Morgunblaðið - 29.07.2010, Qupperneq 33
Matthías Árni Ingimarsson
matthiasarni@mbl.is
Fyrr í vikunni skrifaði ég pistil þar
sem m.a. kom fram að því eldri sem
ég verð því meiri verður áhugi minn
á heimildarmyndum. Umfjöllunar-
efni myndanna er ekki endilega það
sem skiptir mestu máli, heldur þurfa
þær að vera vel gerðar og kvik-
myndagerðarfólkið þarf að gera um-
fjöllunarefninu góð skil.
Íslenskar sjónvarpsstöðvar hafa
verið misduglegar að sinna heimild-
armyndum. Þær eiga það þó til rata
á skjáinn annað slagið og eru gæði
þeirra jafn fjölbreytileg og umfjöll-
unarefnið. Vönduðustu myndirnar
sem heimildarmyndagerðarmenn
senda frá sér ár hvert eru oftast
sýndar á minni kvikmyndahátíðum
um allan heim og hér á landi hafa það
verið hátíðir eins og RIFF, Græna
ljósið og Skjaldborg sem boðið hafa
upp á hvað mest úrval af áhugaverð-
um heimildarmyndum.
Hollywood hefur ekki látið þessa
tegund kvikmyndagerðar fram hjá
sér fara og hafa heimildarmyndir
keppt um óskarsverðlaun í sínum
eigin flokki frá árinu 1942. Hér fyrir
neðan er upptalning á þeim myndum
hlotið óskarsverðlaun sem besta
heimildarmyndin undanfarin tíu ár,
stutta umfjöllun um myndina og
meðaleinkunnina sem hún hefur
fengið hjá notendum kvikmyndavef-
síðunnar IMDB.com.
2000: Into the Arms of Strangers:
Stories of the Kindertransport eftir
þau Mark Jonathan Harris og Debo-
rah Oppenheimer segir sögu neð-
anjarðarsamgöngukerfis sem hjálp-
aði um 10.000 börnum af
gyðingaættum að flýja frá Þýska-
landi til Englands á tímum seinni
heimsstyrjaldarinnar.
Meðaleinkunn notenda IMDB 7,9.
2001: Murder on a Sunday Morning
(Un coupable idéal) eftir Frakkana
Jean-Xavier de Lestrade og Denis
Poncet fjallar um mál Brentons But-
lers sem aðeins fimmtán ára gamall
var ranglega sakaður um að hafa
orðið ferðamanni að bana í borginni
Jacksonville í Flórída.
Meðaleinkunn notenda IMDB 8,1.
2002: Bowling for Columbine eftir
Michael Moore og Michael Donovan
er án efa ein frægasta heimild-
armynd síðari ára. Í henni leitaðist
Moore við að finna hvað bjó að baki
hryllilegri skotárás sem átti sér stað
í Columbine-menntaskólanum.
Myndin varð til þess að miklar deilur
urðu um byssu-
eign og
löggjöf í
Bandaríkj-
unum.
Meðaleinkunn notenda
IMDB 8,2.
2003: The Fog of War eftir Errol
Morris og Michael Williams. Fjallar
um ævi Roberts S. McNamara sem
þrátt fyrir litla reynslu af hernaði
var varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna og tók bæði þátt í Kúbudeilunni
og Víetnamstíðinu í stjórnartíð
þeirra Kennedys og Johnsons.
Meðaleinkunn notenda IMDB 8,3.
2004: Born into Brothels eftir Ross
Kauffman og heimildarljósmynd-
arann Zönu Briski segir sögu nokk-
urra barna í Kalkútta á Indlandi sem
öll eiga það sameiginlegt að mæður
þeirra eru gleðikonur í rauða
hverfinu, Sonagachi.
Briski vingaðist við
börnin og kenndi þeim
ljósmyndun, en þannig
þakkaði hún mæðrum
þeirra fyrir að hafa leyft
henni að mynda þær.
Margar af ljósmyndum
barnanna má sjá í mynd-
inni auk þess sem þær
hafa verið til sýnis í gall-
eríum víðsvegar um
heim.
Meðaleinkunn not-
enda IMDB 7,8.
2005: March of the Penguins (La
marche de l’empereur) eftir Luc Jac-
quet þarf varla að kynna, en hún gef-
ur áhorfendum einstaka sýn inn í líf
keisaramörgæsa, ungra sem gamalla
á suðurskautinu. Í myndinni er að
finna efni sem tekið var á árs löngu
tímabili nálægt frönsku vísindastöð-
inni Dumont d’Urville.
Meðaleinkunn notenda IMDB 7,8.
2006: An Inconvenient Truth eftir
Davis Guggenheim er mynd um her-
ferð Al Gore, fyrrverandi varafor-
seta Bandaríkjanna, til að fræða al-
menning um hlýnun jarðarinnar og
hvað væri í vændum ef ekki yrði gert
neitt til að koma í veg fyrir hana.
Gestir kvikmyndahúsa fjölmenntu á
myndina og er hún ein af
tekjuhæstu heimild-
armyndum sem sýndar
hafa verið í Banda-
ríkjnunm.
Meðaleinkunn not-
enda IMDB 7,9.
2007: Taxi to the
Dark Side eftir Alex
Gibney og Eva Orne
er mynd sem beinir
sjónum að dauða
leigubílstjóra sem var
í haldi bandarískra
hermanna á Begram-
herstöðinni í Afgan-
istan. Myndin tek-
ur einnig á þeim
hryllilegu aðferð-
um sem herinn og
leyniþjónustan CIA hafa notað til að
fá upplýsingar frá föngum sínum.
Meðaleinkunn notenda IMDB 8,1.
2008: Man on Wire eftir Simon
Chinn og James Marsh er alls ekki
mynd fyrir lofthrædda. Myndin lýsir
atburðum þegar Philippe Petit labb-
aði á vír á milli turna World Trade
Center í New York árið 1974 og
byggist á bók Petits, To Reach the
Clouds. Titill myndarinnar er feng-
inn úr skýrslu lögreglunnar, en ofur-
huginn Petit var handtekinn
eftir að hafa klárað hálofta-
göngutúrinn.
Meðaleinkunn not-
enda IMDB 8,0.
2009: The Cove eftir Louie Psihoyos
var hlaut styttuna í ár en hún jafn-
framt ein sú umdeildasta undanfarin
ár. Í henni er fjallað um höfr-
ungaveiðar í Taiji-þjóðgarðinum í
Japan frá sjónarhóli dýravernd-
arsinna. Mikil áhersla er lögð á þann
fjölda höfrunga sem veiddir eru ár-
lega og þær aðferðir sem notaðar
eru við veiðarnar.
Meðaleinkunn notenda IMDB 8,6.
2004 2003
2007
20062009
2001
2000
2005
Menning 33FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 2010
Frá árinu 2000 hafa fimmtíu heim-
ildarmyndir hlotið tilnefningar
til Óskarsverðlaunanna eft-
irsóttu. Nokkrar áhuga-
verðar sem hafa verið til-
nefndar í gegnum árin
eru Legacy, War Pho-
tographer, Spellbound,
Capturing the Fried-
mans, Tupac: Res-
urrection, Enron:
The Smartest Guys
in the Room, Deliver
Us from Evil, No End
in Sight, The Garden
og Food, Inc.
Fleiri
áhugaverðar
2008
Bestu heimildarmyndir síðustu tíu ára
2002