konuna á útnes-
inu Tjörnesi, og dregur upp
glögga mannlýsingu:
Þú hefur horft á hafrótið,
hlustað á brim og vinda.
Samt hefur blessað sólskinið
svip þinn náð að mynda.
Emelía Sigurðardóttir á Brett-
ingsstöðum í Flateyjardal orti og
má vera til íhugunar á versl-
unarmannahelgi:
Nú án fylgdar flestir sjást.
Fólk sig parar saman;
margt fyrir aura, minnst fyrir ást,
mest fyrir stundargaman.
Og Hildur Baldvinsdóttir á
Klömbrum orti á heimleið frá
kirkju:
Ylrík hrifning að mér vefst,
er ég hlusta á góðan prest;
andi minn til hæða hefst.
En – heima þjóna ég Guði best.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af konum fyrir vestan
og norðan